Jólabókaflóðið hefur náð landi og skolað á land úrvals bókmenntum sem ljúft er að heyra lesið úr á aðventunni. Af því tilefni bjóða Vinstri græn inn í hlýjuna á Lólu Flórens við Garðastræti þar sem góðir gestir lesa upp úr bókum sínum.
Þar lesa:
Auður Ava Ólafsdóttir úr skáldsögu sinni DJ Bambi sem tilnefnd er til íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Bára Baldursdóttir úr bók sinni Kynlegt stríð- ástandið í nýju ljósi.
Melkorka Ólafsdóttir úr bók sinni Flagsól.
Og Þórarinn Eldjárn úr skáldsögunni Kyrr kjör og ljóðabókinni Hlustum frekar lágt.
Viðburðurinn fer fram laugardaginn 9. desember klukkan 17-19.
Verið öll velkomin!