Það er löngu tímabært að tryggja öllum börnum leikskóladvöl með því að lögfesta leikskólastigið. Sú breyting er lykilatriði í því að brúa bilið sem enn er á milli fæðingarorlofs og leikskóla og veldur fjölmörgum fjölskyldum miklum vandræðum. Í velferðarsamfélagi sem byggir á jöfnuði og jafnrétti er ótækt að fjölskyldur búi við kvíða og afkomuótta í kjölfar barneigna. Það er því réttlát krafa að brúa bilið – með hagsmuni barna og kvenfrelsi að leiðarljósi.
Afstaða VG er skýr og birtist meðal annars í stuðningsaðgerðum stjórnvalda við gerð kjarasamninga í vetur sem leið. Þar var sammælst um að ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins myndu taka höndum saman og vinna með markvissum hætti að því að brúa umönnunarbilið með því að tryggja öllum börnum leikskólapláss frá lokum fæðingarorlofs.
Leiðréttum misjafnt aðgengi að leikskólum
Menntakerfið er mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins og leikskólinn er skilgreindur sem fyrsta skólastigið. Öll börn eiga að hafa aðgang að leikskóla eftir að fæðingarorlofi lýkur. Gögn sýna hins vegar að börn innflytjenda fara síður í leikskóla og Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) mælti sérstaklega gegn heimgreiðslum í nýrri skýrslu fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið þar sem þær gangi gegn hagsmunum innflytjendakvenna.
Skýr birtingarmynd launamisréttis
Góðar starfsaðstæður leikskólakennara og starfsfólks leikskóla er grundvallaratriði og ófrávíkjanleg krafa. Mikill meirihluti starfsfólks leikskóla eru konur á allt of lágum launum sem er sennilega ein skýrasta birtingarmynd launamisréttis og vanmats á virði kvennastarfa. Þetta verður að leiðrétta.
Umönnunarbilið kemur líka verr niður á mæðrum en feðrum þegar litið er til tekna, tækifæra á vinnumarkaði og lífeyrisréttinda. Á meðan tekjur feðra lækka um 3-5% við fæðingu barns og eru orðnar þær sömu og áður að ári liðnu, þá lækka tekjur mæðra um 30-50% og á þriðja ári barnsins eru þær enn umtalsvert lægri en áður. Þetta er óþolandi óréttlæti sem verður að leiðrétta.
Gjaldfrjálst, lögfest leikskólastig
Leiðin er ekki Kópavogsmódelið, ekki að fjölga lokunardögum eða skráningardögum, hækka gjaldskrár eða taka upp heimgreiðslur. Mikilvægasta skrefið sem við getum stigið er að lögfesta leikskólastigið strax að loknu fæðingarorlofi og gera það gjaldfrjálst. Þetta má gera í áföngum.
Endurmat á virði kvennastarfa
Nauðsynlegt er að endurmeta virði kvennastarfa og þar með talið kennara og starfsfólks á leikskólum og tryggja þeim og börnunum framúrskarandi aðstæður. Öflugir og vel búnir leikskólar eru grunnforsenda jöfnuðar og kvenfrelsis. Það er sennilega fátt sem sameinar betur að tryggja jafnrétti kynjanna og grundvallarréttindi allra barna til menntunar.
Dregið úr stéttskiptingu
Með lögfestingu leikskólastigsins væri gerð grundvallarbreyting á íslensku menntakerfi. Draga myndi úr stéttskiptingu með því að öll börn sæki leikskóla og auka til muna möguleika og tækifæri kvenna á vinnumarkaði.
Lögfesting leikskólastigsins er hluti af réttlátum samfélagsbreytingum sem þurfa að verða í íslensku samfélagi.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson