PO
EN

Verð­mæti leik­skólans

Deildu 

Verðmæti leikskólans er ótvírætt. Leikskóli sem mannaður er fagfólki og býður börnum upp á nærandi uppeldis- og menntaumhverfi er kjöraðstæður barna. Skóli sem starfar í anda skóla fyrir öll og byggir starfsemi sína á röddum og þörfum barna. Þar eru leikskólakennarar lykilpersónur. Leikskólakennarar eru nefnilega sérfræðingar í uppeldi- og menntun barna. Þeir hafa í sínu fimm ára námi lært margvíslegar aðferðir og leiðir til að efla og styrkja margþættan þroska barna í gegn um leik og skapandi starf þar sem áhugi barna er leiðarljósið. Það er ekkert einfalt við það þegar litið er á börn sem ólíka einstaklinga með mismunandi þarfir og áhugamál eins og gert er í leikskólum. Þar er umhverfi og aðbúnaður skipulagður með þarfir barna í huga sem og aðferðir og leiðir sem hæfa hverju barni sem mest og best.

Leikskólar eru gríðarlega mikilvægt jöfnunartæki. Þar er börnum með mismunandi félagslegan bakgrunn, börnum sem eiga íslensku sem annað mál, börnum sem eru með stoðþarfir og svo mætti áfram telja mætt á eigin forsendum. Alltaf er markmiðið að styðja við alhliða þroska og líðan svo þau upplifi sig sem hluta af hópi, að þau tilheyri og finni sig í samfélagi sem tekur örum breytingum. Leikskólar eru einnig afar mikilvægir fyrir fjölskylduvænt samfélag og jafnrétti. Þeir sjá til þess að foreldrar geti reitt sig á úrvals aðstæður barna sinna meðan þeir sjálfir sinna námi og störfum. Í erli dagsins viti þau af þeim á þroskandi stað umvafin hlýju og nærandi umhverfi góðs fagfólks. Leikskólar gera þannig foreldrum kleift að vinna úti eða vera í námi og það er gríðarlega mikilvægt kvenfrelsismál.

Ég sé það daglega í mínu starfi sem leikskólastýra hve mikilvæg starfsemi leikskóla er. Foreldrar gera að sjálfsögðu kröfur á starfsemi leikskóla og það gerir starfsfólkið einnig sjálft. Það sýnir ást og umhyggju foreldra til handa barna sinna hve umhugað þeim er um starfsemi leikskóla og þá sýn að aðeins það besta sé nógu gott. Um leið skín áhugi og vilji starfsfólks í gegn um allt starf leikskólans sem stöðugt vinnur við að gera hann að mögnuðum, áhugaverðum, skemmtilegum ævintýrastað þar sem öll börn fái notið bernsku sinnar eins og best verður á kosið. Saman gerum við öll; börn, starfsfólk og foreldrar, leikskólann að þeim frábæra sem hann er. Ég er svo lánsöm að búa í sveitarfélagi þar sem fleiri afar góðir leikskólar starfa. Leikskólar sem horft er til þegar rætt er um framúrskarandi skólastarf og þar sem ríkir mikill metnaður og vilji til að gera stöðugt betur.

Það er því mikilvægt að sanngjarnir samningar náist í kjaradeilu kennara svo börnin okkar allra fái áfram og enn betur notið góðra uppeldis- og menntaskilyrða innan um fagmenntað starfsfólk sem hlúir að því dýrmætasta sem við eigum.

Hólmfríður Jennýar Árnadóttir er leikskólastýra og oddviti Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search