Meðfylgjandi fréttatilkynning var birt fyrir hönd Vinstri grænna í Reykjavík eftir fund kjörstjórnar félagsins í gærkvöldi.
“Átta berjast um þrjú sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík
Átta framboð bárust í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar í vor en framboðsfrestur rann út á miðnætti 1. febrúar.
Eftirfarandi gefa kost á sér:
Auður Alfífa Ketilsdóttir, smíðakennari
Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum
Hlynur Már Ragnheiðarson, sjúkraliðanemi
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Riitta Anne Maarit Kaipainen, rekstrarstjóri
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi
Steinar Harðarson, vinnuverndarráðgjafi
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir
Forvalið fer fram með rafrænum hætti helgina 20.-22. febrúar. Frestur til að skrá sig í hreyfinguna til að taka þátt í forvalinu rennur út á miðnætti þriðjudaginn 10. febrúar.
Kosið er um þrjú efstu sæti Vinstri grænna á sameiginlegum framboðslista hreyfingarinnar og Vors til vinstri.”