PO
EN

Ræða Rósu Bjarkar formanns VG á flokksráðsfundi

Deildu 

Kæru félagar !

Mikið óskaplega er gott að sjá ykkur öll og koma saman í dag, fá tækifæri til að ræða pólitík við ykkur og líta til framtíðar saman. Ég veit ekki með ykkur en mér líður eins og hér séum við í einu góðu, stóru fjölskylduboði!

Þegar ég horfi hér yfir salinn þá sé ég fjölbreyttan félagahóp:  Sumir hafa mætt á alla flokksráðsfundi frá upphafi, sumar eru að mæta á sinn fyrsta fund í lífinu, sum ykkar eru að mæta á ykkar fyrsta flokksráðsfund (velkomin ! 

Öll erum við hér samankomin af því það er eitthvað sem sameinar okkur þrátt fyrir að við séum ólík; Við búum um allt land, erum á mismunandi aldri, með ólíka reynslu í farteskinu og erum að gera misjafna hluti í lífinu.

EN við erum öll í VG og hér í dag af því við eigum eitthvað sameiginlegt. Við höfum trú á stefnumálum okkar og pólitíkinni okkar. Þarna liggja lífskoðanir okkar sem við viljum að séu til staðar í íslenskum stjórnmálum og þar með hluti af íslensku samfélagi.

Auðvitað erum við ekki sammála um alla hluti, þótt það væri nú. Eins og í sumar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.

Og það er allt í lagi. Það er allt í lagi að vera ekki alltaf alveg sammála þó við séum í sömu stjórnmálahreyfingunni.

Það sem við þurfum að vera sammála þó um er að virða skoðanir annarra, hlusta á aðra og að geta rætt málin og jafnvel rætt okkur niður á niðurstöðu.

Við verðum sem félagar og hreyfing að vera alltaf á tánum, vera með opinn huga og tilbúin til að breyta um skoðun eða stefnu í takt við samfélagslegar breytingar, breytingar á alþjóðasviðinu eða sem viðbragð við stórum atburðum. Ekki loka okkur inni, heldur tilbúin til að endurnýja okkur, þróast og þroskast sem félagar og sem stjórnmálaafl um leið.

VG hefur alltaf látið sig alþjóðamálin varða og jafnvel meira en margir aðrir stjórnmálaflokkar. Ekkert stjórnmálaafl hefur eins sterka og afdráttarlausa friðarstefnu og við. Fáir aðrir flokkar lýsa yfir jafn afdráttarlausum stuðningi við alþjóðastofnanir og við. Og við í Vinstri grænum höfum ávallt stutt við lítilmagnann í alþjóðlegu tilliti; hvort sem það hefur verið einarður stuðningur við Palestínu, Úkraínu eða við önnur ríki eða þjóðarhópa sem hafa viljað losna undan oki og áþján nýlenduríkja.

Allt þetta gerum við áfram.

Við eigum líka að halda áfram að tala fyrir alþjóðlegri samvinnu, að efla alþjóðastofnanir og samtök, efla tengsl við grannþjóðir okkar og leggja ríka áherslu á samstarf við Evrópu. Alveg eins og segir orðrétt í stefnu okkar.

Því við búum á eyju en erum ekki eyland. Við viljum geta treyst á aðra og aðrir eiga að geta treyst á okkur.

Fyrir kjarnamál okkar – umhverfismálin – er alþjóðasamvinna bráðnauðsynleg eins og sérfræðingarnir sem hingað koma á eftir segja okkur betur frá. Til að takast á við stærstu verkefnin sem mannkynið stendur frammi fyrir þurfum við meir en nokkru sinni fyrr á alþjóðasamvinnu og samstarfi að halda. Öðruvísi getum við ekki spornað við hamfarahlýnun og afleiðingum hennar.

Kæru félagar.

Það sem við í núverandi stöðu Vinstri grænna þurfum á að halda er að standa saman þrátt fyrir ólíkar afstöður í einstaka málum, því það er svo miklu meira sem sameinar okkur en sundrar. Það getum við af því við búum yfir sterkum stefnumálum, dýrmætri reynslu, innra skipulagi og öflugum félögum. Þetta eru okkar verðmæti sem aðrir flokkar öfunda okkur af. Þrátt fyrir áföll í fortíðinni og tímabundið lágt fylgi í skoðanakönnunum. Sem mun breytast.

