PO
EN

Ályktanir landsfundar 2026

Deildu 

Ályktun um aðför ríkisstjórnarinnar að náttúrunni og framtíðarkynslóðum

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð, haldinn á Selfossi 7.– 8. mars 2026, mótmælir harðlega aðför umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að náttúru Íslands sem birtist meðal annars í skipulegu niðurbroti á rammaáætlun, leyfisveitingaferlum og á lögbundnu samráði við almenning og félagasamtök. Landsfundurinn krefst þess að ráðherrann hverfi af þessari braut.

Í ljósi reynslunnar krefst fundurinn þess að umhverfismálin verði aðskilin frá orkumálum og sérstakt ráðuneyti umhverfis- og loftslagsmála verði stofnað að nýju.

Landsfundurinn harmar að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi ítrekað farið gegn faglegri niðurstöðu sérfræðinga í rammaáætlun með því að færa virkjanahugmyndir úr biðflokki yfir í nýtingarflokk og úr verndarflokki í biðflokk líkt og gert var með Þjórsárver (Kjalöldu), Hamarsvirkjun og Jökulsárnar í Skagafirði. Í þeim tillögum sem ráðherra hyggst leggja fyrir þingið á næstunni er engin virkjanahugmynd í verndarflokki og er nýtingarflokkur orðinn mun stærri en tillögur verkefnisstjórnar rammaáætlunar hafa gengið út á.

Ráðherra hefur skipulega vegið að því mikilvæga stjórntæki sem rammaáætlun er með geðþóttaákvörðunum sem þjóna eingöngu hagsmunum virkjanaaðila. Það sést m.a. í rökstuðningi ráðherra fyrir breytingum frá tillögum verkefnisstjórnar rammaáætlunar, allt á kostnað einstakrar náttúru Íslands. Ráðherrann hefur með þessu veikt tiltrú sérfræðinga og almennings á rammaáætlun og þannig grafið undan tilvist hennar. Breytingar á leyfisveitingaferlum og orðræða ráðherra um að samráð geti og megi vera minna eru af sama meiði og ekkert annað en aðför að lýðræðislegri aðkomu almennings að ákvarðanatöku. Þetta eru réttindi sem eru varin með lögum og alþjóðasáttmálum eins og Árósasamningnum.

Landsfundurinn gagnrýnir einnig metnaðarleysi þegar kemur að verndun svæða í íslenskri náttúru. Ný framkvæmdaáætlun ráðherrans um friðlýsingar felur einungis í sér stækkun friðlýstra svæða á landi um 0,13% á næstu árum. Ekkert bólar heldur á áætlunum um friðlýsingar í hafi þar sem innan við 0,5% haf- og strandsvæða eru friðlýst sem verndarsvæði. Fundurinn kallar eftir alvöru náttúruverndaraðgerðum og að staðið verði við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um að 30% lands og hafs verði vernduð árið 2030. Eins verði staðið við innleiðingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Fundurinn skorar á ráðherrann að setja metnað sinn í náttúruvernd en ekki í að eyðileggja náttúru Íslands og draga þar með úr sérstöðu okkar alþjóðlega sem felst meðal annars í víðáttunni, jarðbreytileika og stórum og lítt snortnum víðernum.

Landsfundurinn leggur áherslu á að vernd víðerna, líffræðilegrar fjölbreytni, jarðbreytileika og landslags verði að nýju leiðarljós í stefnu Íslands í orku- og náttúruverndarmálum. Ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda skulu byggjast á faglegu mati og heildarhagsmunum samfélagsins til lengri tíma.

Ályktun um alþjóða-, öryggis- og friðarmál 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, áréttar mikilvægi friðar. Uggvænleg þróun alþjóðamála, vaxandi átök, mannréttindabrot og hervæðing kalla á aukna áherslu á skýra friðarstefnu, sem er ein af grunnstoðum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. 

Öryggi er sjaldan aðeins hernaðarlegt: loftslagsbreytingar, ójöfnuður, fólksflutningar og netógnir eru lykilþættir í öryggismálum samtímans. Ísland þarf að styrkja net- og upplýsingatæknilegt öryggi innviða sinna og byggja öryggisstefnu á forvörnum, alþjóðasamvinnu og friðaruppbyggingu. 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð áréttar mikilvægi alþjóðalaga, fullveldis ríkja og sjálfsákvörðunarréttar þjóða. Smáríki eiga allt sitt undir því að þessar reglur gildi í reynd og séu virtar. Ísland á að standa með þeim sem verða fyrir árásum og þrýstingi stórvelda, þar á meðal með því að styðja sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga og mótmæla tilraunum til að grafa undan stöðu Grænlands. 

Fundurinn lýsir samstöðu með grænlensku þjóðinni, krefst þess að henni sé sýnd sú virðing sem henni sem stoltri menningarþjóð ber og að sjálfsákvörðunarréttur Grænlendinga sé fortakslaus virtur.

Vinstri græn fordæma brot á alþjóðalögum og styðja rétt Úkraínumanna til sjálfsákvörðunar og réttláts friðar. Hernaður Rússlands í Úkraínu er skýrt brot á alþjóðalögum og innrásarstríð Rússa er óafsakanlegt. Vinstri græn taka undir fordæmingu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og krefjast tafarlausrar stöðvunar árásarstríðs Bandaríkjanna og Ísraels í Íran. Hreyfingin styður rétt írönsku þjóðarinnar til frelsis, mannréttinda og lýðræðis í eigin landi og krefst þess að alþjóðalög og fullveldi ríkja sé virt. Landsfundur Vinstri grænna fordæmir jafnframt að fjármunum ríkissjóðs sé varið til vopnakaupa. Í staðinn verði fjármunum varið í að styrkja borgaralega innviði.

