PO
EN

Sveitastjórnarkosningar 2026

VG á Akureyri

Deildu 

VG-09

1. sæti

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir

VG-04

2. sæti

Stefán Oddur Hrafnsson

VG-05

3. sæti

Ásrún Ýr Gestsdóttir

VG-01

4. sæti

Sigtryggur Ellertsson

VG-08

5. sæti

Herdís Júlía Júlíusdóttir

Akureyrarbær – Kosningaáherslur 2026

Sveitarfélög eru samfélög, ekki fyrirtæki. Akureyrarbær á að vera í fararbroddi í baráttu fyrir réttlátu, sjálfbæru og lýðræðislegu samfélagi. Sveitarfélög eru það stjórnvald sem stendur íbúum næst í daglegu lífi og nauðsynlegt er að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu og félagslegt réttlæti allra aldurshópa. Stefnumótun og forgangsröðun Akureyrarbæjar á að taka mið af heilsu og vellíðan íbúa, húsnæðisöryggi, félagslegum tengslum og aðgengi að hreyfingu, náttúru og útivist. Náttúruvernd hefst í heimabyggð með verndun vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni. Akureyrarbær á að vera leiðandi í umhverfis- og loftslagsmálum.

Barnvænt og réttlátt sveitarfélag

Samfélag sem hlúir vel að börnum og fjölskyldum þeirra er gott samfélag. Ekkert barn á að alast upp við fátækt eða skort. Tryggja skal öllum börnum réttindi í samræmi við ákvæði barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Öll börn hafa sömu réttindi óháð uppruna og bakgrunni. Tryggjum innleiðingu farsældar fyrir börn með auknu fjármagni og viðeigandi úrræðum.

  • Akureyrarbær er barnvænt sveitarfélag, tryggjum eftirfylgni og framkvæmd í öllu starfi sveitarfélagsins.
  • Tryggjum góðan og heilnæman mat í mötuneytum skóla og komum til móts við ofnæmi, óþol og lífsskoðanir.
  • Komum á gjaldfrjálsum máltíðum í leikskólum.
  • Eflum frístundastarf til að draga úr brottfalli og tryggjum sumarfrístund fyrir yngstu bekki grunnskóla.
  • Útvíkkum aldursviðmið frístundastyrks og aukum styrki fyrir barnmargar fjölskyldur.
  • Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í lífi fólks, ekki síst barna og ungmenna, styðjum og hlustum á fagfólk í tómstundastarfi og skoðum starf félagsmiðstöðva á heildrænan og skynsaman hátt.

Skólar og leikskólar

Skólar eru hornsteinn menningar og jöfnuðar í samfélaginu. Við viljum eiga samstarf og samtal við þann mikilvæga mannauð sem starfar í leik- og grunnskólum um leiðir til að gera gott skólastarf enn betra.

  • Skoðum leikskólastigið í heild út frá þörfum barna, leikskólakennara, annars starfsfólks, foreldra/forráðamanna og annarra aðstandenda. Höfum jafnrétti og jöfnuð að leiðarljósi.
  • Tryggjum fríar skólamáltíðir og gæði þeirra í leikskólum. Tryggjum sömuleiðis áframhaldandi fríar skólamáltíðir í grunnskólum og aukum gæði þeirra.
  • Aukum stuðningsþjónustu við börn í leik- og grunnskóla.
  • Stuðlum að auknu þverfaglegu starfi í grunnskólum, þ.á m. með aðkomu sálfræðinga, iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, sérkennara og fleiri fagstétta og fjölgum stöðugildum í stuðningsteymum og sérkennslu.
  • Bætum starfsumhverfi kennara og annars starfsfólks innan skóla, eflum samstarf ríkis og sveitarfélaga um fjölgun kennaranema og stuðlum þannig að hærra hlutfalli fagmenntaðra kennara á öllum skólastigum.
  • Aukum svigrúm kennara og annarra starfsmanna til starfsþróunar og þróunar fræðslustarfs.
  • Styrkjum forvarnir í skólum með aukinni jafnréttis- og kynjafræðslu og fræðslu um hið stafræna samfélag, ásamt markvissri umræðu um ofbeldi og afleiðingar.
  • Tryggjum áframhaldandi hinsegin fræðslu og vitundarvakningu um málefni mannréttinda og kynræns sjálfræðis.
  • Tryggjum tónmenntarkennslu í öllum grunnskólum bæjarins
  • Stuðlum að jöfnu aðgengi allra barna að tónlistarnámi
  • Háskólinn á Akureyri er ein mikilvægasta stofnun bæjarins og lykill að öflugra samfélagi. Akureyrarbær á að standa þétt við bakið á skólanum og styðja áframhaldandi uppbyggingu hans og sérstöðu
  • Eflum íslenskukennslu barna jafnt sem fullorðna með erlenda bakgrunn – gerum íslensku sem annað mál raunhæfan möguleika

