Sterkara samfélag fyrir öll
Sterkt samfélag veitir fólki öryggi, stuðning og tækifæri. Það styður börn og fjölskyldur, tryggir fólki öruggt heimili, verndar náttúruna og nærumhverfið og vinnur með íbúum að betri bæ.
Í Kópavogi eigum við heimili, börnin okkar alast upp, fólk eldist og lífið gerist, með öllu því fallega, flókna og erfiða sem því fylgir. Þess vegna má bærinn ekki vera rekinn eins og hlutafélag, heldur samfélag sem styður og verndar fólkið sitt.
Kópavogur á að vera bær þar sem fjölskyldur geta treyst á leikskóla, skóla og velferðarþjónustu, þar sem öllum er tryggt öruggt heimili, hverfin eru lifandi og náttúran fær að njóta vafans. Við viljum byggja samfélag þar sem þjónustan mætir fólki fyrr, íbúar koma að ákvörðunum um sitt nærumhverfi frá upphafi og ákvarðanir bæjarins taka mið af jöfnuði, réttlæti, lífsgæðum, náttúrunni og framtíðinni.
Kópavogur á að vera bær þar sem börn fá gott upphaf, eldri íbúar fá stuðning til að lifa sjálfstæðu og virku lífi, fjölskyldur fá stuðning í sínu daglega lífi og öll fá tækifæri til að taka þátt.
Þannig byggjum við sterkara samfélag fyrir öll.
Börn og fjölskyldur
Börn og fjölskyldur bæjarins þurfa að finna að þau skipta máli í forgangsröðun bæjarins. Þannig byggjum við framtíð Kópavogs með meiri jöfnuði og lífsgæði fyrir öll. Þegar við setjum leikskóla, skóla, frístundir og annan stuðning í forgang verður auðveldara að mæta þörfum fjölskyldna og öll börn fá betri jarðveg til að blómstra. Öll börn eiga fæðast til jafnra tækifæra.
Leikskólamál eru jafnréttismál. Þegar leikskólapláss vantar eða kostnaðurinn verður of mikill lendir álagið á fjölskyldunum, og alltof oft á konum. Kópavogur þarf að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og tryggja börnum góða þjónustu frá upphafi.
Við þurfum að:
- tryggja börnum leikskólapláss við lok fæðingarorlofs
- þrýsta á stjórnvöld að gera leikskólastigið að lögbundinni þjónustu sveitarfélaganna og að því fylgi fjármagn frá ríkinu
- gera leikskóla gjaldfrjálsa í áföngum, byrja á elstu börnunum
- styrkja snemmtæka íhlutun og grípa fyrr inn í vanda barna og fjölskyldna
- efla stuðning innan leik- og grunnskóla
- bæta starfsumhverfi og kjör kennara og annars starfsfólks sem vinnur með börnum
- tryggja að öll börn geti tekið þátt í skólastarfi, frístundum, ferðum og viðburðum án aukakostnaðar
- bjóða gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir öll börn, í grunn- og leikskólum sem þýðir að börn með sérfæði fá líka að borða
- að setja á fót sérfræðiteymi fyrir skólana sem ferðast á milli skóla og koma þannig með sérfræðiþekkingu sína inn í skólana til að styðja við störf starfsfólksins sem þar er fyrir
Kópavogur á tryggja þjónustu sína við fjölskyldur og börn en ekki treysta því að fjölskyldurnar reddi málunum fyrir bæinn.
Öruggt húsnæði
Gott líf þarf öruggan grunn. Þegar húsnæðiskostnaður sligar heimili dregur hann úr öryggi, lífsgæðum og möguleikum fólks til þátttöku. Öruggt húsnæði er forsenda þess að fólk geti tekið þátt í lífinu, stofnað fjölskyldu og hugað að framtíðinni.
Kópavogur þarf að taka virkan þátt í að tryggja fjölbreytt, öruggt og mannvænt húsnæði fyrir fólk á ólíkum æviskeiðum. Bærinn þarf að bjóða lóðir fyrir óhagnaðardrifin leigufélög og aðrar almennar íbúðir, fjölga félagslegum íbúðum, skipuleggja hverfi þar sem húsnæði, þjónusta, græn svæði og samgöngur fara saman.
Við þurfum að:
- tryggja að fólk búi við húsnæðisöryggi, það er hlutverk sveitar
- auka aðgengi að fjölbreyttara húsnæði fyrir ólíkar þarfir fólks, ekki verktaka
- styðja við uppbyggingu húsnæðis fyrir ungt fólk, tekjulága hópa og fólk sem er að hefja búskap
- Kópavogsklöpp: Íbúðaframboð í kerfi þar sem sveitarfélagið skipuleggur, byggir og úthlutar íbúðum á viðráðanlegu verði. Hvort sem það er kaup og leiga á íbúð eru afborganir viðráðanlegar. Áhersla á fjölgun íbúða fyrir fyrstu kaupendur og íbúðir fyrir eldri borgara nálægt núverandi þjónustu. Íbúðir fyrir þá sem vilja vera í Kópavogsklöppinni, tækifæri til að geta fært sig til í kerfinu innan hverfis eða innan Kópavogsbæjar, minnkað eða stækkað við sig eftir þörfum. Allir íbúaeigendur í Kópavogsklöppinni byggja upp stofn sem er greiddur út við sölu íbúðar.
