Svæðisfélag Vinstri grænna á Suðurnesjum boðar til aðalfundar laugardaginn 6. apríl klukkan 11.00 til 11:30. Á dagskrá verða hefðbundinn aðalfundarstörf.
Að aðalfundi loknum um Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segja frá kjarapakka stjórnvalda sem kynntur var samhliða því að kjarasamningar voru samþykktir auk þess að fjalla um nýsamþykkta fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks hér á landi.
Fundurinn fer fram í sal Rauða krossins á Suðurnesjum, Smiðjuvöllum 9, Reykjanesbæ og boðið verður upp á súpu og brauð ❤️💚
Sjáumst öll!