Search
Close this search box.
Salur FEB, Stangarhyl 4

EVG fundur

8. nóvember
kl. 20:00

Kæru félagar                             

Nóvemberfundurinn verður 8. nóv. kl. 20 í Stangarhyl 4, húsnæði FEB. Fundurinn snýst um bækur og höfunda, ekki síst þá sem kannski eru gleymdir en full þörf á að rifja þá upp. Hvar værum við ef ekki fyrir þá sem á undan gengu? Alþýðuskáldin eru mörg og voru uppi á misjöfnum tímum, eru þau kannski til enn? Þórður Helgason hefur kafað djúpt í þeirra vettvang og skilur okkur eftir fróðari um þetta svið. Og Árni Mattíasson er alltaf að lesa og velta fyrir sér, tengja og tvista, hefur hann komist að niðurstöðu? Svo er auðvitað söngur, kaffi og spjall að venju. Fundarstjóri er Guðrún Hallgrímsdóttir. Mætum glöð og hress!

1. Alþýðuskáldin í vörn og sókn. Þórður Helgason frv. dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands rekur nokkur dæmi úr nýrri bók sinni.

2. Kaffi og spjall.

3. Hvar er bókin um mig? Árni Matthíasson sem er fyrrverandi bátsmaður, netstjóri og blaðamaður og er nú sérfræðingur á fréttastofu Ríkisútvarpsins. segir af sinni reynslu.

4. Og söngur eins og ævinlega – Páll Eyjólfsson og Sigurður Alfonsson leika undir söngvum sem auðvitað allir kunna, Gunnar Guttormsson gefur tóninn.

Kaffihlé og kleinur um 9-leytið – munið seðil í kaffisjóðinn!  –  Sem fyrr er fólk minnt á að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.  Næsti fundur verður 13. des.  2023.
Hittumst heil.

Ath. Unnið hefur verið að því að fækka pappírsfundarboðum en þau standa að sjálfsögðu líka til boða áfram. Og munið að netpóstsending gefur færi á að áframsenda einhverjum sem gæti haft gott af því að koma á fundina okkar  en veit kannski ekki af þeim.

Undirbúningshópurinn:
Bryndís 861 9186; Svanhildur 863 2354; Þóra Elfa 824 6518, Þuríður Backman 8619031.

 __________________________

Almennt um fundina:

Eldri vinstri (EVG) græn hafa frá því í des. 2005 haldið hópinn og hist reglulega einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Sjálfboðaliðar hafa undirbúið fundina og lagt áherslu á að  – auk spjalls yfir kaffibolla – sé jafnan eitthvað til fróðleiks og skemmtunar. Þessi tilhögun hefur mælst vel fyrir – Starfssvæði hópsins er óskilgreint, engin félagsgjöld en frjáls framlög í kaffisjóð til að standa undir útlögðum kostnaði. – Tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla fróðleik og rifja upp ýmis áhugaverð efni sem liggja til hliðar við eða sem aðeins óbeint tengjast hinni daglegu pólitísku umræðu. Hér má nefna ýmis menningarmál, málefni sem tengjast baráttu launafólks, útgáfumál, bókmenntir og listir, menntamál, þjóðfrelsismál, alþjóðamál o. fl. – Skemmtiatriði af ýmsu tagi eru fastur liður, svo sem tónlistarflutningur og fjöldasöngur. – Stefnt er að því að fundunum ljúki að jafnaði um kl. 22.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search