Search
Close this search box.
Fjarfundur á Teams

Fastanefndir VG: Allsherjar- og menntamálanefnd

29. nóvember
kl. 17:00

Fyrsti fundur Allsherjar- og menntamálanefndar fer fram þriðjudaginn 29. nóvember klukkan 17. Á fundinum fer fram framhald umræðu um útlendingamál. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, verður gestur fundarins.

Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.

Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.

Hópstjórn: Jódís Skúladóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir

Hlekkur á fundinn er hér.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search