Vinstri græn gagnrýna heimsvaldastefnu og nýlenduhneigð stórvelda og vaxandi hneigð til að draga skil milli hins vestræna heims og annarra heimshluta, þar sem vestræn menning og gildi eru talin æðri. Þessi stefna birtist helst hjá bandarískum stjórnvöldum með ítrekuðum brotum á alþjóðalögum, aðför að alþjóðasamningum, valdbeitingu gagnvart smærri ríkjum og tilraunum til að grafa undan sjálfsákvörðunarrétti þjóða eins og nýleg dæmi um Venesúela, Íran og Grænland sýna. Slík þróun grefur undan alþjóðlegu réttarkerfi, lýðræði og öryggi smáríkja og kallar á skýra afstöðu og endurmat á stöðu Íslands í breyttu alþjóðlegu landslagi. Vinstri græn árétta mikilvægi afvopnunarsamninga sem nauðsynlegt er að efla í stað þess að grafa undan. Krafan er um friðsamlegar lausnir og kjarnorkuvopnalausan heim, ekki um ný kjarnorkubandalög.

Fundurinn vísar til stefnuyfirlýsingu hreyfingarinnar um afstöðuna til aðildar að Evrópusambandinu þar sem segir að Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggi ríka áherslu á samstarf við önnur Evrópulönd en telji hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Vinstri græn ítreka mikilvægi lýðræðis í íslensku samfélagi og árétta að virða beri vilja þjóðarinnar um hvort fara skuli í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Niðurstaða aðildarviðræðna verði ávallt lögð fyrir þjóðina í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Þróun síðustu ára kallar á heildstæða endurskoðun á öryggis- og varnarmálum Íslands, þar á meðal samskiptum og samningum við helstu bandamenn, á grundvelli sjálfstæðrar hagsmunagreiningar, lýðræðislegrar umræðu og skýrra friðar- og mannréttindasjónarmiða. Fyrsta skrefið verði uppsögn varnarsamningsins við Bandaríki Norður-Ameríku frá 1951. Norræn samvinna, Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðlegt réttarkerfi eiga áfram að vera hornsteinar utanríkisstefnu Íslands. 

Norðurslóðir eiga að vera lágspennusvæði þar sem réttindi frumbyggja, sjálfbærni og náttúruvernd eru í forgrunni og alþjóðlegt samstarf byggir á friði og samvinnu. 

Sérstök ályktun um Palestínu kemur strax á eftir þessari ályktun.

Ályktun um stuðning við Palestínu 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, ítrekar stuðning við sjálfsákvörðunarrétt og sjálfstæði palestínsku þjóðarinnar. Landsfundurinn lýsir yfir skilyrðislausri samstöðu með íbúum Gaza og Vesturbakkans. Ísland ber ávallt að fordæma í hvívetna þjóðarmorð Ísraels á Gaza, stríðsglæpi og þjóðernishreinsanir og taka þar með undir niðurstöður rannsóknar Sameinuðu þjóðanna um stríðsglæpi Ísraels á Gaza. 

Vinstri græn fordæma nýlegar ákvarðanir Öryggisráðs Ísraels um að auðvelda kaup landtökufólks á landi á Vesturbakkanum. Þar með halda ísraelsk stjórnvöld áfram að styðja við ólöglegt landrán á landsvæði Palestínumanna í trássi við alþjóðalög. Þetta er enn ein árásin á réttindi Palestínumanna og styður enn frekar við virka aðskilnaðarstefnu, við ólöglegt hernám Ísraela á svæðinu og ólöglega útskúfun Palestínumanna af sínu eigin landi. Þessar aðgerðir byggjast á áratuga eignarnámi, mannréttindabrotum, kúgun og hervaldi gegn Palestínumönnum. Alþjóðasamfélagið verður að beita pólitískum og efnahagslegum aðgerðum til að binda enda á hernám og ólöglegar landtökubyggðir Ísraels í Palestínu og tryggja rétt palestínsku þjóðarinnar til sjálfstæðs ríkis. Ísland verður að vera meðal forysturíkja sem knýja á um þessar aðgerðir og fylgja þar með eftir viðurkenningu sinni á Palestínu sem sjálfstæðs ríkis. 

Landsfundurinn fordæmir að á meðan vopnahlé ríki eftir hörmulegt þjóðarmorð á íbúum Gaza, þá séu Palestínumenn ennþá drepnir á svæðinu af ísraelskum hermönnum. UNICEF áætlar að um eitt hundrað palestínsk börn hafi verið drepin af Ísraelsher í vopnahléinu frá því í október síðastliðnum. Þessu þarf tafarlaust að linna. Stjórnvöld á Íslandi eiga að krefjast þess í hvívetna að vopnahléið sé virt að fullu, að alþjóðasamningar um Vesturbakkann séu virtir og að neyðarhjálp verði komið á án allra hindrana til stríðshrjáðra á Gaza. Forkastanlegt er að íbúar á Gaza hafa verið sviptir nauðsynlegri aðstoð, læknisþjónustu og fullnægjandi mataraðstoð. Seta Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, þar sem málefni barna eru áherslumál okkar, verður að vera nýtt til að tala máli barna sem búa við stríðsástand og við eftirköst hryllilegs hernaðar líkt og í Palestínu.

Ísland á að nota rödd sína á alþjóðavettvangi til að tala fyrir því að ríki heims og þá sérstaklega samstarfsríki okkar á Vesturlöndum, láti af öllum stuðningi og samstarfi við Ísrael og beiti öllum tiltækum ráðum, svo sem mögulegum refsiaðgerðum til að knýja Ísrael til að láta af glæpaverkum sínum. Jafnframt sýni Ísland frumkvæði eftir því sem tök eru á eins og þegar hefur verið gert varðandi Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. 

Draga verður þá til ábyrgðar sem bera ábyrgð á þjóðarmorði, mannréttindabrotum og stríðsglæpum. Vinstri græn styðja við málaferli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir þjóðarmorð og glæpi við Alþjóðadómstólinn í Haag (ICJ) og við málaferli yfir forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Ísraels hjá Alþjóðaglæpadómstólnum (ICC). Íslandi ber að bjóða fram aðstoð sína til palestínskra stjórnvalda í þessum málaferlum. Landsfundurinn áréttar líka að íslensk stjórnvöld standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar gagnvart flóttafólki frá Palestínu sem leitar stuðnings og verndar. 

Það er komin tími til að Palestínumenn ákvarði sína eigin framtíð. Það styður Vinstri hreyfingin – grænt framboð heilshugar og mun ávallt gera. 

Ályktun um bakslag í mannréttindamálum 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7. – 8. mars 2026, harmar bakslag í mannréttindum sem birtist með ýmsum hætti hér á landi og víðar.  

