PO
EN

Stjórnmálaályktun flokksráðsfundar 6. júní 2026

Deildu 

Náttúruvernd
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Mosfellsbæ 6. júní 2026, varar eindregið við sífellt háværari kröfum og þrýstingi á að fórna náttúru og víðernum landsins fyrir skammtímagróðahugsun og ósjálfbæra atvinnuuppbyggingu.

Áform stjórnvalda um stórfellda röskun víðerna vegna stórframkvæmda á borð við vindorkugarða, án nægilegrar stefnumótunar um nýtingu náttúruauðlinda með samfélagslega sátt að leiðarljósi, veldur miklum áhyggjum og kallar á skýr og tafarlaus viðbrögð. Í því samhengi er veiking rammaáætlunar af hálfu stjórnvalda mikið áhyggjuefni.

Vinstri græn vara við ásókn fjármagnseigenda í íslenska náttúru og auðlindir bæði á hafi og á landi. Fundurinn hvetur stjórnvöld til að vera í fararbroddi í varðstöðunni um ómetanlega náttúru landsins á tímum þegar ásókn í náttúrugæði um víða veröld er ein mesta ógnin sem steðjar að lífríki jarðarinnar, jarðminjum, víðernum og landslagi.

Náttúru Íslands er ekki hægt að endurheimta þegar henni hefur verið raskað með óafturkræfum hætti. Varðstaða um líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni og vernd hálendis og hafs verður áfram eitt af lykilverkefnum VG í íslenskum stjórnmálum og í samfélagslegri umræðu og stefnumótun.

Réttindi launafólks og ámælisverð hagstjórn
Flokksráðsfundur Vinstri grænna leggur áherslu á að hagsmunir tekjulágra verði í forgangi á tímum þrálátrar verðbólgu, okurvaxta og vaxandi atvinnuleysis. Heimili landsins eiga ekki að verða fyrir barðinu á efnahagsástandi, sem er að hluta afleiðing ytri aðstæðna en ekki síður afleiðing slakrar hagstjórnar ríkisstjórnar sem veldur ekki verkefninu að stjórna efnahagsmálum landsins. Það endurspeglast í aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar og óútfærðum aðhaldsaðgerðum sem líklegast munu koma niður á grunnþjónustu. Í stað nauðsynlegrar styrkingar á grundvallarvelferðarkerfum samfélagsins er lögð til fækkun ríkisstarfsmanna og hagræðing innan heilbrigðis- og menntakerfisins. Vinstri græn leggja áherslu á að standa þarf vörð um almannatryggingakerfið í stað þess að veikja það eins og ríkisstjórnin áætlar, meðal annars með áformum um styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga um 40% og lengingu á ávinnslutímabili réttinda.

Standa þarf vörð um heimili landsins og fjölskyldur þegar efnahagsástandið er í lægð en ekki fjármagnseigendur sem eru í forréttindastöðu. Launafólk á Íslandi verður að geta lifað af launum sínum og verður að hafa greiðan aðgang að öruggu og viðráðanlegu húsnæði. Það er óásættanlegt að 30% launafólks nái ekki endum saman um hver mánaðamót og barnafjölskyldur berjist í bökkum vegna lánakostnaðar og verðlags sem er langt umfram það sem tíðkast í nágrannaríkjunum. Nauðsynlegt er að ráðast í aðgerðir til verja kaupmátt launafólks og þeirra hópa sem eru í viðkvæmri stöðu og sporna við verðlagshækkunum. Tryggja þarf enn betur húsnæðisöryggi með því að efla óhagnaðardrifna húsnæðiskerfið til muna.

Ríkisstjórn Íslands þarf að gera breytingar á skattkerfinu svo það verði réttlátara með því að innheimta hærri skatta af þeim sem eiga mestu fjármunina í íslensku samfélagi.

Menntakerfið, starfsumhverfi kennara og skólafólks
Menntakerfið er ein af mikilvægustu stoðum lýðræðislegs samfélags og forsenda jöfnuðar fyrir okkur öll, óháð uppruna, stétt eða stöðu. Vinstri græn munu ávallt verja menntakerfið og styðja við starfsfólk sem vinnur við kennslu. Kennarar, skólastjórnendur og nemendur þurfa stöðugleika, traust og langtímasýn en ekki sundrungu um málaflokkinn og vantraust í sinn garð.

Flokksráðsfundur Vinstri grænna telur alvarlegt hvernig ríkisstjórn og ráðherrar hafa grafið undan menntakerfinu á skömmum tíma með algjöru rótleysi í æðstu stjórn málaflokksins, sífelldum stefnubreytingum, upplýsingaóreiðu og gífuryrðum í garð skólasamfélagsins alls: kennara, skólastjórnenda og nemenda. Flokksráðsfundur Vinstri grænna tekur undir kröfur kennara og Kennarasambands Íslands um faglegri nálgun stjórnvalda í menntamálum.

Vinstri græn gera alvarlegar athugasemdir við samdrátt fjárframlaga til vanfjármagnaðs framhaldsskólastigs á sama tíma og boðuð er aukin uppbygging húsnæðis og efling skólastigsins. Slíkt bendir til þess að stefnumótunin sé að verulegu leyti ófjármögnuð og að um sé að ræða loforð án fjárheimilda.

