„Dear Macron, stop this speaches and send troops in to fight for Ukraine and Europe and have the nuces ready to skoot at once.“
Velkomin á Flokksráðsfund kæru félagar. Þessi orð lét Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, falla á samfélagsmiðlum í lok október.
Það er auðvelt að hlæja að þessu. Stafsetningin var skrautleg. En þessi fávísi og léttúð gagnvart stríði og kjarnorkuvá endurspeglar ákveðna firringu í opinberri umræðu á tímum þar sem við stöndum frammi fyrir alvarlegum tilvistarlegum ógnum.
Í stöðugu fréttaflæði er hætt við að við fjarlægjumst þjáninguna að baki hörmungunum. Við vitum af þeim en eigum sífellt erfiðara með að meðtaka þær. En þó að doðinn geri vart við sig hverfur ekki sú tilfinning að eitthvað sé alvarlega úr skorðum í heiminum.
Innrásarstríð Rússa í Úkraínu hefur hrakið milljónir manna frá heimilum sínum og lagt borgir í rúst. Þjóðarmorð í beinni útsendingu á Gaza hefur orðið hluti af daglegu fréttaflæði á samfélagsmiðlum. Og fjær athygli okkar geisar stríðið í Súdan, þar sem talið er að hundruð þúsunda hafi fallið í valinn. Loftslagsváin er ekki lengur fjarlæg framtíðarspá. Hitabylgjur, skógareldar, flóð og þurrkar verða sífellt meira áberandi. Á sama tíma ryður auðlindafrek tækni eins og gervigreind sér til rúms, tækni sem er hagnýtt til fjöldaeftirlits og þróunar sjálfvirkra vopnakerfa á meðan risavaxin tæknifyrirtæki sópa að sér upplýsingum, fjármagni og völdum.
Og allt er þetta samtengt. Samkvæmt nýrri spá Alþjóðabankans er gert ráð fyrir að heimsmarkaðsverð á matvælum hækki um 10% á þessu ári og 7% á því næsta vegna röskunar á alþjóðlegum birgðakeðjum sem má rekja til stríða og loftlagsvár.
Og á tímum sem þessum skapast frjór jarðvegur fyrir stjórnmál sem lofa einföldum lausnum við flóknum vandamálum. Í nýútkominni bók sinni *End Times Fascism* fjalla Naomi Klein og Astra Taylor um bandalag ólíkra afla hins hnattræna öfgahægris. Kenning þeirra er sú að nýr angi fasískrar hugmyndafræði sé að mótast í skugga loftslagskreppu, vaxandi ójöfnuðar, stríðsátaka og tæknilegra umbreytinga. Í stað þess að takast sameiginlega á við þessar ógnir sætti hluti valdaelítunnar sig við yfirvofandi hamfarir og leitist þess í stað við að tryggja eigin afkomu og yfirburði meðan á þeim stendur og í þeim heimi sem bíður handan þeirra.
Þarna mætast tækniauðjöfrar sem byggja sér neðanjarðarbyrgi og láta sig dreyma um að flýja til annarra pláneta, þjóðernissinnar sem vilja reisa múra og loka landamærum til að vernda sína eigin útvöldu þjóð og trúarlegir dómsdagssinnar sem sjá í hamförum samtímans fyrirheit um heimsendi og frelsun hinna útvöldu.
Það sem sameinar þessi öfl er að þau hafa gefist upp á sameiginlegri framtíð mannkynsins. Í stað þess að bjarga heiminum ætla þau að bjarga sjálfum sér.
Kæru félagar. Þessi ólíklegu tengsl eru ekki ný af nálinni. Í Þýskalandi tóku innlend og erlend stórfyrirtæki virkan þátt í stríðsrekstri nasista og á Ítalíu tryggði Mussolini stjórn sinni aukið lögmæti með Lateran-samningunum við Páfagarð. Og nú birtast sömu einkennin. Nú eins og þá þjóna stórfyritæki markmiðum stjórnvalda og njóta á móti verndar og forréttinda. Í dag birtist þessi samtvinnun pólitísks og efnahagslegs valds í áhrifum tæknirisanna á alþjóðastjórnmál.
En ólíkt því sem gerðist þá, hafa einstaka auðmenn og stórfyrirtæki öðlast vald yfir hernaðarlega mikilvægum kerfum og tækni sem ríki eru háð. Fyrirtæki á borð við Palantir og SpaceX sjá ríkjum fyrir upplýsingakerfum, gervihnattasambandi og tækni sem gegnir lykilhlutverki í hernaði og loftvörnum.
Þegar Elon Musk neitaði að útvíkka Starlink-gervihnattasambandið til að styðja varnir Úkraínumanna við Krímskaga birtist þetta vald í sinni skýrustu mynd. Einn forstjóri í Bandaríkjunum gat með ákvörðun sinni haft bein áhrif á getu heillar evrópskrar þjóðar til að verja sig gegn innrásarher. Og þennan leik hefur hann leikið æ síðan.
