Search
Close this search box.

Barátta kvenna

Deildu 

Því er ekki náð margumræddu jafnréttinu þó mörg hafi barist fyrir því svo áratugum skiptir. Í dag 19. júní minnumst við þess að konur fengu kosningarétt fyrir 108 árum. Kosningarétt sem kostaði blóð, svita og tár. Svo sjálfsagður þykir þessi réttur í dag að hann er jafnvel ekki nýttur, sem er öllu verr. Þessi réttur okkar skiptir nefnilega svo miklu máli og er eina leiðin til að byggja upp réttlátt samfélag. Samfélag þar sem öll fá notið sín og tækifæri til að hafa áhrif. Það er nefnilega ekki svo að kynjajafnrétti sé náð eða félagslegu réttlæti almennt. Enn sitja hópar á jaðri kerfisins eða horfa upp á eigin réttindi fótum troðin af almenningi og þeim sem hafa völdin. Það er nefnilega svo mikilvægt að muna að fyrir þessum réttindum var barist og enn þarf og er verið að berjast. Það er gríðarlega mikilvægt að hafa réttindi allra hópa í huga þegar kerfi eru smíðuð eða þau endurskoðuð og þeim breytt.

Kvenfrelsi er ein af stoðum VG og segir í stefnu hreyfingarinnar “Vinstrihreyfingin – grænt framboð einsetur sér að uppræta allar birtingarmyndir kynjamisréttis í samfélaginu og brjóta þannig upp kynjakerfi sem er skaðlegt fyrir stöðu, tækifæri og þátttöku allra. Þannig sköpum við betra samfélag fyrir okkur öll óháð kyni.”

Þetta er mikilvæg málsgrein sem alltaf þarf að vera í forgrunni og með sérstöðu allra hópa kvenna í huga, trans kvenna, kvára sem voru konur, konur sem elska aðrar konur, konur af erlendum uppruna, fátækar konur, fatlaðar konur, konur sem eru öryrkjar, ungar konur og eldri konur. Allar stofnanir, fyrirtæki og stefnur sem og allt í daglegu lífi samfélagsins þarf að taka mið af því að við konur erum allskonar, með mismunandi þarfir, langanir og áhugamál einfaldlega vegna þess við erum manneskjur.

Afturför hefur orðið í baráttu okkar kvenna og aðgerða sannarlega áfram þörf á öllum sviðum samfélagsins, tryggja að fjölbreyttar raddir heyrist, að á þær sé hlustað og að mark sé tekið á þeim. Saman getum við brotið upp staðalmyndir, stuðlað að mun fjölbreyttari fyrirmyndum, metið fólk að verðleikum og talað máli jaðar- og minnihlutahópa.

Munum eftir baráttu kvenna alltaf og alls staðar.

Hólmfríður Árnadóttir er oddviti VG í Suðurkjördæmi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search