Search
Close this search box.
Stangarhylur

Eldri Vinstri græn – Fyrsti fundur ársins

8. febrúar
kl. 20:00

Fyrsti fundur ársins verður haldinn 8. febrúar nk. kl. 20 í Stangarhyl 4, húsnæði FEB. Á nýju ári lítum við aðeins til baka því sagt er að sagan endurtaki sig sífellt. Hvort sem það er satt eða ekki hafa flestir gaman af sögum af því liðna og það eru jafnvel dæmi um að einhverjir læri af þeim. Guðfinna Ragnarsdóttir hefur komið víða við ekki bara sem kennari heldur einnig sem ritstjóri, rithöfundur og sagnaþulur. Hún segir okkur ýmislegt úr ættfræðinni enda kemur hún okkur öllum við. Jón M. Ívarsson hefur fjölbreytta reynslu sem bóndi, húsasmiður og höfundur fjölda bóka um sagnfræðileg efni. Hann minnir okkur á að útrásarvíkingatímabilin eru fleiri en eitt, kannski lærum við aldrei.

Auðvitað er söngur, kaffi og spjall að venju. Fundarstjóri er Guðrún Hallgrímsdóttir.

Mætum glöð og hress!

  1. Ættfræði í gamni og alvöru – Guðfinna Ragnarsdóttir jarðfræðingur og kennari.
  2. Kaffi og spjall.
  3. Í skugga Gaulverjabæjar Jón M. Ívarsson sagnfræðingur
  4. Og söngur eins og ævinlega – Páll Einarsson og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn!  –  Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.  Næsti fundur verður 8. mars  2023.

Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar  en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:

Bryndís 861 9186; Svanhildur 863 2354; Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 8619031.

 __________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að  – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search