Næsti fundur Efnahags- og fjármálanefndar fer fram mánudaginn 21. nóvember klukkan 20. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.
Gestur fundarins verður Þorsteinn R. Hermannsson, forstöðumaður þróunar hjá Betri samgöngum ohf. Á fundinum verða m.a. rædd gjaldtaka í umferð, notkunargjöld og stýring.
Undir Efnahags- og fjármálanefnd falla m.a. verkefni sem tengjast peningastefnu, ríkisfjármálum, fjármálakerfinu og efnahagsmálum almennt.
Hópstjórn: Steingrímur J. Sigfússon og Sigríður Gísladóttir
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.
________________________________________________________________________________
Microsoft Teams meeting
Join on your computer or mobile app
Click here to join the meeting
Meeting ID: 355 683 805 858
Passcode: 7YfYFb