Vinstri græn í Reykjavík, Eldri vinstri græn og Ung vinstri græn bjóða til bingókvölds á Stúdentakjallaranum!
Laugardaginn 13. apríl heldur Sveitastjórnaráð Vinstri grænna ráðstefnu helgaða menntamálum sem ber heitið „Máttur menntunar“.
Að kvöldi sama dags bjóðum við til bingókvölds á Stúdentakjallaranum.
Bingóið hefst klukkan 19, spjaldið er á litlar 500 krónur og veglegir vinningar í boði, meðal annars skemmtun á vegum sjálfs formannsins, Guðmundar Inga.
Bjór í boði og geggjaður félagsskapur.
Sjáumst sem flest!