Helstu merki um bakslagið má sjá í samfélagslegri umræðu þar sem kynþáttafordómar gegn fólki af erlendum uppruna hafa farið vaxandi sem og fordómar gegn hinsegin fólki, gegn konum og stúlkum og fötluðu fólki.  

Bakslagið hefur líka náð inn í opinbera umræðu og verið hluti af orðræðu stjórnmálafólks og færst alla leið inn í sali Alþingis þar sem merkja má verulega afturför í málflutningi og tillögum kjörinna fulltrúa þegar kemur að sjálfsögðum mannréttindum. Það er ólíðandi og því ber að mótmæla.  

Landsfundurinn áréttar nauðsyn þess að stjórnvöld stígi mun fastar inn í þessa þróun. Þau eiga að tala skýrt og beita sér af öllu afli gegn hvers kyns hnignun í mannréttindum á tímum þegar vegið er að þeim úr öllum áttum eins og aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur nýlega sagt í opinberri yfirlýsingu.  

Landsfundurinn telur þessa afturför dapurlega og hættulega enda hefur hreyfingin ávallt staðið með mannréttindabaráttu minnihlutahópa, unnið markvisst að því í störfum kjörinna fulltrúa hennar og oft ályktað þar um. Helst ber að nefna aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu, framkvæmdaáætlun í kynjajafnrétti og aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks sem allar voru bornar upp af ráðherrum Vinstri grænna og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar sem borgarfulltrúar Vinstri grænna fóru fyrir.  

Fjölbreytileiki er styrkur hvers samfélags og fólk sem flytur til Íslands á ávallt að fá sömu tækifæri og aðrir íbúar þegar kemur að atvinnu, húsnæðisöryggi og tryggri heilbrigðisþjónustu, jafnt sem opinberan félagslegan stuðning og menntun.   

Fordómar sem beinast meðal annars gegn uppruna, trúarbrögðum, kyni eða kynhneigð mega ekki vera liðnir í íslensku samfélagi, hvað þá hatursfull orðræða gagnvart innflytjendum eða öðrum minnihlutahópum.  

Landsfundurinn áréttar að fræðsla til allra þjóðfélagshópa er lykillinn að því að útrýma fordómum og kallar eftir því að yfirvöld stígi fram, sýni fordæmi og sporni afdráttarlaust gegn fordómum í íslensku samfélagi.  

Landsfundurinn áréttar einnig stuðning sinn við hinsegin samfélagið.

Ályktun um áherslur Vinstri grænna í sveitarstjórnarmálum 2026 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7. – 8. mars 2026, ályktar að sveitarfélög landsins eigi að vera í fararbroddi í baráttu fyrir réttlátu, sjálfbæru og lýðræðislegu samfélagi. Sveitarfélög eru það stjórnsýslustig sem stendur íbúum næst og þar þarf að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu, raunverulega þátttöku íbúa og félagslegt réttlæti í daglegu lífi. 

Vinstri græn leggja áherslu á að lýðheilsa og lýðheilsuvísar verði í auknum mæli notaðir sem mælikvarðar á hagsæld samfélaga. Heilsa, vellíðan, húsnæðisöryggi, félagsleg tengsl og aðgengi að nærumhverfi skulu vera leiðandi við stefnumótun og forgangsröðun verkefna. 

1. Barnvæn og réttlát sveitarfélög 
Tryggja skal samfellda og miðlæga þjónustu fyrir íbúa þar sem menntun, frístundir og félagsþjónusta vinna saman að velferð þeirra. Lögð verði sérstök áhersla á fjölmenningu, forvarnir, andlega heilsu og öflugt starfsumhverfi þeirra sem sinna uppeldis- og velferðarstörfum. Skýr krafa er að leikskólastigið verði lögfest sem fyrsta skólastig og því fylgi fjármagn frá ríkinu. 

2. Sjálfbært skipulag og húsnæði í almannaþágu 
Skipulag byggðar skal byggjast á lífsgæðum, vernd grænna svæða og loftslagsmarkmiðum. Uppbygging á að þjóna íbúum, með áherslu á góð birtuskilyrði, hljóðvist, loftgæði og greiðan aðgang að útivistarsvæðum. Tryggja þarf fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði, efla almennan leigumarkað og verja almannahagsmuni gagnvart gróðasjónarmiðum fjárfesta. Lýðheilsa og félagsleg áhrif skulu ávallt höfð að leiðarljósi við skipulagsákvarðanir. 

3. Lýðræði og mannréttindi í verki 
Auka skal raunverulega þátttöku íbúa, þar á meðal barna og ungmenna, í stefnumótun og ákvarðanatöku. Stjórnsýsla sveitarfélaga skal einkennast af gagnsæi, þjónandi forystu og félagslegu réttlæti. Efla skal lýðheilsu– og íbúaráð sveitarfélaga og styrkja leiðbeiningaskyldu og aðhaldshlutverk þeirra, sérstaklega á sviði skipulags- og byggðamála. 

4. Menning og samvera sem grunnur samfélags 
Sveitarfélög skulu efla menningu, listir og samverurými sem hjarta samfélagsins og tryggja aðgengi að félagsheimilum, bókasöfnum og skapandi starfsemi. Menning er bæði samfélagsauður og efnahagsleg auðlind. 

5. Náttúruvernd, endurheimt vistkerfa, loftslagsaðgerðir og sjálfbær framtíð 
Náttúran er ekki fórnarkostnaður í nafni uppbyggingar heldur grunnur að lífsgæðum, lýðheilsu og framtíðarhagsæld. Sveitarfélög skulu vera í fararbroddi í loftslagsmálum, draga markvisst úr losun, vernda land og endurheimta vistkerfi. Innleiða skal hringrásarhagkerfi og efla grænar samgöngur með virkri þátttöku íbúa.