En vald tæknifyrirtækjanna nær líka til upplýsinganna sem við sjáum í hversdeginum. Þau græða á að halda okkur límdum við skjái, föstum í bergmálshellum, froðufellandi yfir því hvað einhver rússneskur botti skrifaði við síðustu frétt Mörtu Maríu. Oppen-Heimir- Már, blessaður, varð þessu að bráð þegar hann tók við að ráðleggja Frakklandsforseta.
En það sem gerir þessa þróun í samtímanum sérstaklega varhugaverða er samruni efnahagslegs og pólitísks valds. Í janúar stofnaði Trump svokallað *Friðarráð* til að hafa yfirumsjón með uppbyggingu Gaza. Þar fléttast saman hagsmunir stjórnmálamanna, stórkapítals og valdamikilla ríkja. Í hugmyndum um „New Gaza“ sjá þeir fjárfestingatækifæri, lúxushótel og glæsibyggingar ofan á fjöldagröfum limlestra barna. Þar birtist kjarni hugmyndafræðinnar: Þar sem heilt samfélag hefur verið lagt í rúst á á tryggja forréttindi þeirra sem hafa völd og fjármagn í stað þess að byggja upp sameiginlega framtíð á forsendum Palestínumanna.
Kæru félagar. Fasisminn er síðasta varnarvígi kapítalismans, en kapítalisminn er kynjavera og tekur á sig margar myndir. Hann birtist ekki alltaf marserandi í herklæðum, með stutt yfirvaraskegg eða MAGA-derhúfu. Stundum birtist hann í spánýjum jakkafötum, undir merkjum fagmennsku, skilvirkni og hagræðingar.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík hefur á örfáum mánuðum fækkað stöðugildum hjá borginni um 130. Fimmtíu manns fengu nýverið uppsagnarbréf á einum degi, allt í nafni hagræðingar og skilvirkni. En það er ekki bara niðurskurðurinn sjálfur sem vekur athygli, heldur líka aðferðin. Starfsfólki var fylgt út af vinnustöðum af öryggisvörðum, rétt eins og um væri að ræða glæpalýð en ekki fólk sem var að missa vinnuna.
Hugmyndir borgarstjórnar þekkjum við líka úr fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar á sömuleiðis að hagræða og fækka stöðugildum. Í umsögn okkar við fjárlagafrumvarpið bentum við á að hallalaus fjárlög og ábyrg fjármálastjórn væru mikilvæg markmið. En það skipti öllu máli hvernig þeim væri náð.
Og það er einmitt kjarni málsins. Það er ekkert hlutlaust eða ópólitískt við að ákveða hvar eigi að skera niður, hver missi vinnuna og hvaða þjónusta eigi að sæta skerðingum. Það eru pólitískar ákvarðanir, hversu faglega sem þær eru kynntar. Hagræðing er ekki markmið í sjálfu sér. Hún hlýtur að þjóna einhverjum tilgangi.
Og kannski birtist þessi hugsun, þessi fyrirtækjavæðing hvergi jafn skýrt og í orðunum sem við notum. Róbert Ragnarsson borgarfulltrúi Viðreisnar hefur talað um „viðskiptavini leikskólanna“. Ekki börn. Ekki foreldra. Viðskiptavini. En leikskólar eru ekki bara þjónustueiningar sem þarf að reka, heldur vinnustaðir, menntastofnanir og mikilvægur hluti af lífi barna sem eru að mynda sín fyrstu tengsl við manneskjur utan fjölskyldunnar. Þeir eru snar þáttur í að auka jöfnuð og velmegun í því samfélagi sem við höfum ákveðið að byggja saman.
En þetta tungutak kapitalismans er útbreitt. Í daglegu tali tölum við um að fjárfesta í heilsunni eða sjálfum okkur, að sóa tíma, eins og daglegar athafnir séu glatað tækifæri til verðmætasköpunar. Við búum í heimi þar sem að sífellt fleiri þættir mannlífsins færast undir lögmál markaðarins. Þar sem að má gefa öllu verðmiða. Og ákvarðanir sem áður voru teknar af fólki og samfélögum hafa færst í hendur fyrirtækja og fjarlægra hagsmunaaðila. Þetta er kapitalismi á lokastigi, markaðsvæðing, þar sem jafnvel tími okkar, mannleg tengsl og náttúran eru metin á forsendum hagkvæmni og arðsemi.
Nýfrjálshyggjan og fasisminn eru ólíkar hliðar á sama teningi. Grundvallarhugmyndafræðin og hagsmunirnir eru þeir sömu. Hvoru tveggja þjóna sérhagsmunum ekki almannahagsmuni, þó að aðferðirnar og áferðin séu ólíkar. Þegar þarf að lemja er kapítalisminn hamar. Þess á milli smýgur hann hljóðlega inn í tungumálið og hugsunarháttinn.
En áður en ég skipti yfir í léttara hjal vil ég segja að innri mótsagnir kapítalismans, togstreitan milli ólíkra hagsmuna og skorturinn á trúverðugri sýn á sameiginlega framtíð eru jafnframt helstu veikleikar hans. Þessi öfl sem ég hef talað um hér í dag geta sameinast um að verja eigin forréttindi, en hafa ekkert fram að færa þegar kemur að framtíð okkar hinna.
