PO
EN

Sveitastjórnarkosningar 2026

V listi velferðar

Deildu 

Aldey Unnar Traustadóttir 1.sæti

1. sæti

Aldey Unnar Traustadóttir

Salbjörg Matthíasdóttir 2.sæti

2. sæti

Salbjörg Matthíasdóttir

Halldór Jón Gíslason 3.sæti

3. sæti

Halldór Jón Gíslason

Guðmundur H. Halldórsson 4.sæti

4. sæti

Guðmundur H. Halldórsson

Guðrún Einarsdóttir 5.sæti

5. sæti

Guðrún Einarsdóttir

Jonas Hrafn Klitgaard 6.sæti

6. sæti

Jonas Hrafn Klitgaard

Fræðslu- og skólamál

V-listi leggur áherslu á að í skólastarfi sé jafnrétti, fagmennska og vellíðan nemenda í fyrirrúmi. Grundvallarforsenda heilbrigðs samfélags er að sem best sé búið að okkar yngstu íbúum í leik og starfi.

  • Verndum skólakerfið – tímabundinn niðurskurður á ekki að lenda á skólakerfinu.
  • V-listinn vill að innan árs verði ákvörðunin um 6 tíma vistun leikskólabarna ígrunduð og áhrif fyrir samfélagið og á fjölskyldur metin.
  • Höldum áfram vinnu við að endurbæta leikvelli og útivistarsvæði í sveitarfélaginu með aukna afþreyingu, heilsueflingu og þarfir ólíkra hópa í huga.
  • Leitað verði samstarfs við foreldra og börn um útfærslu og framkvæmdir.
  • V-listinn fagnar fjölbreytni, hinseginvænt sveitarfélag byrjar heima og í skólastofunni.
  • Styrkjum forvarnir með aukinni jafnréttis- og kynjafræðslu í skólum og fræðslu um hið stafræna samfélag.
  • V-listinn leggur áherslu á að styðja við kennara og þeirra starfsumhverfi.

Innflytjendur

Við viljum samfélag þar sem allir íbúar hafa raunveruleg áhrif og rödd þeirra skiptir máli. Með betra aðgengi að upplýsingum og aukinni þátttöku byggjum við sterkara og réttlátara samfélag.

  • Rödd allra íbúa á að heyrast, líka erlendra íbúa.
  • V-listi vill vinna að verkefnum sem hlúa að inngildingu íbúa af erlendum uppruna.
  • Við ætlum að gera sveitarfélagið aðgengilegt fyrir öll, með skýrum upplýsingum, opnu samtali og virkri þátttöku íbúa. Þannig skapast samfélag þar sem allir geta tekið þátt og tilheyra.
  • Sterkt samfélag byggir á trausti, þátttöku og jöfnum tækifærum. Við vinnum markvisst að því að allir íbúar upplifi að þeir skipti máli og geti tekið virkan þátt.

Velferðarmál

V-listi leggur áherslu á öfluga velferðarþjónustu í sveitarfélaginu. Þjónustan skal miða að bættum lífsgæðum og jöfnuði óháð búsetu eða aðstæðum. Samráð við notendur þjónustu skal ávallt vera grunn­ stef í mótun hennar.

  • V-listinn vill halda áfram að sporna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika með áframhaldandi stuðningi við félög eldri borgara í sveitarfélaginu.
  • Tryggjum aðgengi og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.
  • Horfum heildstætt á alla félags- og velferðarþjónustu og tryggjum samþættingu ólíkra kerfa.
  • Tryggjum þolendum ofbeldis stuðning og aðgengi að úrræðum. Velferðarþjónusta á að nýtast notendum sem best og á þeirra forsendum.

Menning, tómstundir og íþróttir

V-listi leggur áherslu á að menningar-, tómstunda- og íþróttastarf sé byggt upp á forsendum lýðheilsu og fjölskyldna. Megináherslan sé á fjölbreytt starf sem mætir þörfum íbúa og gesta.

  • Tryggjum stuðning við íþróttastarf í sveitarfélaginu.
  • T.d. með áframhaldandi vinnu að stefnu Norðurþings í íþrótta- og tómstundamálum og uppbyggingu íþrótta- og tómstundamannvirkja.
  • V-listinn vill halda áfram að hækka frístundastyrkinn.
  • V-listinn vill koma á rafíþróttadeild með það markmið að minnka félagslega einangrun barna og ungmenna.
  • V-listi hefur leitt vinnu við að koma á heilsárs frístund fyrir 1.-4. bekk grunnskóla á Húsavík og mun halda áfram að styðja við og efla þá vinnu í öllu sveitarfélaginu.
  • V-listi vill að sveitarfélög leggi áherslu á safnastarf og listsköpun enda er öflugt lista- og menningarlíf lykilatriði og aðdráttarafl í blómlegu samfélagi sem sveitarfélög eiga að hlúa sérstaklega að

Umhverfið

V-listi álítur loftslagsmálin mest knýjandi viðfangsefni okkar tíma. Það er að stórum hluta ábyrgð sveitarfélaga að takast á við vandann og verja lífsgæði komandi kynslóða. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er undirstaða farsæls samfélags og atvinnulífs. V-listi vill gera Norðurþing að fyrirmyndarsveitarfélagi í loftslagsmálum og náttúruvernd.

