Næsti fundur Utanríkismálanefndar fer fram miðvikudaginn 7. desember, klukkan 17:30 – athugið breyttan tíma!
Efni fundarins verður þjóðaröryggisstefnan. Gestur fundarins verður Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar, mun stýra umræðum.
Undir Utanríkismálanefnd falla öll alþjóðamál.
Hópstjórn: Bjarni Jónsson og Elín Björk Jónasdóttir
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.