Landsfundur 2024.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur að fjölbreytileiki sé styrkur hvers samfélags og því á íslenskt samfélag að taka þeim fagnandi sem hingað koma, óháð uppruna þeirra eða þeim forsendum sem dvölin byggir á.
Fólk sem sest að á Íslandi á að hafa sömu tækifæri og aðrir íbúar svo sem til atvinnuöryggis, húsnæðisöryggis og tryggrar heilbrigðisþjónustu. Réttlátt og öflugt samfélag nýtur hæfileika og þekkingar allra óháð uppruna. Þá væri mikill styrkur af aukinni þátttöku innflytjenda í stjórnmálum.
Fordómar sem byggja á uppruna og trúarbrögðum verða ekki liðnir á Íslandi, né heldur orðræða og framkoma sem felur í sér hatur og tortryggni gagnvart innflytjendum. Við fögnum þeim áföngum sem nú þegar hafa náðst t.a.m. Móttökustöð flóttafólks og að heildarstefnumótun í málefnum innflytjenda sé langt komin.
Opinber þjónusta og upplýsingagjöf
Opinberum aðilum ber að gæta jafnræðis við veitingu grunnþjónustu. Einstaklingar skulu ekki líða fyrir tungumálakunnáttu sína og uppruna í samskiptum við stjórnvöld og stofnanir.
- Öflug upplýsingagjöf um íslenskt samfélag, réttindi, skyldur, félags- og heilbrigðisþjónustu, menntun og menningu, atvinnu og húsnæði eflir fólk til virkrar samfélagsþátttöku, veitir því öryggi, bætir réttindi þess og stöðu í samfélaginu og vinnur gegn einangrun og jaðarsetningu. Stjórnvöld skulu hafa frumkvæði að því að veita innflytjendum nauðsynlegar upplýsingar og tryggja starfsfólki fræðslu svo það geti sinnt hlutverki sínu við að miðla þeim. Mikilvægt er að auðvelt aðgengi sé að upplýsingum, þjónustu og ráðgjöf. Þeim, sem ekki skilja íslensku, skal standa til boða túlkun svo tryggja megi að þau fái fullnægjandi aðstoð og þjónustu.
- Efla þarf samstarf ríkis og sveitarfélaga enn frekar vegna þjónustu við innflytjendur og fólk á flótta eins og með samræmdri móttöku flóttafólks. Nauðsynlegt er að sveitarfélög um allt land taki þátt í samræmdri móttöku fólks á flótta og fái þannig nauðsynlegan stuðning.
- Huga þarf sérstaklega að stöðu kvenna af erlendum uppruna en þær eru útsettari fyrir kerfisbundinni mismunun og ofbeldi. Vegna þessa skal sérstaklega gætt að réttindum þeirra í allri upplýsingagjöf, stefnumótun og aðgerðum sem og í allri opinberri þjónustu.
- Stórefla þarf rannsóknir og upplýsingasöfnun um líðan og stöðu innflytjenda sem hér setjast að til að geta stutt betur við þarfir þeirra og styðja við stefnumótunarvinnu í málefnum innflytjenda.
Menntun og atvinna
- Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill að öllum innflytjendum sé tryggð íslenskukennsla þeim að kostnaðarlausu, á vinnutíma og án launataps. Mikilvægt er að auka fjölbreytni og aðgengi að slíkri kennslu og hækka framlög til hennar umtalsvert.
- Vinnumarkaðurinn og samfélagið í heild þarf að meta að verðleikum þá menntun og reynslu sem fólk kemur með hingað svo flest geti starfað við sitt fag, sjálfu sér og samfélaginu öllu til góða. Jafnframt er mikilvægt að tryggja að innflytjendur hafi sömu tækifæri til að bæta við sig menntun og aðrir.