Velferð

Réttlátt samfélag krefst velferðarkerfis sem virðir mannréttindi íbúa og mætir þeim á þeirra forsendum, með valdeflingu og virðingu að leiðarljósi. Aðgengi allra til þátttöku í samfélaginu skal vera tryggt. Inngilding og bann við mismunun skal vera leiðarljós í allri starfsemi sveitarfélagsins. Það er grundvallar hagsmunamál fyrir íbúa Akureyrarbæjar og annarra sveitarfélaga að þjónusta á SAk verði efld og uppbygging tefjist ekki. Leggjum aukna áherslu á fræðslu og forvarnir svo hægt sé að bregðast fyrr við og koma í veg fyrir skaða. Akureyrarbær býr yfir sterku og góðu velferðarkerfi, sem þó hægt að bæta.

  • Hugum sérstaklega að minnihlutahópum og jaðarsettum einstaklingum og því að við sem samfélag séum ekki að jaðarsetja einstaklinga enn frekar með t.d. staðsetningu á búsetusvæðum. Nýtum okkur sérfræðiþekkingu og tengslum félagasamtaka við hópana við ákvarðanatöku og eflum samráð við þau.
  • Eflum þjónustu við ungmenni sem glíma við allskyns áskoranir á við taugaþroskaraskanir og geðvanda. Vinnum með styrkleika einstaklinga og sköpum aðstæður svo einstaklingarnir geti fundið sér hlutverk og fundið tilgang.
  • Hugum að samfellu í kerfunum og að hópar fólks séu ekki að koma að lokuðum dyrum og sé endalaust vísað annað t.d. á grundvelli fötlunar eða annarra þátta.
  • Horfum heildstætt á alla félags- og velferðarþjónustu, tryggjum samþættingu ólíkra kerfa og pössum að fólk falli ekki á milli þjónustuúrræða.
  • Komum á fót gistiskýli fyrir heimilislausa, með samráði og samvinnu við frjáls félagasamtök. Könnum einnig þörfina fyrir neysluskýli hér á Norðurlandi og mögulegs ávinnings þess.
  • Tryggjum fólki með fötlun viðeigandi þjónustu, þ.m.t. búsetuúrræði, atvinnutækifæri, námstækifæri og einstaklingsmiðaða aðstoð á borð við notendastýrða persónulega þjónustu (NPA).
  • Tökum vel á móti hælisleitendum og tryggjum þjónustu við þá.
  • Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið lögfestur, fylgjum samningnum eftir og virðum einkunnarorðin ,,Ekkert um okkur, án okkar.”
  • Endurskoðum sérstakan húsnæðisstuðning svo hann nái einnig til tekjulágra hópa sem ekki komast í gegnum félagslegt mat.
  • Eflum ferliþjónustu og tryggjum að hún virki fyrir notendur.
  • Höldum áfram innleiðingu á farsæld barna og tryggjum viðeigandi úrræði.

Eldri borgarar

Lífsgæði eldra fólks þarf að tryggja með góðri þjónustu, fræðslu og vitundarvakningu um málefni þeirra, til að tryggja að eldra fólk geti lifað við öryggi, sjálfstæði og af reisn.

  • Fylgt verði eftir framkvæmd nýs hjúkrunarheimilis og að tryggð verði fleiri hjúkrunarrými samhliða aukinni þjónustu fyrir þau sem kjósa að búa heima.
  • Sveitarfélagið á að tryggja eldri borgurum skýrar og aðgengilegar upplýsingar um þá þjónustu sem þeim stendur til boða.
  • Skoðað verði að koma á fót þekkingarmiðstöð fyrir einstaklinga með heilabilanir og aðstandendur þeirra.
  • Tryggjum að stafræn umbreyting bæti líf eldra fólks og verði ekki til þess að fólk missi aðgengi að þjónustu, upplýsingum eða þátttöku.
  • Tryggjum að óhagnaðardrifin leigufélög nái að anna eftirspurn á öllum aldursskeiðum.
  • Skoðaðar verði leiðir til að styðja betur við eldri borgara á almennum leigumarkaði.

