Ein lagabreyting barst fyrir landsfund VG, hægt er að lesa hana hér að neðan. Tillagan á að sjálfsögðu eftir að vera borin undir landsfundinn og er því enn ósamþykkt.
VIII. Flokksráð
29. grein
Flokksráð mynda aðalmenn í stjórn, þingmenn og sveitarstjórnarfulltrúar hreyfingarinnar, formenn kjördæmisráða, formenn svæðisfélaga og fulltrúar Ungra vinstri grænna og Eldri vinstri grænna. Í forföllum taka varamenn í viðkomandi trúnaðarstörfum sæti. Þó breytingar verði á setu þessara fulltrúar á þingi, í sveitarstjórnum eða trúnaðarstörfum innan hreyfingarinnarhalda halda þeir sætum sínum í flokksráði fram að næsta reglulega landsfundi.
Auk þess eru 40 flokksráðsfulltrúar og (10) 15 til vara kjörnir sérstaklega á landsfundi. Varamenn í flokksráði taka sæti í forföllum aðalmanna í þeirri röð sem þeir eru kjörnir. Einnig skal varamaður taka sæti þegar fulltrúi í flokksráði sem kjörin er samkvæmt þessari málsgrein fær einnig seturétt í flokksráði samkvæmt 1.málsgrein þessarar lagagreinar. Varaformaður hreyfingarinnar er jafnframt formaður flokksráðs.
Tillögum sem leggja skal fyrir flokksráð skal skila til stjórnar hreyfingarinnar viku fyrir fund. Fundir flokksráðs skulu vera opnir öllum félögum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Almennir félagar skulu hafa málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt.