PO
EN

Forval VGR – frá kjörstjórn

Deildu 

Á félagsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík sem haldinn var sunnudaginn 18. janúar var samþykkt að halda forval um efstu þrjá fulltrúa hreyfingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar 16. maí nk. Fyrir fundinum lágu drög að samkomulagi við Vor til vinstri og samkvæmt því er um að ræða annað, þriðja og sjötta sæti á sameiginlegum lista. 

Forvalið verður haldið með rafrænum hætti 20.–22. febrúar 2026

Samkvæmt reglum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um uppstillingu og forval sem samþykktar voru á flokksráðsfundi VG 29.-30. janúar 2021, 5. grein, er framboðsfrestur þremur vikum fyrir forval. Hann mun því renna út á miðnætti sunnudagskvöldið 1. febrúar. 

Hins vegar er einnig hægt að stinga upp á frambjóðanda með því að senda tilnefningu skriflega til kjörstjórnar fjórum vikum fyrir forval og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Nóg er að senda tilkynningu á netfang kjörstjórnar sem staðfestir móttöku framboðsins. 

Við vekjum því sérstaka athygli félaga í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á því að frestur til að tilnefna frambjóðendur rennur út á miðnætti sunnudagskvöldið 25. janúar — eða fjórum vikum fyrir áætlað forval.  

Kjörstjórn minnir á að atkvæðisbærir í forvali eru þeir sem eru skráðir félagar tíu dögum fyrir kjörfund eða upphaf kosningar, það er þann 10. febrúar. Skráðir félagar í VG geta ekki fært sig til milli svæðisfélaga/kjördæma eftir að forval er ákveðið, sbr. 7. grein laga hreyfingarinnar. 

Forvalsreglur hreyfingarinnar er að finna hér.

Unnt er að senda tilnefningar og beina spurningum á netfangið kjorstjorn@vg.is 

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search