Nú styttist í landsfund Vinstri grænna.
Vinstri græn á Suðurnesjum geta – eins og önnur svæðisfélög – tilnefnt landsfundarfulltrúa á fundinn. Allir félagar í svæðisfélaginu geta gerst landsfundarfulltrúar.
Landsfundur er æðsta vald í öllum málum hreyfingarinnar og landsfundarfulltrúar þeir einu sem hafa atkvæðarétt á fundinum. Fundurinn er að öðru leiti opinn öllum félögum.
Vinstri græn á Suðurnesjum boða hér með til félagsfundar þar sem við munum samþykkja kjörbréf landsfundarfulltrúa.
Fundurinn fer fram á Zoom miðvikudaginn 25. febrúar klukkan 20. Hlekkur á fundinn er hér.
Við hvetjum alla félaga til að vera með!
Dagskrá fundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Samþykkt landsfundarfulltrúa.
- Önnur mál.
Sjái fólk sér ekki fært að koma á fundinn en hefur áhuga á að vera landsfundarfulltrúar má senda tilnefningar á Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, stjórnarmann, í gustiab [hjá] gmail [punktur] com fyrir klukkan 20 miðvikudaginn 25. febrúar.
Nú eru spennandi tímar fram undan fyrir Vinstri græn. Fyrir liggur að við fáum nýja forystu á landsfundi, en hvorki Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður hreyfingarinnar, né Svandís Svavarsdóttir, formaður, sækjast eftir endurkjöri. Við í Vinstri grænum á Suðurnesjum viljum nýta þetta tækifæri til að þakka þeim fyrir óeigingjarnt starf sitt í þágu Vinstri grænna og fyrir félagslegu réttlæti og umhverfisvernd á Íslandi.
Seinustu árin höfum við horft upp á mikla hægrisveiflu bæði hérlendis og erlendis. Engin rödd vinstrisins né umhverfisverndar situr nú á Alþingi og því hefur aldrei verið mikilvægara að vinstrið hafi sterka rödd á sveitastjórnarstiginu!
Komum saman og vinnum að bjartari framtíð!
Stjórn Vinstri grænna á Suðurnesjum.