Ályktun um réttláta og græna hagstjórn og uppbyggingu félagslegra innviða

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, lýsir yfir þungum áhyggjum af bágri efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar. Aðferðafræði hennar í baráttunni við verðbólgu hefur gert illt verra með þeim afleiðingum að atvinnuleysi vex samhliða þrálátri verðbólgu. Ríkisstjórnin keyrir áfram aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum sem sveltir velferðar- og menntakerfið og vegur þannig að grunnstoðum samfélagsins. Það kemur illa niður á jafnt launafólki sem lífeyrisþegum. Stjórnmálaflokkarnir á Alþingi keppast við að toppa hver annan með efnahagsstjórn í anda nýfrjálshyggju og kalla eftir frekari niðurskurði og eyðileggingu fremur en uppbyggingu sem setur fólk og samfélag í forgang. Þetta undirstrikar hversu óviðunandi það er að Alþingi skuli nú um stundir vera þannig samansett að þar tala engar raddir fyrir róttækum sjónarmiðum í efnahagsmálum og hagstjórn. Þekkt er að of hröð niðurgreiðsla skulda eftir að efnahagsáföll eru um garð gengin getur beinlínis skaðað mikilvæga samfélagsinnviði svo sem heilbrigðis-, félags- og menntakerfið og haft langvarandi skaðleg áhrif. 

Landsfundurinn harmar að ríkisstjórninni hafi mistekist að ná niður verðbólgu. Raunveruleg hætta er á að forsendur kjarasamninga geti brostið í haust því enn ríkir þrálát verðbólga, hátt vaxtastig og við hefur bæst vaxandi atvinnuleysi. Stjórnvöld hafa ekki haldið aftur af gjaldskrárhækkunum, þær hafa verið illa tímasettar og verðhækkanir orðið hjá fyrirtækjum. Allt viðheldur þetta hárri verðbólgu og háu vaxtastigi með alvarlegum afleiðingum fyrir skuldsett heimili og leigjendur. Auðvelda þarf lágtekju- og millitekjuhópum að komast í gegnum það hávaxtatímabil sem nú stendur yfir meðal annars  með markvissum aðgerðum í skattamálum, með því að stöðva niðurskurð til heilbrigðiskerfisins og huga að framtíðinni með fjárfestingu í grænum lausnum. Stjórnvöld verða að halda áfram þeirri vegferð að útrýma launamun kynjanna. Það er réttlætismál en einnig mikilvæg breyta í efnahagsstjórninni sem er grundvöllur þess að ná og viðhalda stöðugleika á vinnumarkaði.

Landsfundurinn minnir ríkisstjórnina á skuldbindingar hennar gagnvart kjarasamningum, ekki síst sem lúta að því að verja barnafólk og að takast á við húsnæðisvandann. Þak yfir höfuðið er mannréttindamál, en líka risastórt kjaramál sem mikil áhrif hefur á verðbólgu. Áform ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í húsnæðismálum duga skammt og fundurinn kallar eftir sameiginlegu átaki ríkis, sveitarfélaga, verkalýðshreyfingarinnar, óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga og byggingargeirans með félagsleg gildi að leiðarljósi til að tryggja stöðugleika í húsnæðismálum fyrir komandi kynslóðir.

Landsfundurinn kallar eftir efnahagsstefnu sem setur velferð fólks og umhverfismál í forgrunn. Byggja þarf efnahagsstjórnina á velsældarmælikvörðum sem meta hagsæld, félagslegan auð, kynjasjónarmið og loftslagsmarkmið en ekki eingöngu hagvöxt. Í tíð ríkisstjórnar Vinstri grænna var slíkum mælikvörðum komið á en þeir geta lagt grunn að skilvirku, réttlátu og grænu skattkerfi sem stuðlar að jöfnuði. Aðgerðir í skattamálum eiga að þjóna markmiðum um öflugt velferðarsamfélag, aukinn jöfnuð og önnur samfélagsleg markmið, svo sem í umhverfismálum, lýðheilsu og byggðamálum. 

Landsfundurinn kallar eftir því að skattheimta beinist að breiðu bökunum sem geta látið meira af hendi rakna til samfélagsins og minnir á stefnu Vinstri grænna um að innleiða skuli hóflegan auðlegðarskatt á eignir einstaklinga að undanskildu eigin íbúðarhúsnæði og einnig þrepaskiptan fjármagnstekjuskatt. Þá er mikilvægt að standa vörð um þrepaskiptingu tekjuskatts en huga að því að skattprósentan á ofurtekjur verði umtalsvert hærri. Fjöldi rannsókna sýna að aukinn ójöfnuður dregur úr hagvexti og vinnur gegn félagslegum stöðugleika í samfélaginu. Þá kallar fundurinn eftir því að skattkerfinu verði í meira mæli beitt í þágu grænna skattaívilnana sem nýtast til að ná markmiðum í umhverfis- og náttúruverndarmálum, aukinni fjárfestingu í grænum innviðum og nýfjárfestingum sem skila munu auknu samkeppnisforskoti og grænum hagvexti. Fjármagnstekjuskattur eða eins konar ígildi útsvars á að renna til sveitarfélaga sem fá ekki tekjur af þeim sem eingöngu greiða fjármagnstekjuskatt. 

Vinstri græn munu berjast fyrir félagslegum mótvægisaðgerðum gegn dýrtíð, raunverulegri styrkingu almannaþjónustu og að velferð fólks sé forgangsraðað fram yfir hagsmuni fjármagnsafla. Landsfundurinn hafnar einhliða aðhaldsstefnu í ríkisfjármálum undir forystu Samfylkingarinnar og kallar eftir félagslegri efnahagsstjórn sem setur þarfir almennings í fyrirrúm og ýtir undir fjárfestingu í umhverfismálum.

Ályktun um aðför ríkisstjórnarinnar að atvinnuleysistryggingakerfinu 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, mótmælir harðlega aðför ríkisstjórnarinnar að atvinnuleysistryggingakerfinu. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp þar sem gert er ráð fyrir nærri helmings styttingu á þeim tíma sem fólk hefur rétt á atvinnuleysisbótum, auk þess sem ávinnslutímabil réttinda er lengt.

Í núverandi kerfi er almennur réttur til atvinnuleysisbóta 30 mánuðir en frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra, sem hann mælti fyrir á Alþingi í janúar síðastliðnum, gerir ráð fyrir styttingu í 18 mánuði. Sú stytting kæmi sérstaklega illa niður á atvinnulausu fólki þegar atvinnuleysi er mikið og erfitt er að fá vinnu. Enn fremur mun lenging ávinnslutímabilsins leiða til þess að fólk getur staðið uppi réttindalaust þrátt fyrir að vera virkt á vinnumarkaði. 