- standa við gerða rammasamninga og úthluta lóðum fyrir óhagnaðardrifin leigufélög
- fjölga félagslegum íbúðum og stytta biðlista
- setja gæði, heilsu og öryggi í forgang í húsnæði á vegum bæjarins
- tryggja gott viðhald og eftirlit með gæðum húsnæðis bæjarins
- trygga að í nýjum hverfum og með þéttingu byggðar sé gert ráð fyrir skólum, þjónustu, grænum svæðum, samgöngum og öðrum innviðum frá byrjun
Kópavogur á að vera bær þar sem fólk getur átt öruggt heimili en ekki lóðamarkaður fyrir fjárfesta og verktaka.
Traust þjónusta og styttri bið
Við viljum Kópavog þar sem þjónustan er aðgengileg, traust og manneskjuleg. Sterkt samfélag má helst meta út frá því hvernig brugðist er við þegar líf fólks verður erfitt. Sveitarfélagið á að grípa þá einstaklinga sem þurfa þjónustu og styðja þá þar sem þeir eru.
Við viljum bæta aðgengið að þjónustunni, stytta biðtíma og tryggja betra samspil skóla, félagsþjónustu, frístunda, heimaþjónustu og heilbrigðiskerfis.
Eldri íbúar eiga að hafa val um að búa lengur heima í öryggi með aðstoð bæjarins. Fatlað fólk, fólk með skerta starfsgetu, innflytjendur, þolendur ofbeldis, börn, foreldrar og öll þau sem þurfa stuðning eiga að mæta kerfi sem sér manneskjuna, ekki bara málið eða biðlistann.
Við þurfum að:
- stytta bið eftir félagsþjónustu og stuðningi
- samþætta þjónustu við börn, fjölskyldur, fatlað fólk og eldri íbúa
- sérfræðiteymi
- efla snemmtækan stuðning
- styrkja þjónustu við fatlað fólk
- skapa fleiri hlutastörf fyrir fólk með skerta starfsgetu
- efla heimaþjónustu og stuðning við sjálfstæða búsetu eldra fólks
- vinna gegn einmanaleika
- bæta móttöku og upplýsingagjöf til nýrra íbúa
- styrkja forvarnir, barnavernd og aðgerðir gegn ofbeldi
- styðja með virðingu við innflytjendur jafnt til inngildingar þeirra í íslenskt samfélag og viðhalds eigin menningar
- tryggja að jöfnuður, jafnrétti kynjanna, og mannréttindi séu leiðarljós í ákvörðunum bæjarins
- samfellu í þjónustu við ungmenni þegar þau ná 18 ára aldri
- tryggjum öllum þjónustu án aðstandendaher og sérfræðiþekkingu á kerfinu
- velferðarkjarni á vegum bæjarins þar sem þú færð aðstoð: Við ætlum að opna dyrnar og mæta þér í persónu
Kópavogur á að vera bær sem grípur fólk fyrr og stendur með því þegar á reynir.
Náttúran og lífsgæðin
Náttúra Kópavogs er kjarni lífsgæða okkar, heilsu, vellíðunar og framtíðar. Græn svæði, útivistarsvæði, dalir, fjörur og vatnsvernd eru sameiginleg gæði sem þurfa sterka rödd í bæjarstjórn.
Umhverfismál eru líka velferðarmál. Skipulag og framkvæmdir bæjarins þurfa að taka mið af þörfum fólks, náttúru og lífsgæðum, ekki því einu að fjölga byggingarreitum. Góð loftgæði, öruggar gönguleiðir, leiksvæði, græn svæði og aðgengi að útivist skipta máli fyrir okkur öll og stuðla að betra lífi í bænum okkar.
Við þurfum að:
- vernda græn svæði, útivistarsvæði og náttúruperlur Kópavogs
- standa vörð um Kópavogsdal, Fossvogsdal, Elliðavatn og sjávarsíðu Kópavogs
- endurheimta votlendi í Fossvogsdal fyrir umhverfið, fjölbreytt dýralíf og framtíðina
- standa vörð um vatnsverndarsvæði af algerri festu
- gera hverfin öruggari fyrir börn, gangandi og hjólandi
- hætta við áform um hraðhjólastíg, við leirurnar, í Kópavoginum sjálfum
- tryggja að skipulag taki mið af lýðheilsu, loftgæðum, hljóðvist, birtu og nærumhverfi
- stuðla að bættum almenningssamgöngum
- styrkja göngu- og hjólastíga og tryggja öryggi gangandi og hjólandi jafnt vetur sem sumar
- bæta merkingar í bænum fyrir íbúa og ferðamenn
- draga úr gegnumakstri þungaflutninga í íbúðahverfum
- fjölga hleðslustöðvum og auðvelda umhverfisvænan lífsstíl
- efla hringrás, endurnýtingu, deilingu og minni sóun
- minnka svifryk og gera ráðstafanir til að minnka dreifingu þess í andrúmsloftið
- gjaldfrjálsar almenningasamgöngur fyrir ungmenni
Kópavogur á að vera bær þar sem náttúra, heilsa og lífsgæði ráða för í skipulagi.