  • Öll ákvarðanataka þarf að taka mið af markmiðum í loftslagsstefnu Norðurlands eystra 2026.
  • Móta þarf stefnu í samvinnu við ríkisvaldið um vindorkuver þar sem hagsmunir landsbyggðarinnar eru í fyrirrúmi. Slík stefna þarf að byggja á vandaðri greiningu.
  • V-listi styður græna orkuuppbyggingu sem byggir á virðingu fyrir náttúru og velferð samfélagsins, en ekki í hagnaðarskyni erlendra einkafyrirtækja eða á kostnað náttúrunnar. Við leggjum áherslu á að slíkar framkvæmdir njóti breiðrar sáttar og taki fullt tillit til viðkvæmra svæða og hagsmuna heimafólks. Í því ljósi teljum við ekki rétt að ráðast í vindorkuver á Hólaheiði.
  • Mikilvægt er að hlúa að vistkerfi Skjálfandaflóa.
  • V-listinn vill hefja undirbúning við uppbyggingu skólphreinsistöðva og nýtingu lífræns úrgangs.
  • V-listi er jákvæður gagnvart eflingu fiskeldis á landi.
  • Leggja þarf áherslu á náið samstarf og stuðning Norðurþings við Vatnajökulsþjóðgarð og mikilvægt náttúruverndarstarf og atvinnuskapandi innviðauppbyggingu sem þjóðgarðurinn sinnir.
  • V-listi er andsnúinn framkvæmdum sem raska umhverfinu á viðkvæmum svæðum innan Norðurþings. Hagsmunum náttúrunnar á ekki að fórna fyrir skammtímagróða.
  • V-listi vill draga úr úrgangsmagni ásamt því að bæta flokkun og endurvinnslu.
  • V-listinn vill að grenjavinnsla á ref og mink verði endurskoðuð og árangurstengd.

Skipulag, mannvirki og framkvæmdir

Í skipulagi, fram­ kvæmdum og mannvirkjagerð á vegum Norðurþings mun V-listi forgangsraða í þágu umhverfis, lýðheilsu og þarfa fjölskyldna. Lögð verður áhersla á brýnar úrbætur sem hafa safnast upp í þágu atvinnulífsins og ásýndar samfélaganna.

  • Sinnt verði viðhaldi og framkvæmdum í þágu skóla-, leikskóla-, og tómstundastarfs barna.
  • Grunnþjónusta barna má ekki víkja, t.d. ætti sundlaugin í Lundi að vera í forgangi.
  • V-listi vill að sett verði fram viðhaldsáætlun og henni framfylgt. Það á við um eignir sveitarfélagsins, gangstéttir o.fl.
  • V-listinn styðjur óhagnaðardrifin leigufélög og aðra óhagnaðardrifna uppbyggingu með því að tryggja þeim lóðir.
  • V-listi vill lagfæra stjórnsýsluhúsið og samhliða því endurmeta þjónustuna sem þar rúmast

Fjármál og stjórnsýsla

V-listi leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórnun og ráðdeild í rekstri. Fjárfest verði á kjörtímabilinu með þarfir þeirra sem þyngstar bera byrðarnar í huga. Gerðar verði langtímaáætlanir um viðhald og innviði mannvirkja Norðurþings og þær lagðar til grundvallar við fjárhagsáætlanagerð.

  • V-listi mun ekki styðja ráðningu sveitarstjóra úr hópi kjörinna fulltrúa. Lögð verði áhersla á að höfða til allra kynja við leit að sveitarstjóraefni Norðurþings.
  • V-listi telur mikilvægt að stjórnsýsla sveitarfélaga sé reglulega tekin til endurskoðunar. Áhersla verði á skilvirkni og hámarks nýtingu mannauðs og skattfjár.
  • V-listinn vill skoða afstöðu íbúa innan Norðurþings og nærliggjandi sveitarfélaga til sveitarfélagsmarka og sameininga. Á grundvelli slíkra gagna verði tekið upp samtal við nærliggjandi sveitarfélög.

Atvinnumál

Sköpunarkraftur og framtakssemi eru einkenni atvinnulífs í Norðurþingi. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er hluti af verðmætum sveitarfélagsins. V-listi styður við frumkvöðla og umhverfisvæna atvinnustarfsemi með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

  • Norðurþing verði í fararbroddi sveitarfélaga í margvíslegum stuðningi við nýsköpun og frumkvöðlastarf.
  • Lögð verði áhersla á stuðning við þekkingardrifin störf og stutt við aðstöðusköpun fyrir íbúa sem velja sér störf án staðsetningar um allt Norðurþing.
  • Mikilvægt er að fleiri fyrirtæki hefji starfsemi á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Áhersla verði á fyrirtæki þar sem starfsemi fellur að ramma um Græna iðngarða sem Norðurþing og Landsvirkjun hafa stefnt að.
  • V-listi leggur umfram allt áherslu á að Norðurþing skapi frjóan jarðveg fyrir fjölbreytt atvinnulíf að byggjast upp. Þetta á bæði við um stórar og smáar atvinnugreinar.
  • V-listi telur brýnt að sveitarstjórn og stjórnendur Norðurþings auki samtal við fyrirtækin sem eru starfandi á svæðinu til að heyra beint frá þeim hvað má betur fara og einnig hvað gengur vel.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search