Search
Close this search box.

Takk Katrín!

Deildu 

Á stjórnarfundi sem lauk rétt í þessu sagði Katrín Jakobsdóttir af sér formennsku í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði.  

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður, mun nú gegna embætti formanns í hennar stað þar til Vinstri græn kjósa sér nýja forystu. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir ritari hreyfingarinnar verður staðgengill Guðmundar Inga sem varaformaður.  

Stjórn Vinstrihreyfingarinnar græns – framboðs vill þakka Katrínu Jakobsdóttur fyrir hennar óeigingjarna starf í þágu hreyfingarinnar, í þágu þeirra hugsjóna sem við stöndum fyrir og allt það sem hún hefur lagt af mörkum í baráttunni fyrir þeim hugsjónum í íslensku samfélagi.  

Stjórnin þakkar henni fyrir farsælt samstarf síðastliðin ár og við óskum henni góðs gengis í forsetaframboðinu

Þá vill stjórn fyrir hönd hreyfingarinnar einnig þakka Katrínu fyrir hennar góða starf sem formaður hreyfingarinnar síðastliðin 11 ár, starf hennar sem varaformaður frá 2003 – 2013 og sem þingmaður og ráðherra hreyfingarinnar. 

Stjórn Vinstri grænna. 

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search