Ýmislegt bendir hins vegar til þess að sú framtíð sé bjartari nú en hún hefur virst um langt skeið.
Í Ungverjalandi lauk nýlega sextán ára valdatíð Viktors Orbán. Í Serbíu vann stúdentahreyfingin þingkosningar eftir nærri tveggja ára mótmæli gegn spillingu. Forseti Paragvæ sagði af sér í kjölfar fjármálahneykslis, flokkur Benjamins Netanyahu tapaði fylgi í kosningunum í lok október og í vikunni misstu Repúblikanar meirihlutann í báðum deildum Bandaríkjaþings. Flestir þessara kallar eiga það sameiginlegt að vera aðilar að hinu svokallaða Friðarráði Donalds Trump.
Í Brasilíu var Lula endurkjörinn forseti í október, en skógareyðing í Amazon hefur dregist verulega saman í valdatíð hans. Í New York, höfuðborg auðvaldsins, vann sósíalistinn Zohran Mamdani borgarstjórakosningarnar í fyrra með áherslu á húsnæðismál, barnagæslu og lífskjör venjulegs fólks. Og víðar hefur fólk skipulagt sig, risið upp gegn spillingu, niðurskurði og popúlisma og krafist breytinga. Við sjáum það á mótmælaöldunni í Evrópu.
Þetta eru ólíkir atburðir og ekki allt sigrar sömu hugmyndafræðinnar. En þeir minna okkur á að vald þessara manna er hvorki óumdeilt né óhagganlegt, jafnvel þar sem valdhafar hafa um árabil virst ósigrandi. Þessir sigrar minna okkur á að fólk getur skipulagt sig, veitt valdhöfum aðhald og breytt samfélaginu. Hin alþjóðlega valdaelíta sem hefur gefist upp á sameiginlegri framtíð okkar hefur því ekki enn haft síðasta orðið!
Sama innsæi og segir okkur að heimurinn standi á heljarþröm segir okkur líka að önnur framtíð sé möguleg. Svörin eru ekki að finna í stjórnmálum ótta og útilokunar, né í niðurskurðarstjórnmálum ríkisstjórnarinnar. Þau er að finna í samstöðu fólks, samfélaga og þjóða og í því að skapa fólki raunveruleg skilyrði til að taka þátt í samfélaginu og hafa áhrif á eigin framtíð.
Félagsleg réttindi eru nefnilega ekki aðeins afrakstur pólitískrar baráttu, heldur líka forsenda hennar. Fólk sem þarf stöðugt að óttast að missa heimili sitt eða lífsviðurværi hefur minna svigrúm til að skipuleggja sig. Félagslegt öryggi gefur fólki aukið afl til að breyta samfélaginu.
Sagnfræðingurinn Howard Zinn flutti árið 1970 ræðu sem hann nefndi The Problem Is Civil Obedience. Þar hélt hann því fram að stærsti vandi samfélagsins væri hversu margir hlýddu yfirvöldum þrátt fyrir ranglæti, stríð og kúgun. Og mér finnst þetta eiga brýnt erindi við okkur í dag. Við þurfum að þora að vera óþekk. Vera frökk. Vera óþægileg. Að ögra viðteknum hugmyndum, véfengja vald og hafna því að hlutirnir geti ekki verið öðruvísi.
Kæru félagar, þegar við ræðum okkar eigin framtíð í hópastarfinu hér á eftir þurfum við að þora að hugsa stórt. Að velta öllum steinum, horfa á stöðu okkar í íslenskum stjórnmálum og gerjunina á vinstrivængnum og ræða af opnum hug hvernig við getum haft mest áhrif. Við þurfum að hafa dug til að taka samtalið alvarlega, án þess að óttast hvert það leiðir okkur.
Við þurfum ekki að vera sammála um allt til að standa saman um það sem skiptir mestu. Og við þurfum ekki að hafa öll svörin til að byrja að byggja okkur upp að nýju. Hreyfing verður ekki til af því að einhver skrifar fullkomna stefnuskrá. Hún verður til af því að fólk kemur saman, tekur ábyrgð og ákveður að láta til sín taka.
Það er full ástæða til að óttast margt af því sem er að gerast í heiminum. En það er ekkert hægt að byggja á óttanum einum saman. Von er ekki það sama og að trúa því að allt muni fara vel. Von er að trúa því að það sem við gerum geti skipt máli.
Við eigum ekki að byggja stjórnmálahreyfingu sem hefur það eitt að markmiði að halda sjálfri sér gangandi. Við eigum að byggja hreyfingu sem hefur eitthvað að segja um framtíðina. Sem ver réttindi fólks, náttúruna og lýðræðið, en gleymir aldrei að tilgangurinn með stjórnmálum er að gera lífið betra.
Okkar hlutverk er að skapa lifandi hreyfingu sem berst fyrir lifandi heimi. Takk fyrir mig
Ég set þennan fund formlega, og áður en ég kynni ég inn formann flokksins þá eru hér starfsmenn fundarins, Jana Salóme og Viktor Árnason, Rósa Björk gerðu svo vel!