Góðir félagar!
Ég vil þakka ykkur, félögum í VG, fyrir traustið og stuðninginn sem þið sýnduð á kröftugum og skemmtilegum landsfundi um helgina.
Ég mun standa undir því trausti og vinna af heilindum og krafti í þágu VG og í þágu vinstri grænna stjórnmála fyrir samfélagið allt.
Mig langar líka að þakka öllum fyrir góðan landsfund og ykkur sem lögðu hendur á plóg við að gera hann að veruleika og ykkur sem létuð ekki hríðarbyl, gular viðvaranir og asahálku aftra ykkar för á Selfoss.
Þið eruð einfaldlega frábær!
Það er óhætt að segja að Vinstrihreyfingin – grænt framboð standi á tímamótum. Við flokksfélagar kusum okkur nýja forystu, ný stjórn flokksins var kosin og er skipuð öflugu fólki. Nýtt flokksráð var líka kosið sem er vel mannað fjölbreyttum og frábærum hópi. Stutt er síðan UVG kaus sér líka nýja og spræka stjórn. Ykkur öllum óska ég til hamingju og velfarnaðar í störfum fyrir VG!
Eftir aðeins tvo mánuði við erum við á leið í mikilvægar borgar- og sveitastjórnarkosningar eins og aðrir stjórnmálaflokkar. VG er vissulega tímabundið utan þings en landsfundurinn og forystuskiptin sannar að við erum kraftmikil og klár í slaginn framundan og spennt fyrir endurnýjuninni og uppbyggingunni. Við tímamótin skulum við halda í kraftinn, samstöðuna og minna okkur á að pólitískt erindi VG hefur sjaldan verið mikilvægara en nú.
Þegar svona mikilvæg verkefni eru framundan hvet ég ykkur öll til að sýna stuðning í verki, ég vil bjóða nýja félaga sérstaklega velkomna og þakka ykkur sem hafið verið hér lengur fyrir ómetanlegt starf. Ég minni á styrktarmannakerfið okkar sem er okkar lífæð um þessar mundir. Með frjálsu framlagi að eigin vali getið þið lagt ykkar mikilvægu lóð á vogarskálarnar til að vinstri græn stjórnmál geti þrifist og dafnað á tímum þegar sótt er að umhverfisvernd, mannréttindum, friði og félagslegum jöfnuði.
Sýnum stuðning í verki og styrkjum hreyfinguna fjárhagslega til að kosningabaráttan verði öflug og góð.
Annar stuðningur er svo auðvitað bestur og ómetanlegur!
Sjálfboðavinna, mæting á fundi, símhringingar og læk og dreifingar á efni, hrós í eyru og klapp á bök eru nauðsynleg fyrir okkar fólk sem mikið mæðir á í kosningum framundan. Síðast en ekki síst; Munum að hafa gaman! Meiri gleði og meira stuð!
Stöndum saman og styðjum við hvert annað.
Þakkar – og baráttukveðjur,
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG