PO
EN

Vinstri grænum í Reykjavík fjölgar um 20%

Deildu 

Mikil fjölgun hefur orðið í svæðisfélagi Vinstri grænna í Reykjavík undanfarið en tæplega 400 manns hafa skráð sig í félagið frá áramótum. Félagar í svæðisfélaginu eru nú um 2.500 og hefur félögum því fjölgað um tæplega 20% á undanförnum sex vikum.

Vinstri græn í Reykjavík munu bjóða fram sameiginlegan framboðslista með Vori til vinstri til borgarstjórnar í vor og halda forval til að velja sína fulltrúa á framboðslistanum helgina 20.-22. febrúar nk. Átta gáfu kost á sér í þrjú efstu sæti félagsins. Kjörskrá fyrir forvalið hefur verið lokað en atkvæðisbærir eru þeir sem voru skráðir í félagið 10 dögum fyrir upphaf kosningar.

Öflugt starf hefur verið í félaginu í aðdraganda borgarstjórnarkosninga en félagið mun halda sinn fjórða opna fund á árinu á laugardaginn kemur. Þar verður boðið upp á hraðstefnumót við frambjóðendur í forvalinu og útfærslur sameiginlegs vinnuhóps um málefni sameinaðs vinstriframboðs kynntar fyrir félögum.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search