- Börn innflytjenda hafa sama rétt og önnur börn og tryggja þarf að þau geti staðið jafnöldrum sínum jafnfætis í námi. Ráðuneyti menntamála þarf, í samvinnu við sveitarfélögin, að stórauka þjónustu, stuðning og námsframboð fyrir þennan hóp og fjölskyldur þeirra. Börn með íslensku sem annað tungumál eiga að hafa aðgang að móðurmálskennslu sem og íslenskukennslu. Efla þarf ráðgjöf til kennara og fagfólks vegna slíkrar kennslu sem og kennaramenntun á sviði fjöltyngi og fjölmenningarlegra kennsluhátta. Mikilvægt er að bjóða upp á stuðning við nám og efla til muna samskipti skóla og foreldra. Börn innflytjenda verður að hafa sérstaklega í huga í námsefnisgerð sem á einnig að stórefla.
- Berjast þarf gegn mismunun og misnotkun á vinnumarkaði af fullri hörku. Allt fólk sem starfar á Íslandi á að njóta fullra réttinda á vinnumarkaði. Mansal, launaþjófnaður, félagsleg undirboð og önnur misnotkun á vinnuafli skal aldrei líðast. Styrkja þarf opinbert eftirlit og lagaumhverfi og tryggja að viðeigandi viðurlög séu við launastuldi eins og hverjum öðrum þjófnaði.
- Upplýsingar um stöðu á vinnumarkaði, réttindi og skyldur þurfa að vera aðgengilegar. Auðvelda þarf ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) að fá atvinnuréttindi. Nauðsynlegt er að opnar séu ólíkar leiðir fyrir fólk í ólíkum aðstæðum til að setjast að hér á landi.
- Skapa þarf aðstæður og ryðja úr vegi hindrunum svo innflytjendur hafi jafnan kost á að taka þátt í stjórnmálum.
Fólk á flótta
Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur að málefni fólks á flótta hafi til þessa verið of lituð af því að vera stjórnsýsluverkefni frekar en þjónustu við fólk með mannúð og virðingu að leiðarljósi.
- Aldrei hafa fleiri þurft að yfirgefa heimili sín vegna stríðsátaka, ofsókna, loftslagsbreytinga og fátæktar. Ísland á að taka vel á móti fólki á flótta og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Mikilvægt er að fólk sem hingað leitar í skjól fái skjóta, góða og sanngjarna málsmeðferð. Skilvirkni kerfisins á aldrei að vera á kostnað mannúðar- og réttlætissjónarmiða. Fólk sem hingað leitar hefur sama rétt til mannlegrar reisnar og sömu mannréttindi og aðrir í okkar samfélagi. Þá skal tryggja hinsegin fólki á flótta sérstaka vernd í lögum um útlendinga.
- Mikilvægt er að taka undir ítrekaðar ábendingar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um heimild ríkja til að taka umsóknir til efnismeðferðar þó svo að þau beri ekki ábyrgð á henni samkvæmt öðrum ákvæðum. Standa ber vörð um upphaflegan tilgang Dyflinnarsamstarfsins sem felur í sér að aðildarríki deili ábyrgð vegna komu fólks á flótta til Evrópu og varpi henni ekki yfir á önnur ríki.
- Börn á flótta, bæði þau sem eru fylgdarlaus og þau sem eru í fylgd foreldra/forsjáraðila, eru fyrst og síðast börn og meta skal aðstæður þeirra með sjálfstæðum hætti. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmáli Evrópu sem og aðrir alþjóðasamningar er varða réttindi barna og Ísland er aðili að, skulu alltaf hafðir að leiðarljósi þegar fjallað er um mál barna á flótta. Fylgdarlaust barn á flótta er í viðkvæmri stöðu og á rétt á skólagöngu og þjónustu í samræmi við hana. Tryggja þarf að húsnæði sem fylgdarlausum börnum býðst við komuna til landsins sé öruggt og barnvænt. Ef aldur barns er á reiki skal barnið ætíð njóta vafans. Sé nauðsynlegt að leggja mat á aldur barns skal gera það með heildstæðu mati og aldrei skal notast við aldursgreiningar á tönnum.