Samþykkt þessa lagafrumvarps yrði mikið óheillaskref og alvarleg skerðing á mikilvægum réttindum launafólks, réttindum sem náðust í gegnum kjarasamninga að undangenginni mikilli baráttu. Það er einnig óviðunandi að ríkisstjórnin keyri áfram breytingar á atvinnuleysistryggingum án samráðs við verkalýðshreyfinguna, sem hefur gagnrýnt áformin harðlega og sagt þau illa rökstudd. Ljóst er að markmið ríkisstjórnarinnar er aðeins niðurskurður, en um leið er byrðunum velt yfir á sveitarfélögin þar sem réttindalaust fólk sem fær ekki vinnu mun þurfa að leita til þeirra um framfærslu.

Það er mikið áfall að missa vinnuna og mikilvægt að stuðningskerfi í velferðarsamfélagi okkar grípi fólk og styðji það fjárhagslega meðan það kemur undir sig fótunum á ný á vinnumarkaði. Því hvetja Vinstri græn félags- og húsnæðismálaráðherra til að stórauka stuðning Vinnumálastofnunar við atvinnuleitendur á fyrstu mánuðum atvinnumissis til að draga úr líkum á langtímaatvinnuleysi og örorku.

Ályktun um heilbrigðismál 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, áréttar að heilbrigðiskerfið er ein af burðarstoðum samfélagsins. Heilbrigðisþjónusta er félagslegt réttlætismál og aðgangur að henni eru mannréttindi sem þarf að tryggja. Þar á fólk að finna öryggi, fagmennsku og virðingu alla ævi, óháð efnahag, búsetu eða stöðu. 

Staða Landspítala kallar á afgerandi aðgerðir. Þrengsli, álag og mannekla hafa áhrif á öryggi sjúklinga og vinnuaðstæður starfsfólks. Áralangur skortur á fjárfestingu í innviðum heilbrigðiskerfisins hefur safnast upp. Vinstri græn styðja markvissa og varanlega uppbyggingu Landspítala með auknu fjármagni, bættum aðbúnaði og skýrri langtímaáætlun um þjónustu, húsnæði og mannafla. Hugað verði sérstaklega að óviðunandi stöðu á bráðamóttöku Landspítala bæði að því er varðar aðstæður starfsfólks og sjúklinga.

Heilsugæslan er lykillinn að traustu heilbrigðiskerfi um allt land. Sterk heilsugæsla dregur úr álagi á bráðaþjónustu og jafnar aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og efnahag. Vinstri græn vilja efla heilsugæsluna með fjölgun fagstétta og stöðugilda, bættum starfsskilyrðum og sterkari teymisvinnu. 

Menntun og mönnun allra fagstétta á heilbrigðissviði verður að vera í forgangi. Markvissar aðgerðir þurfa að tryggja mönnun, sérstaklega á landsbyggðinni. Til þess þarf að fylgja eftir heilbrigðisstefnu til 2030 og ekki síst því skýra markmiði hennar að grunnmenntun heilbrigðisstarfsfólks sé löguð að íslenskum aðstæðum til að tryggja mönnun. Færa ber heilsugæslunni skýrara rannsóknarhlutverk og styrkja hlutverk hennar í kennslu verðandi heilbrigðisfagfólks. Skilgreina þarf aðra þjónustu en heilsugæsluþjónustu sem nærþjónustu í öllum heilbrigðisumdæmum. Sérstök áhersla skal lögð á markvissa styrkingu Sjúkrahússins á Akureyri sem svæðissjúkrahúss og öflugan stuðning við Landspítala, meðal annars með hliðsjón af hlutverki spítalans í almannavörnum og viðbragðsgetu heilbrigðiskerfisins á landsvísu. 

Heilsa ræðst líka af aðstæðum fólks í daglegu lífi. Ójöfnuður í tekjum, húsnæði, vinnuaðstæðum og aðgengi að þjónustu birtist sem ójöfnuður í heilsu. Vinstri græn vilja setja forvarnir, geðheilbrigði, heilsueflingu og endurhæfingu í forgang, styrkja lýðheilsustarf sveitarfélaga og byggja nærumhverfi sem styður fólk í heilbrigðum lífsháttum. Aðgerðir gegn félagslegum ójöfnuði eru um leið aðgerðir í þágu betri heilsu. 

Þjónusta við eldra fólk þarf að vera fjölbreytt, mannleg og sveigjanleg. Réttur til mannsæmandi lífs á efri árum er réttlætismál. Vinstri græn leggja áherslu á eflingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu svo fólk geti búið lengur heima við öryggi, 
sveigjanleg dagþjálfunarúrræði og virkniúrræði sem styðja við lífsgæði og félagsleg tengsl. Jafnframt leggja Vinstri græn áherslu á markvissa uppbyggingu á færni og sjálfstæði sem lykilforsendum persónulegs öryggis og sjálfstæðrar búsetu, 
heildstæða nálgun þar sem heilbrigðis- og félagsþjónusta vinna saman, fjölgun hjúkrunarrýma og möguleika á að geta nýtt fleiri en eitt úrræði. 

Sérstök athygli þarf að beinast að vaxandi hópi fólks með heilabilun og aðstandendum þeirra. Þar þarf uppbyggingu á þjónustu, snemmtæka greiningu, stuðning við aðstandendur og raunveruleg úrræði í nærumhverfi fólks.

Sérstök athygli þarf að beinast að vaxandi hópi fólks með heilabilun og aðstandendum þess. Þar þarf uppbyggingu á þjónustu, snemmtæka greiningu, stuðning við aðstandendur og raunveruleg úrræði í nærumhverfi fólks.

Einnig þarf að beina sérstakri athygli að betri samþættingu og samhæfingu geðheilbrigðisþjónustu og þá sérstaklega „gráu svæðunum“. Má þar nefna geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með taugaþroskaraskanir og fjölþættan vanda  eins og geð- og fíknivanda. Bregðast þarf við langvarandi skorti á meðferðarúrræðum fyrir börn sem glíma við fíknivanda. Öll þessi þjónusta á að vera á vegum hins opinbera.

