Næsti fundur Umhverfis- og samgöngunefndar fer fram mánudaginn 5. desember klukkan 20. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams. Á fundinum verður farið yfir orkustefnu hreyfingarinnar og hún endurskoðuð.
Undir Umhverfis- og samgöngunefnd falla m.a. loftslagsmál, náttúruvernd, skipulagsmál, orkumál, samgöngur og málefni sveitarstjórnarstigsins.
Hópstjórn: Álfhildur Leifsdóttir og Davíð Arnar Stefánsson.
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.
________________________________________________________________________________
Microsoft Teams meeting
Join on your computer or mobile app
Click here to join the meeting
Meeting ID: 345 194 619 327
Passcode: HWhVm7