Menning og listir

Akureyrarbær þarf að hlúa að menningarlífi með stöðugri uppbyggingu, öflugri grasrót, listnámi og endurnýjaðri menningarstefnu. Ef Akureyri ætlar að vera leiðandi menningarbær þarf ekki aðeins að standa vörð um þær stofnanir sem þegar hafa sannað gildi sitt, heldur líka að hlúa betur að þeim jarðvegi sem allt menningarlíf sprettur úr.

  • Hefjum vinnu við nýja menningarstefnu í samráði við hagaðila og leggjum fram til samþykktar.
  • Komum á fót menningarráði sem styður við stefnumótun, samtal og þróun menningarlífs á Akureyri.
  • Sköpum grasrót hinna ýmsu greina lista rými og tíma til að skapa og vaxa, með auknu fjármagni og aðstöðu.
  • Laun bæjarlistamanns verði 12 mánuðir og í samræmi við mánaðarlaun ríkisins.
  • Skoðum aukinn opnunartíma á Amtsbókasafninu með opnun á sunnudögum og aðgengi utan opnunartíma.
  • Styðjum við myndlistarnám fyrir börn og ungmenni.
  • Setjum fjármagn í viðhald og viðgerðir á útilistaverkum í eigu Akureyrarbæjar.

Sjálfbært skipulag og húsnæði í almannaþágu

Tryggja þarf húsnæði í almannaþágu, þar sem lögð er rík áhersla á að öll hafi þak yfir höfuðið og húsnæði sé fyrir fólk en ekki fjárfesta. Skipulag þarf að gera ráð fyrir þjónustu og menningarlífi þar sem aðgengi og virkni almenningssamgangna er tryggt sem og aðgangur að grænum svæðum. Svifryk ætti aldrei að fara yfir heilsuverndarmörk, leyfum náttúrunni undantekningarlaust að njóta vafans.

  • Aukum fé í stofnframlög til óhagnaðardrifinna leigufélaga og aukum félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélagsins.
  • Verndum eldri byggð og berum virðingu fyrir menningarminjum og sögu við gerð nýs skipulags og við breytingar á eldra skipulagi. Horfa skal til sögulegs samhengis umhverfis og sérstöðu hverfa.
  • Tryggjum að þétting byggðar verði með sjálfbærum og skynsamlegum hætti svo að lífsgæði og velferð íbúa tapist ekki og tillit sé tekið til náttúrunnar.
  • Látum göngugötuna standa undir nafni allt árið með öruggu aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Endurhönnum miðbæinn þannig að öll geti notið hans.
  • Mótum landnýtingarstefnu sem miðar að því að lágmarka mengun og takmarka raski á náttúru. Endurnýtum jarðveg og byggingarefni vegna framkvæmda. Skógrækt og landgræðslu þarf að skipuleggja með líffræðilega fjölbreytni og kolefnisbindingu í huga.
  • Byggjum upp öruggt og heilsusamlegt umhverfi með áherslu á fjölbreytta ferðamáta og almenningssamgöngur. Leggjum áherslu á þjónustu og aðstöðu í nærumhverfi til að draga úr þörf á lengri ferðum.
  • Skipulag skal taka mið af þörfum íbúa og félagslegum fjölbreytileika.
  • Bætum almenningssamgöngur svo þær verði raunverulegur valkostur fyrir fólk.
  • Komum á almenningssamgöngum við eyjabyggðir Akureyrarbæjar.
  • Plöntum nytjarunnum í bæjarlandinu, kortleggjum græn svæði, m.a. í Þorpinu (hverfi 603) og leyfum náttúrunni að njóta sín og blómstra.

