PO
EN

Tjónaskráin

Deildu 

Á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík 2023 var komið á fót tjónaskrá vegna innrásar Rússa í Úkraínu með það að markmiði að Rússar bæti það tjón sem þeir hafa valdið með hernaði sínum. Heildarfjöldi krafna í tjónaskránni eru nú um 35 þúsund talsins. Í dag var haldin málstofa á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og UNICEF á Íslandi undir yfirskriftinni „Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Úkraínu“, þar sem utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hélt opnunarræðu og sagði þá m.a. : „Ísland getur verið stolt af sínu hlutverki í þessari mikilvægu vegferð. Við erum að sjá markmið okkar frá leiðtogafundinum í Reykjavík raungerast. Rússar munu þurfa að svara fyrir sín grimmilegu og stórfelldu brot í Úkraínu, og þessi vinna er liður í því,“. Róbert Spanó er formaður stjórnar. Á fundinum í dag voru sérstaklega tekin fyrir brot sem framin hafa verið gegn börnum í Úkraínu. Í viðtali við Róbert í dag sagði hann m.a. að hann vænti þess að í auknu mæli bærust beiðnir um tjónaskráningu og þar á meðal um brottnám barna. „Við getum ekki sætt okkur við í alþjóðasamfélaginu, í siðuðum samfélögum, að ríki geti ráðist inn í önnur ríki og valdið þessu gríðarlega tjóni og manntjóni án þess að það verði afleiðingar og tjónaskráin er hluti af því verkefni“.

Það verður athyglisvert að fylgjast með því þegar tjónaskránni um Palestínu verður komið á fót. Í Palestínu hefur einnig orðið „gríðarlegt tjón og manntjón“ ,nánar tiltekið yfir 50.000 almennir borgara drepnir og þar af yfir 15.000 börn drepin. Slösuð börn eru um 34.000. Það má velta því fyrir sér, þegar tjónaskráin vegna Palestínu verður komin á koppinn, hvort notaðar verða sömu tjónabætur fyrir börn sem Rússar hafa rænt í Úkraínu og þau sem Ísraelar hafa sprengt í tætlur. Það er hugsanlega hægt að fá til baka þau börn sem Rússar hafa rænt. Svolítið öðruvísi með börnin í Palestínu, börnin sem hafa verið brennd, börnin sem hafa verið sprengd, þau sem soltið hafa til bana eða þau sem látist hafa vegna skorts á heilbrigðisþjónustu. Þetta eru atburðir sem við í alþjóðasamfélaginu, við í siðuðum samfélögum, höfum horft á í beinni útsendingu mánuðum saman án aðgerða. Ég bíð eftir frumkvæði Evrópuráðsins. Ég bíð eftir málstofunni undir yfirskriftinni: „Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Palestínu“

Steinar Harðarson, gjaldkeri VG

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search