Vinstri græn standa með opinbera heilbrigðiskerfinu og fagfólkinu sem heldur því uppi. Heilbrigðiskerfi sem byggir á sameiginlegri ábyrgð og samtryggingu er forsenda félagslegs öryggis og jafnréttis. Uppbygging kerfisins krefst pólitísks vilja, stöðugs fjármagns og þess að hagsmunir fólks og samfélags vegi þyngra en skammtímasjónarmið í fjárlögum. Heilbrigðiskerfinu má ekki þröngva inn í ramma aðhaldsstefnu þegar þörfin eykst með hraðri fólksfjölgun og öldrun þjóðarinnar. 

Heilbrigðiskerfið á að þjóna fólkinu í landinu. Það er hjartað í almannaþjónustunni. 

Ályktun um auknar fjárveitingar til háskólanna

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, krefst þess að ríkisstjórnin auki fjárveitingar til háskóla á Íslandi og rannsóknasjóða. Íslenskir háskólar eru umtalsvert verr fjármagnaðir en háskólar á hinum Norðurlöndunum. Til dæmis sýnir nýjasti samanburðurinn frá árinu 2024 að fjárveiting til Háskóla Íslands ætti að vera meira en sex milljörðum hærri, eða 20%, en hún er fyrir árið 2026.   

Öflugt háskólanám og kraftmiklar rannsóknir eru undirstaða velsældar hvers samfélags. Vinstri græn skora á háskólaráðherra að leggja fram fjármögnunaráætlun með það að markmiði að háskólar á Íslandi standi jafnfætis öðrum háskólum á Norðurlöndum. Sterkir háskólar efla lýðræðislega umræðu, tryggja hátt menntunarstig, öflugt rannsóknastarf og nýsköpun og skila þannig nýjum hugmyndum, samkeppnishæfara atvinnulífi og meiri farsæld og vexti samfélagsins alls. Grundvöllur alls þessa er sjálfstæði háskólanna og akademískt frelsi þeirra.

Landsfundurinn minnir á að háskólanám er mikilvægt jöfnunartæki í samfélaginu en jafnt aðgengi að námi er réttlætismál. Því mótmælir landsfundurinn hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla og ítrekar stefnu Vinstri grænna um gjaldfrjálsa menntun. Stórt skref var stigið í tíð ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur með afnámi skólagjalda við Listaháskóla Íslands en það hafði verið baráttumál okkar Vinstri grænna lengi. Með frekari fjárveitingum til háskólanna má líka auka og auðvelda aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi en þar er um stórt hagsmuna- og réttindamál að ræða. 

Ályktun um innflytjendur og fólk á flótta 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, áréttar að börn skuli aldrei sæta frelsissviptingu vegna stöðu sinnar í útlendingakerfinu. Vistun barna, með eða án foreldra, í varðhalds- eða brottvísunarbúðum án dóms og laga er óásættanleg, brýtur gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og grundvallarreglum réttarríkisins. Mannréttindastjóri Evrópuráðsins hefur nýverið varað sérstaklega við slíkum úrræðum. Sú staðreynd að íslensk stjórnvöld þurfi á slíkri áminningu að halda sýnir að þau eru að fjarlægjast grunnviðmið mannúðar og mannréttinda. 

Ríkisstjórnin hefur í vaxandi mæli mótað útlendingastefnu út frá hörku, fælingu og tortryggni, í keppni við aðra stjórnmálaflokka um að sýna óbilgirni. Í þeirri viðleitni er verið að missa sjónar á grundvallaratriðum: Að börn eru ekki stjórnsýslumál, mannréttindi eru ekki stjórntæki og réttarríkið á ekki að veraháð skammtíma-sjónarmiðum.  

Mannréttindi eru algild. Alþjóðleg vernd snýst um mannréttindi en ekki náð sem má veita og afturkalla eftir hentugleika. Þegar vernd er skilyrt og réttindi eru afturkallanleg er verið að grafa undan sjálfum kjarna mannréttindahugsjónarinnar. Brot einstaklinga verði leyst með almennum lögum og aðferðum réttarríkisins en ekki með því að gera stöðu heilla hópa ótrygga. 

Landsfundurinn hafnar hugmyndum ríkisstjórnarinnar um að senda brotlega útlendinga til svokallaðs þriðja ríkis. Slík nálgun felur í sér tilfærslu ábyrgðar frá íslenskum stjórnvöldum til annarra ríkja og byggir á þeirri hugsun að hægt sé að flytja „erfið mál“ úr landi í stað þess að axla ábyrgð á réttlátri og mannúðlegri málsmeðferð. Hún endurspeglar alþjóðlegt valdaójafnvægi þar sem auðugri ríki leitast við að færa byrðar yfir á önnur ríki. Það er á ábyrgð Íslands að tryggja mannréttindi og réttláta málsmeðferð og sú ábyrgð verður ekki framseld. 

Stóra spurningin er ekki hversu margir koma heldur hvernig við tökum á móti fólki. Móttaka, inngilding og íslenskukennsla eru lykilforsendur farsæls samfélags. Aðgreining barna eftir uppruna í skólum skapar „við“ og „þau“ og grefur undan samheldni. Öflug íslenskukennsla, jöfn réttindi á vinnumarkaði og mannúðleg málsmeðferð eru grunnur að þátttöku, öryggi og trausti. 

Vinstri græn hafna þeirri pólitísku línu að útlendingamál séu vettvangur fyrir keppni í óbilgirni. Slík stefna gerir samfélagið hvorki öruggara né réttlátara. Samfélag sem stendur vörð um mannréttindi, vernd barna og raunverulega inngildingu er sterkara og réttlátara samfélag.

Ályktun um stafrænt sjálfsforræði Íslands og gervigreind 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, áréttar að gervigreind er ekki hlutlaus tækni heldur afl sem hefur djúpstæð áhrif á völd, störf, menningu, náttúru og lýðræðislega umræðu. Þróun og innleiðing gervigreindar er að stórum hluta í höndum alþjóðlegra stórfyrirtækja sem lúta takmörkuðu lýðræðislegu aðhaldi, ef einhverju, á sama tíma og samfélög bera kostnað í formi aukinnar orkunotkunar, áhrifa á náttúru, röskunar á vinnumarkaði og tilfærslu valds yfir merkingu og orðræðu. 

