Ég er í framboði fyrir loftslagið, náttúruna, ungt fólk og framtíðarkynslóðir.
Þetta eru almannahagsmunir sem fá ekki pláss í umræðunni, sem fjölmiðlar spyrja ekki út í, og hafa því ekki verið á dagskrá í þessari kosningabaráttu. Samt eru loftslagsváin og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni einar stærstu áskoranir samtímans, hvort sem litið er til umhverfismála, efnahagsmála eða félagslegs og pólitísks stöðugleika á næstu áratugum.
Það eru stjórnvöld dagsins í dag sem ráða úrslitum um hvort við náum mikilvægum alþjóðlegum markmiðum okkar í umhverfis- og loftslagsmálum eða ekki. Á þetta benti Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna nýverið. Og eftir fjóra daga fáum við Íslendingar að kjósa okkur stjórnvöld til næstu fjögurra ára. Ábyrgð næstu ríkisstjórnar og næsta þings í umhverfismálum er gríðarlega mikil.
Ég tek nú þátt í flokkspólitískum stjórnmálum í fyrsta skipti og ég ákvað að gera það á þessum tímapunkti af því að það sárvantar árangur í umhverfismálum og það sárvantar að rödd ungs fólks heyrist og hafi raunverulegt vægi við ákvarðanatöku. Ég tek þetta stökk núna, eftir að hafa verið í forystuhlutverki í náttúruverndarhreyfingunni undanfarin ár, af því að ég hef fengið að finna það í minni vinnu með Ungum umhverfissinnum að það skiptir öllu máli að hafa fólk inni á þingi sem leitar til frjálsra félagasamtaka að fyrra bragði, fólk sem hlustar á sérfræðinga í málaflokknum og sem talar rödd náttúrunnar og framtíðarkynslóða hátt og skýrt í þingsal.
Umhverfisstefna VG fékk frábæra einkunn frá Ungum umhverfissinnum í Sólinni eða 88,3 stig af 100. Ég er mjög stoltur að tilheyra hreyfingu sem hefur mikinn metnað í umhverfis- og loftslagsmálum, og ég mun halda þessari stefnu vel á lofti.
En af hverju er ég í framboði fyrir náttúruna og loftslagið? Af hverju skipta umhverfismál máli?
Umhverfismál skipta máli af því að róttækar og skjótar loftslagsaðgerðir og alvöru náttúruvernd eru líka heilbrigðismál, jafnréttismál, byggðamál, dýravelferðarmál, mannréttindamál, samgöngumál og efnahags- og velferðarmál. Þetta fléttast allt saman og árangur í þessum málaflokkum er til lengri tíma háður árangri okkar í umhverfismálum.
Ég valdi að ganga til liðs við Vinstri græn því hreyfingin er eini flokkurinn í framboði sem er með sterka samofna vinstri og græna stefnu. Ég ætla áfram að vera aktívisti þó ég hafi skipt um vettvang. Ég ætla áfram að tilheyra náttúruverndarhreyfingunni sem mér þykir svo vænt um. Og ég ætla áfram að berjast fyrir vernd íslenskrar náttúru og alvöru fjármögnuðum loftslagsaðgerðum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og tryggja lífvænlega framtíð fyrir ungt fólk og framtíðarkynslóðir.
Höfundur er oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður og sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum.