Næsti fundur Velferðarnefndar fer fram fimmtudaginn 2. febrúar klukkan 20:15. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, verður gestur fundarins og mun ræða við hópinn um stöðu þeirra mála sem falla undir hans ráðuneyti og tengjast velferðarstefnunni.
Undir Velferðarnefnd falla m.a. heilbrigðismál, félagsmál, vinnumarkaðsmál og almannatryggingar.
Hópstjórn: Aldey Unnar Traustadóttir og Guðný Hildur Magnúsdóttir.
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum.
Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Hlekkur á fundinn er hér.