Search
Close this search box.

Starfslið þingflokksins tilbúið í veturinn!

Deildu 

Alma Mjöll Ólafsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir og Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson munu starfa fyrir þingflokk VG á komandi þingvetri.

Alma Mjöll er nýr framkvæmdastjóri þingflokksins. Alma Mjöll starfaði til margra ára sem rannsóknarblaðakona á Heimildinni og hefur í störfum sínum lagt sérstaka áherslu á málaflokka eins og húsnæðismál, útlendingamál og heilbrigðismál. Hún vann til blaðamannaverðlauna Íslands árið 2020 fyrir umfjöllun um loftlagsmál. Hún er menntuð í sviðslistum úr LHÍ, hefur unnið sem leikstjóri, dagskrárgerðarkona og ritstýrir sinni eigin útgáfu sem heitir GARG.

Brynhildur Björnsdóttir er varaþingmaður VG í Reykjavík suður, hefur undanfarið starfað sem starfsmaður þingflokksins, en áður sem sjálfstætt starfandi blaðakona og dagskrárgerðarkona á Rás eitt. Hún hefur einnig látið til sín taka í baráttu fyrir jafnrétti og gegn kynferðisofbeldi, er einn höfundur kynfræðslustuttmyndarinnar Fáðu já og höfundur bókarinnar Venjulegar konur – vændi á Íslandi. Brynhildur hefur einnig starfað sem bókmennta- og leikhúsgagnrýnandi, er stofnfélagi í hinu Íslenska ástarrannsóknafélagi og söngkona.

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson hefur starfað á skrifstofu Vinstri grænna síðastliðin tvö ár. Hann hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hreyfinguna, m.a. sem formaður Vinstri grænna í Reykjavík, í stjórnkerfis- og lýðræðisráði Reykjavíkurborgar og sem miðlægur kosningastjóri í sveitastjórnakosningum. Hann lauk nýverið doktorsprófi í heimspeki og hefur starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands, ritstjóri og umbrotsmaður.

Sunna Valgerðardóttir, sem starfaði áður fyrir þingflokkinn, hefur störf á skrifstofu VG þar sem hún verður samskipta- og miðlunarstjóri.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search