PO
EN
Fjarfundur á Google Meet

Fastanefndir VG: Utanríkismálanefnd – Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs

1. nóvember
kl. 20:00

Fyrsti fundur utanríkismálanefndar VG verður miðvikudagskvöldið 1. nóvember kl 20. 

Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts verður með erindi um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, sögulegt samhengi og mögulegt framhald. 

Fundurinn fer fram á Google Meet, hlekkur á fundinn hér.

Undir Utanríkismálanefnd falla öll alþjóðamál.

Hópstjórn: Elín Björk Jónasdóttir og Jósúa Gabríel Davíðsson.

Nefndin er ein af 7 nefndum hreyfingarinnar sem starfa fram að landsfundi í vor. Fundirnir eru opnir öllum félögum. Ef þið viljið taka þátt í málefnastarfi hreyfingarinnar þá getið þið kynnt ykkur það og skráð ykkur í hópa hér: https://vg.is/malefnahopar/

Þegar þið hafið skráð ykkur fáið þið aðgang að vinnuhópum fastanefndanna inni á Teams.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þess að sitja fundina.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search