Vinstri græn telja stafrænt sjálfsforræði Íslands krefjast þess að farið verði í uppbyggingu opinbers, íslensks þekkingargrunns sem byggir á íslensku máli, hugtökum og gögnum um íslensk lög, stjórnskipan og samfélagsgerð fyrir gervigreind í samstarfi við háskóla, stofnanir og málsamfélag. 

Á sama tíma áréttar landsfundurinn að sjálfvirka ákvarðanatöku um réttindi og skyldur má aldrei líða og nýting gervigreindar í opinberum kerfum, ef til hennar kemur, verður að lúta skýrum kröfum um gagnsæi og mannlega ábyrgð. 

Það er skýlaus krafa að ávinningur af gervigreind nýtist samfélaginu í heild með samfélagsheill og vernd réttinda launafólks að leiðarljósi. Lýðræðislegt regluverk á ekki aðeins að draga úr neikvæðum áhrifum tækninnar heldur einnig að hlúa markvisst að jákvæðri, skapandi og samfélagslega gagnlegri nýtingu hennar, meðal annars í menntun, rannsóknum, opinberri þjónustu og eflingu íslenskrar tungu. 

Jafnframt krefjast Vinstri græn aðgerða gegn misnotkun gervigreindar í upplýsingaóreiðu, sjálfvirkri áróðursgerð og stafrænu eftirliti sem ógnar fjölmiðlafrelsi, kosningum og lýðræðislegri umræðu. Tækniblindri bjartsýni og einfaldri tækniandúð er hafnað. Hreyfingin styður lýðræðislega, vistvæna og réttláta tækniþróun þar sem mannleg reisn, tungumál, menning, höfundar- og sæmdarréttur, náttúra og samfélagslegt sjálfsforræði ganga fyrir hagsmunum stórfyrirtækja. 

Ályktun um gagnaver

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, leggur ríka áherslu á að gagnaver og önnur orkufrek starfsemi sem reist er á Íslandi lúti ströngu umhverfismati, tryggu eftirliti, skýrum kröfum um hófsama orku- og vatnsnotkun, takmörkunum á mögulegri staðsetningu og hafi skýran samfélagslegan ávinning. Vinstri græn telja jafnframt rétt að gera hlé á gagnaversverkefnum þar til heildstætt og lýðræðislega mótað regluverk liggur fyrir. Í því samhengi er jafnframt brýnt að eigendastefna um Landsvirkjun takmarki fyrir sitt leyti hverjir geti reist  og átt gagnaver á Íslandi og hvaða gögn yrðu í þeim geymd. Nýting gagnavera, vinnsla innan þeirra og eðli þess efnis sem þau geyma þarf að vera undir ströngu opinberu eftirliti.

Ályktun vegna frumvarps um lagareldi

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, leggur áherslu á að vernd líffræðilegrar fjölbreytni og villtra laxastofna verði leiðarljós í stefnumótun um fiskeldi á Íslandi. Reynslan sýnir að opið sjókvíaeldi getur haft alvarleg áhrif á vistkerfi vegna meðal annars laxalúsar, smitsjúkdóma, erfðablöndunar við villta laxastofna og slysasleppinga. Landsfundurinn telur að Ísland eigi að leggja áherslu á uppbyggingu sjálfbærs lagareldis sem byggir á landeldi og lokuðum eldiskerfum í stað opins sjókvíaeldis.

Við mótun löggjafar um lagareldi leggur landsfundurinn til grundvallar að ekki verði gefin út ný leyfi fyrir opnu sjókvíaeldi á Íslandi á svæðum þar sem þau hafa ekki verið leyfð og eldi í opnum sjókvíum verði fært í lokaðar kvíar í áföngum. Þá verði viðurlög við slysasleppingum hert og mótuð verði bindandi stefna um uppbyggingu lokaðra og vistvænni eldiskerfa. Einnig verði friðunarsvæði lögfest og undanþágur fyrir eldi á slíkum svæðum felldar brott. Loks verði fallið frá ákvæðum um svokallaðan laxahlut þar sem slíkt fyrirkomulag felur í sér ígildi eignarréttar yfir sameiginlegri náttúruauðlind.

Ályktun um samgönguáætlun

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, gagnrýnir harðlega verklag við gerð nýrrar samgönguáætlunar. Sveitarfélög, landshlutasamtök þeirra, fyrirtæki og íbúar landsins þurfa að geta byggt ákvarðanir og framtíðarsýn á áætlunum á borð við samgönguáætlun.

Eðlilegt og réttmætt er að gera kröfu um fyrirsjáanleika í gerð langtímaáætlana sem ná yfir áratugi. Óverjandi er að verkefni á framkvæmdahluta áætlunarinnar séu strokuð út án rökstuðnings. Það er óábyrg meðferð á fjármunum ríkis og sveitarfélaga að verja verulegum fjárhæðum í rannsóknir og undirbúning framkvæmda sem síðan eru blásnar af án fyrirvara.

Áætlanir af þessu tagi verða að vera unnar faglega, á breiðum grunni og með skýra framtíðarsýn. Íbúar landsins eiga að geta treyst því að ekki verði hvikað frá þeim nema í algerum og þá vel rökstuddum undantekningartilfellum.

Geti hver nýr ráðherra kastað fyrri áætlunum fyrir róða glatast sá fyrirsjáanleiki og öryggi sem sveitarfélög, fyrirtæki og íbúar þurfa til að byggja upp eigin framtíðaráætlanir.

Ályktun um atvinnulýðræði

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, ályktar að þingsályktunartillaga um atvinnulýðræði á Íslandi sem lögð var fram á 152. löggjafarþingi af þingflokki Vinstri grænna nái fram að ganga. Sú tillaga snýst um að launafólk fái aukin áhrif á vinnustöðum.

Stjórnmálaályktun landsfundar Vinstri grænna 2026 

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 7.– 8.  mars 2026, áréttar að erindi Vinstri grænna er brýnna en nokkru sinni. Í heimi vaxandi skautunar, bakslags í mannréttindum, versnandi alþjóðlegra átaka, loftslagsvár og vaxandi ójöfnuður berjast Vinstri græn áfram fyrirréttlæti, friði, jafnrétti, félagslegu öryggi og vernd náttúrunnar. Standa þarf fast gegn öflum sem veikja lýðræðislega innviði, grafa undan félagslegu réttlæti og gera sameiginleg gæði að söluvöru. 