Náttúruvernd, endurheimt vistkerfa, loftslagsaðgerðir og sjálfbær framtíð

Akureyrarbær er fjölbreytt sveitarfélag hvað umhverfi varðar, það státar af þéttbýli, einstökum eyjum og friðlýstri náttúru. Í umhverfis- og lofslagsmálum ber sveitarfélagið mikla ábyrgð gagnvart íbúum dagsins í dag og íbúum framtíðarinnar. Rannsóknir á sviðum umhverfis- og lofslagsmála skila stöðugt nýrri þekkingu sem kallar á reglulega endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlana. Þannig er mikilvægt að rýna Umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar og fara strax að huga að gerð nýrrar stefnu. Í þeirri vinnu þarf m.a. að skoða hvaða leiðir sveitarfélagið hefur til að viðhalda og efla líffræðilegum fjölbreytileika. Tryggja þarf að almenningur hafi gott aðgengi að fjölbreyttum náttúrusvæðum í nærumhverfi. Slík tengsl efla lífsgæði, styðja við lýðheilsu og auka ábyrgð gagnvart vernd og sjálfbærri nýtingu náttúrunnar.

  • Friðum Eyjafjörð gagnvart sjókvíaeldi.
  • Eflum almenningssamgöngur með bættu leiðarneti strætó, fjölgun ferða og vagna. Gerum strætó að raunverulegum valkosti í samgöngum fyrir bæjarbúa.
  • Förum eftir samþykktri umhverfis- og loftslagsstefnu og tryggjum fjármagnaða aðgerðaráætlun. Aukum vægi umhverfis- og loftslagsmála og náttúruverndar innan Umhverfis- og mannvirkjaráðs.
  • Ákveðum hvar og hvernig sveitarfélagið mun vinna að endurheimt votlendis.
  • Vanda skal til allra framkvæmda innan friðlýstra svæða í sveitarfélaginu. Leggja skal áherslu á að valda sem minnstu raski á náttúru þegar unnið er að bættu aðgengi.
  • Við ræktun, gróðursetningu og umhirðu lands skal leggja áherslu á að vernda og efla líffræðilegan fjölbreytileika með fjölbreyttu plöntuvali, forgangi innlendra tegunda og vistvænni landnýtingu.

Lýðheilsa og forvarnir

Líkamleg, andleg og félagsleg heilsa fara saman og mótast af daglegu umhverfi, félagslegum tengslum og aðgengi að þjónustu og tækifærum til virkni og þátttöku. Sveitarfélagið gegnir þar lykilhlutverki með því að skapa aðstæður sem styðja við heilbrigðan lífsstíl, draga úr einmanaleika og efla félagslega þátttöku allra íbúa. Markmið okkar er að byggja samfélag þar sem vellíðan, jöfnuður, aðgengi að náttúru og virk þátttaka eru höfð að leiðarljósi.

  • Kortleggjum og rannsökum einmanaleika í okkar samfélagi og leitum leiða til að bregðast við er þörf er á.
  • Hvetjum þá íbúa, sem geta, að nýta sér virka ferðamáta í frekara mæli.
  • Aukum aðgengi að friðlýstum svæðum með fræðslu og bættum aðkomuleiðum fyrir gangandi og hjólandi.
  • Fjölgum gangbrautavörðum á leið grunnskólabarna í skóla.
  • Hugum að þátttökumiðaðri nálgun í íþróttum.
  • Byggjum yfirbyggða 50 metra sundlaug fyrir skólasund, íþróttaiðkun, menningarlíf og almenna lýðheilsu.
  • Stóreflum skátastarf með betri stuðningi og uppbyggingu að Hömrum.
  • Drögum úr svifryki með því að styðja við virka ferðamáta, með betri hreinsun göngu og hjólastíga, þróun í hálkuvörnum, minni notkun nagladekkja og aukinni trjárækt.

Lýðræði og mannréttindi í verki

Sveitarstjórnum ber að tryggja jafnrétti kynja og allra íbúa. Sveitarfélögum ber að sporna gegn kynbundnu ofbeldi, klámvæðingu, mansali og vændi og vinna gegn skaðlegum áhrifum staðalmynda.

  • Jöfnum aðgengi að fjármagni og ákvarðanatöku, t.d. með kynjaðri fjárhagsáætlanagerð og þátttökulýðræði.
  • Tryggjum að mannréttindastefnu Akureyrarbæjar sé fylgt eftir þegar ákvarðanir eru teknar og ráðum mannréttindafulltrúa.
  • Sýnum ungmennaráði Akureyrarbæjar virðingu í verki og stofnum Ungmennaráð sem nefnd hjá sveitarfélaginu.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search