Metnaður ríkisstjórnarinnar í rannsóknum og nýsköpun er hverfandi. Tryggja þarf háskólum nægt fjármagn til að efla rannsóknir og styrkja þannig fjölbreyttara og sjálfbærara hagkerfi til framtíðar. Aukin fjárfesting í þekkingu, nýsköpun og skapandi greinum skapar verðmæti, eykur samkeppnishæfni og styður við öfluga velferð. Atvinnulíf framtíðarinnar verður að byggjast á þekkingu, hugviti og grænum lausnum.

Mannréttindi
Flokksráðsfundur VG lýsir yfir þungum áhyggjum af bakslagi í mannréttindum og harðari orðræðu sem er látin átölulaus gagnvart fólki á flótta og jaðarsettum hópum. Áform stjórnvalda um sérstakar brottfararbúðir fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd endurspegla hættulega þróun þar sem mannúð, réttarríkið, réttindi barna og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands víkja fyrir sýndarlausnum og popúlisma. Þess háttar frelsissvipting af hálfu ríkisins er óásættanlegt inngrip í sjálfræði hverrar manneskju.

VG hafnar þessari ómannúðlegu nálgun gagnvart fólki sem leitar alþjóðlegrar verndar og áréttar að samfélag sem byggir á virðingu fyrir mannréttindum, samstöðu og samvinnu verður ekki reist á ótta eða útilokun.

Vinstri græn vara jafnframt við þróun í átt til popúlisma og hægriöfga sem hefur átt sér stað undanfarin ár, þróun sem vegur að mannréttindum fólks og grefur undan félagslegum réttindum fyrir skammtímahagsmuni og pólitíska hentistefnu.

Íslenskir stjórnmálaflokkar verða að sporna við þessari þróun í stað þess að láta undan bakslaginu. Vinstri græn fordæma hugmyndafræði og orðræðu sem beinist gegn konum, hinsegin samfélaginu og þá sérstaklega trans fólki.

Mannréttindi og félagsleg réttindi eru ekki sjálfgefin, hafa kostað mikla baráttu og skipta líf og velferð fólks grundvallarmáli. Stjórnmálaflokkar á Íslandi og ríkisstjórn verða að standa í lappirnar og taka skýra afstöðu með kynjajafnrétti, mannréttindum og félagslegum réttindum allra.

Alþjóðamál
Á tímum vaxandi óstöðugleika í alþjóðasamfélaginu, stríðsátaka, aukinnar hervæðingar og atlögu að alþjóðalögum leggur flokksráðið áherslu á að Ísland verði áfram rödd friðar, mannréttinda og alþjóðlegrar samvinnu. Áframhaldandi stríðsátök eins og í Úkraínu, Súdan, Íran og Líbanon sýna afleiðingar linnulausrar hervæðingar og yfirgangs ríkja. Hlutverk Íslands á alþjóðasviðinu ætti að vera að auka framlög til þróunarsamvinnu, mannúðarmála og alþjóðastofnana í stað þess að stórauka fjárútlát í öryggis- og varnarmál.

Vinstri græn fordæma að Bandaríkin hafa slegist í hóp þeirra sem grafa undan alþjóðastofnunum, alþjóðasáttmálum og alþjóðalögum. Sú markvissa og grófa atlaga að mannréttindum víða um heim sýnir hversu mikilvægt það er að rödd friðar og mannúðar heyrist skýrt. Flokksráðsfundur Vinstri grænna fordæmir harðlega þjóðarmorð, stríðsglæpi, landrán og önnur alvarleg mannréttindabrot Ísraelsríkis gagnvart íbúum Palestínu.

VG hafnar þróun þar sem ótti, þjóðernishyggja og útilokun eru gerð að stjórntækjum á kostnað samstöðu og mannúðar. Nauðsynlegt er að standa vörð um alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, rétt flóttafólks, friðsamlega lausn deilumála og virka þátttöku í baráttunni gegn loftslagsvánni og vaxandi ójöfnuði í heiminum.

Flokksráðsfundur telur að Ísland eigi að standa með alþjóðlegri samvinnu líkt þenkjandi ríkja, styrkja norræna og evrópska samvinnu um lýðræði og mannréttindi og friðsamlegar lausnir deilumála en hafna óhugnanlegri þróun á alþjóðavettvangi þar sem útilokun, einangrunarhyggja og þjóðernispopúlismi fá sífellt meira vægi í alþjóðastjórnmálum.

Pólitískt hlutverk Vinstri grænna
Á tímum vaxandi sundrungar og harðnandi samfélagsumræðu þarf sterkari rödd fyrir félagslegu réttlæti, friði, jafnrétti og náttúruvernd. Það þarf að styrkja lýðræði hvort sem er í nærsamfélögum eða á heimsvísu og styrkja réttindi fólks á flótta. Okkur ber að virða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands af festu og ábyrgð. Á tímum uppgangs öfgahægrisins er nauðsynlegt að stjórnmálaöfl á vinstri væng stjórnmálanna stígi fram og standi saman gegn þessari þróun og vinni að réttlátara samfélagi. Vinstri græn munu axla þá ábyrgð og vera í fararbroddi við það.

Vinstri græn munu áfram standa með náttúrunni og hagsmunum almennings og styðja við samfélag sem byggir á samstöðu og jafnrétti fremur en sérhagsmunum. VG mun ávallt vinna ötullega að jafnara og réttlátara samfélagi sem byggir á lýðræði, mannúð og samstöðu fremur en ótta og útilokun.

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search