Söguleg niðurstaða Alþingiskosninganna 2024 breytir ekki því grundvallarhlutverki Vinstri grænna að vera skýr, sjálfstæð og óhrædd vinstri rödd í íslenskum stjórnmálum. Þvert á móti eykst ábyrgð hreyfingarinnar þegar vald hefur færst til afla sem ýta undir markaðsvæðingu og einkavæðingu, opna fyrir aukna gróðasókn í sameiginlegar auðlindir og slaka á kröfum í loftslags- og mannréttindamálum. 

Náttúruvernd, auðlindir og orkustefna 

Landsfundurinn fordæmir atlögu nýrrar ríkisstjórnar að rammaáætlun, náttúruvernd og verndarsjónarmiðum í umhverfislöggjöf. Slík stefna þjónar skammtímahagsmunum fárra á kostnað almannahagsmuna og framtíðar kynslóða. Vinstri græn munu standa fast gegn markaðsvæðingu náttúrunnar, verja friðlýsingar og vinna markvisst að Hálendisþjóðgarði og verndarsvæðum í hafi. Vinstri græn krefjast þess að öll ný orkunýting þjóni fyrst og fremst orkuskiptum innanlands og samfélagslegum þörfum en ekki gróðasókn einkaaðila. 

Loftslagsmál, orkuskipti og aðlögun 

Loftslagsbreytingar eru eitt stærsta réttlætis- og öryggismál samtímans. Tafir, hálfkák og undanlátssemi gagnvart skammtímahagsmunum bitna fyrst og fremst á ungu fólki, tekjulægri hópum og komandi kynslóðum. 
 
Vinstri græn krefjast raunverulegra fjármagnaðra aðgerða í loftslagsmálum með skýrum, tímasettum markmiðum um samdrátt í losun, hraðari orkuskiptum í samgöngum og atvinnulífi. Tryggja þarf réttlát umskipti þar sem byrðunum er dreift með sanngjörnum hætti. 

Jafnframt leggja Vinstri græn áherslu á vandlega útfærða aðlögun samfélagsins að loftslagsbreytingum. Huga þarf að vernd vistkerfa, styrkingu innviða gegn ofanflóðum, rofi og öfgaveðrum, og skipulagi byggðar sem tekur mið af breyttum aðstæðum. Loftslagsaðgerðir verða að fara saman við náttúruvernd og lýðræðislega ákvarðanatöku en ekki flýtimeðferð sem fórnar verndarsjónarmiðum. 

Velferð, verðbólga og almannaþjónusta 

Landsfundurinn hafnar aðhaldsaðgerðum sem fela í sér markaðsvæðingu og einkavæðingu velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfisins. Slíkar aðgerðir auka ójöfnuð, veikja traust á kerfum sem eiga að þjóna öllum og færa áhættu frá kerfinu yfir á fólk. 
Vinstri græn munu berjast fyrir félagslegum mótvægisaðgerðum gegn dýrtíð, raunverulegri styrkingu almannaþjónustu og skýrri forgangsröðun velferðar fram yfir hagsmuni fjármagnsafla. 

Byggðamál, húsnæði og samgöngur 

Landsfundurinn áréttar að jöfn búsetuskilyrði, öflug almannaþjónusta og traustir innviðir um land allt eru grundvallarþættir í félagslegu réttlæti og sjálfbæru samfélagi. 
Vinstri græn munu beita sér fyrir markvissri byggðastefnu sem styrkir dreifðar byggðir, tryggir stafræna innviði, styður við fjölbreytt atvinnulíf og verndar samfélagslegar stoðir um allt land. 

Vinstri græn hafna því að húsnæðismarkaðurinn sé látinn þróast sem braskmarkaður fyrir fjármagnseigendur. Tryggja þarf félagslegt húsnæði og raunverulega vernd leigjenda sem hluta af grunnvelferð samfélagsins. 

Jafnframt munu Vinstri græn berjast fyrir öflugum, aðgengilegum og umhverfisvænum samgöngum með uppbyggingu almenningssamgangna, öruggum samgöngum innan og milli sveitarfélaga og forgangsraða lausnum sem draga úr losun. Brýnt er að íbúar búi við fyrirsjáanleika að því er varðar stærri framkvæmdir og áform um þær. Þar bera stjórnvöld mikla ábyrgð. 

Lýðræði, sjálfstæði og alþjóðasamskipti 

Landsfundurinn gagnrýnir linku og eftirgjöf í samskiptum við Bandaríkin og krefst sjálfstæðrar, friðarsinnaðrar utanríkisstefnu sem byggir á alþjóðalögum, mannréttindum og fjölþjóðlegri samvinnu. Ísland á ekki að vera fylgiríki stórvelda heldur skýr rödd fyrir friði, afvopnun og virðingu fyrir fullveldi þjóða. 
(Sjá einnig sérstaka  ályktun um alþjóðamál) 

Jafnrétti, mannréttindi og inngildandi samfélag 

Bakslag í umræðu og stefnumótun um mannréttindi kallar á skýra pólitíska mótspyrnu. Víða má sjá og heyra undiröldu kvenfyrirlitningar og andúðar á hinsegin fólk og innflytjendur, bæði austan hafs og vestan. Vinstri græn munu beita sér gegn rasisma, kvenfyrirlitningu, árásum á réttindi hinsegin fólks og sundrandi orðræðu sem grefur undan samstöðu og lýðræði. 

Hlutverk Vinstri grænna nú og á sveitarstjórnarstigi 

Utan þings standa Vinstri græn frammi fyrir nýju hlutverki: Að vera gagnrýnin, óháð og óhrædd rödd gegn markaðsvæðingu, einkavæðingu og afturhvarfi í velferðar- og umhverfismálum, að byggja upp kraftmikla grasrót, að styrkja tengsl við félög um land allt og að móta trúverðugan valkost fyrir fólk sem vill réttlátt, sjálfbært og manneskjuvænt samfélag. 

Í sveitarstjórnarkosningum munu Vinstri græn standa gegn markaðsvæðingu nærþjónustu og einkavæðingu innviða og bjóða skýran valkost um öfluga velferð, umhverfis- og náttúruvernd og lýðræðislega þátttöku í nærumhverfi fólks svo kjósendur geti raunverulega valið vinstri og valið grænt. 

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search