*** Vegna óviðráðanlegra aðstæðna þarf að fresta fundi um einn dag. Hann fer fram kl 20 fimmtudaginn 2. febrúar ***
Næsti fundur Allsherjar- og menntamálanefndar fer fram fimmtudaginn 2. febrúar klukkan 20.
Á fundinum fer fram opin umræða um vinnu hópsins fram að þessu, með sérstakri áherslu á það sem eftir á að gera fram að flokksráðsfundi. Þóra Geirlaug mun fara yfir þá vinnu sem hefur átt sér stað í menntastefnunni. Fundurinn er opinn öllum félögum og fer fram á Teams.
Undir Allsherjar- og menntamálanefnd falla m.a. jafnréttismál, menntamál, menningarmál, íþróttir, rannsóknir, útlendingamál, lögreglumál og dómsmál.
Hópstjórn: Jódís Skúladóttir og Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/
Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.
Hlekkur á fundinn er hér.