Margt fólk er hart leikið af lánastofnunum þessa dagana. Ekki bara fyrir dýrtíð og verðbólgu, heldur ekki síður vegna þess hvernig fjármálastofnanir, bankar og lánveitendur fá að komast upp með að beita fólk margskonar harðræði og þrengja að möguleikum þess til að fá notið eðlilegra og sanngjarnra lánakjara og úrlausna sinna mála hjá viðskiptabönkum sínum.
Fólk er jafnvel bundið lánastofnunum skuldafjötrum gegnum óhagstæð íbúðalán, sem ekki fæst breytt til hagfelldari veru eða flutt annað vegna verðfellingar á lánshæfi þeirra, jafnvel yfir nótt. Það getur ekki skuldbreytt eða leitað betri kjara hjá sömu lánastofnunum eða annarsstaðar heldur er ofurselt þeim afarkostum sem bankarnir hafa búið þeim, eftirlitslítið. Ekki einu sinni viðskiptavinir til áratuga njóta velvildar sinna viðskiptabanka vegna þess að þannig geta bankarnir haft af þeim meira fé en ef við byggjum við heilbrigðari viðskiptahætti.
Stór hluti Íslendinga á örlög sín undir fyrirtækjum eins og Creditinfo, sem eftirlitslítið safnar upplýsingum um fjárhagsstöðu fólks, metur hversu líklegt það er til að standa í skilum og verslar svo með og selur þær upplýsingar. Fyrirtækið er það eina sinnar tegundar og ekki háð neinu eftirliti og hafa Neytendasamtökin gert alvarlegar athugasemdir við það.
Þann 23. nóvember síðastliðinn tilkynnti Creditinfo, skyndilega og fyrirvaralaust um breytingar á gerð lánshæfismats sem fólst í því að greiðslusaga einstaklinga var dreginn fram lengra aftur í tímann en áður. Þessar breytingar urðu til þess að lánshæfismat margra lækkaði bókstaflega yfir nótt, fólk sem einhverntíma var í vanskilum en hefur lengi staðið í skilum, er skyndilega metið ótraustari lántakendur, ekki vegna breytinga á högum þess heldur vegna breytinga á verkferlum hjá einu fyrirtæki, fyrirtæki með einokun á markaði á sölu persónuupplýsinga og að því er virðist geðþóttaákvörðunum um mælikvarða. Í krafti þessa geta svo viðskiptabankarnir stillt fólki upp með lakari lánakjör og makað enn frekar krókinn til viðbótar því sem þeir sækja með óhóflegum vaxtamun.
Ég tók þetta ljóta mál upp á Alþingi í gær og tek heilshugar undir með Neytendasamtökunum, sem hafa kallað eftir því að stjórnvöld hafi eftirlit með og láti gera úttekt á virkni lánshæfismats Creditinfo. Þau hafa lengi bent á að ekkert eftirlit er með því hvernig lánshæfismat er reiknað út og hvaða breytur stjórni því. Þegar ofan á bætist svona aðför að hagsmunum einstaklinga sem standa í skilum þá er dagljóst að við svo búið verður ekki unað.
Grein birtist á Vísi 6.desember