Samvinna og samráð
Íbúar þurfa að vera hluti að ákvörðunum sem snerta þeirra lífsgæði og nærumhverfi. Samvinna við íbúa er lykillinn að því að sátt um framkvæmdir.
Þekking íbúa er ómetanleg og á að taka alvarlega. Íbúar þekkja hverfin sín betur en stjórnsýslan, svo sem leiðir barna í skóla, leiksvæðin, göturnar, grænu svæðin og hvað þarf að laga. Bær sem hlustar tekur betri ákvarðanir og byggir á gagnkvæmu trausti.lögb
Við þurfum að:
- hefja samráð fyrr í skipulagsmálum
- efla íbúasamtök og hverfaráð
- gera upplýsingar aðgengilegar og skýrari
- tryggja að íbúar fái svör við athugasemdum sínum
- nota íbúakosningar og setja hluta fjármagns í verkefni sem íbúar velja sjálfir, líka í stærri málum
- auka gagnsæi í stjórnsýslu og fjármálum bæjarins
- byggja upp traust með opnari vinnubrögðum
- tryggja að börn, ungmenni og hópar sem sjaldnar heyrast fái líka rödd
Kópavogur verður betri þegar íbúar fá að taka þátt í að móta bæinn sinn.
Meira líf í hverfin
Við viljum styðja við uppbyggingu þjónustu- og samverukjarna til að stuðla að meira mannlífi í hverfum bæjarins. Lifandi hverfi þurfa betri aðstöðu fyrir mannlíf, svo sem góða leikvelli, græn svæði, bókasöfn, félagsstarf, menningu, tómstundir og staði þar sem fólk getur komið saman án þess að greiða aðgangseyri.
Fólk á öllum aldri á að hafa aðgang að þjónustu, menningu, tómstundum og góðum útivistarsvæðum nálægt heimili sínu.
Við viljum:
- byggja upp hverfiskjarna sem bæta þjónustu og mannlíf hverfanna
- auka aðgengi íbúa og félagasamtaka að húsnæði í eigu bæjarins
- nýta betur húsnæði bæjarins fyrir samfélagið
- styðja enn betur við frábært starf bókasafnanna og menningarrýma bæjarins
- lengja opnunartíma bókasafnanna
- bæta og viðhalda betur skólalóðum, leik- og útivistarsvæðum
- fjölga stöðum þar sem fólk getur hist án þess að borga aðgangseyri
- efla og auka aðgengi að tómstundum fyrir börn, ungmenni og eldri íbúa
- styðja við ungt listafólk og skapandi starf innan Kópavogs
- tryggja að börn af erlendum uppruna og börn frá tekjulægri heimilum hafi sama aðgengi að íþróttum og tómstundum og önnur börn
- gera almenningsrými fallegri, öruggari og skemmtilegri
Kópavogur þarf lifandi hverfi þar sem fólk getur hist, tekið þátt í samfélaginu, kynnst nágrönnum sínum og notið nærumhverfisins.
Förum vel með sameiginlegt fé
Ábyrg fjármálastjórn snýst um að fara vel með sameiginlegt fé íbúa, forgangsraða af skynsemi og tryggja að ákvarðanir bæjarins styðji við gott líf í Kópavogi til framtíðar. Gott samráð og eftirlit er mikilvægt til að koma í veg fyrir kostnaðarsöm mistök. Lokatalan í rekstrarreikningi bæjarins segir lítið ef ekki er horft til þess hvað liggur að baki henni.
Við þurfum að:
- forgangsraða verkefnum sem bæta lífsgæði íbúa og styrkja samfélagið
- auka gagnsæi í rekstri, fjárfestingum og ákvörðunum
- nota fjármuni bæjarins með skýrum og ábyrgum hætti
- gera upplýsingar um fjármál bæjarins skýrari og aðgengilegri fyrir íbúa og alla kjörna fulltrúa
- tengja fjárhagsáætlanir betur við velferð, loftslag, lýðheilsu og þjónustu
- koma í veg fyrir kostnaðarsöm mistök með betra skipulagi, alvöru eftirliti og meiri samvinnu milli sviða
- tryggja að uppbygging hverfa og þétting byggðar taki mið af skólum, leikskólum, samgöngum, grænum svæðum, þjónustu og þörfum íbúa frá upphafi
Kópavogur á að vera bær þar sem ábyrgur rekstur styrkir samfélagið og sameiginlegir fjármunir vinna fyrir íbúana.



