VG blæs til kvennahittings á kosningamiðstöð Vinstri grænna að Suðurlandsbraut 10 á föstudaginn milli klukkan 17 og 19 !
Í augsýn eru kosningar og nú þurfum við að styðja við konur í framboði og við málefni kvenna !
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna og Rósa Björk Brynjólfsdóttir sem situr í 2. sæti í Reykjavík og fleiri konur í VG taka vel á móti ykkur.
Eva Rún Snorradóttir les upp úr nýútkominni bók sinni Eldri konur.
Brynhildur Björnsdóttir í 3. sæti á lista VG í Reykjavík og Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórna kvennabaráttufjöldasöng.
Höfum gaman saman !
Hittumst, skálum, syngjum og tölum um stjórnmál við aðrar konur !