En staða okkar í dag er áskorun. Ég ætla ekki að fara í felur með það eða neita að horfast í augu við það.  

Það væri gaman að mælast hærri í skoðanakönnunum…en það kemur. Ég hef óbilandi trú á því.

Þá reiðum við okkur á sjálfboðaliða, dygga félaga, styrktarmannakerfið, félagsgjöld, svæðisfélögin og virkni þeirra en ekki síst ykkar trúmennsku, hugmyndaauðgi og frumkvæði. Ég væri sannarlega til í að fjármálin væru miklu mun betri og við ættum nóg af peningum en við þurfum að bíða þangað til við náum inn þingmönnum.

En ég er kannski soldið skrítin en mér finnst þessi staða líka vera spennandi. Við erum í uppbyggingu. Höfum tíma til að líta inn á við, skipuleggja okkur, fá hugmyndir í þröngri stöðu – sem eru oft bestu hugmyndirnar – virkja samstöðuna og finna aftur kraftinn og viljann sem er þarna…

Til þess þurfum við að hafa trú á verkefninu, standa með hugmyndafræðinni okkar og stefnumálum okkar og tala okkur upp en ekki niður. Standa með fólkinu okkar.  Standa með félögunum sem eru að axla ábyrgð fyrir hönd Vinstri grænna en ekki síst, fyrir hönd kjósenda okkar.  

Félagar.

Ég er ótrúlega stolt af okkar kjörnu fulltrúum á sveitarstjórnarstiginu: Þau standa vaktina. Fólkið okkar í Borgarbyggð komst ekki í dag því þau eru að halda fund með félögum til að ræða hvernig þau móta andstöðuna sína við sölu á hlut í Ljósleiðaranum – innviðasameign í eigu og þágu almennings. Okkar fólk í borgarstjórn Reykjavíkur hefur staðið í stafninum og mótmælt ömurlegum niðurskurði hægriflokkanna í meirihlutanum að undanförnu. Fulltrúar okkar í VG og óháð í Múlaþingi eru í fararbroddi í baráttunni gegn stórkarlalegum sjókvíaeldisáformum sem skaða lífríki og valda ójafnvægi í Seyðisfirði. Fulltrúar okkar í bæjarstjórn á Akureyri hafa mótmælt áformum um gagnaver og stóriðnað í Eyjafirði og hafa staðið vörð um menningu og listir á Akureyri þegar aðrir flokkar hafa þagað um það þar til nýlega. Okkar fulltrúi í Norðurþingi er heldur betur að standa vaktina gegn gegndarlausum áróðri um vindorkugarð á viðkvæmum svæðum Melrakkasléttu og ágangi ráðherra umhverfismála í að færa til orkukosti á svæðinu í Rammaáætlun.

Þetta eru dæmi um það sem okkar fólk er að gera – þau standa vaktina með stefnumál okkar að leiðarljósi.

Við stöndum ekki bara frammi fyrir snúinni stöðu okkar eigin hreyfingar, heldur stöndum við frammi fyrir því að enginn flokkur er á þingi sem talar fyrir hagsmunum loftslags og náttúru. Enginn flokkur er á Alþingi sem veitir stjórninni aðhald frá vinstri með þunga á alvöru velferð og félagslegt réttlæti. Enginn flokkur er á Alþingi sem talar fyrir og með innflytjendum.  Þetta er vont fyrir íslenskt samfélag, lýðræðið og samfélagsumræðuna.

Og við sjáum afraksturinn af þessari stöðu í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar með þráhyggju fyrir hallalausum fjárlögum. En hverjum gagnast þessi svokallaða ábyrga efnahagsstjórn? Þeim sem eru veikir og þurfa nú að borga helmingi hærri komugjöld á heilsugæsluna? Fólkinu sem þarf til sjúkraþjálfara og í endurhæfingu eftir sjúkdóma eða slys og þarf nú að borga hærra gjald en áður?  Gagnast ábyrga efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar fólki með fötlun þegar dregið er saman um einn og hálfan milljarð í málaflokkinn þeirra og þjónustu við þau? Er það ábyrg efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar þegar þau hætta við 3 milljarða í stofnframlög í óhagnaðardrifið húsnæði. Sem á að tryggja lágtekjufólki öruggt, gott langtímaleiguhúsnæði og getur breytt aðstæðum þeirra svo um munar.  

Hver ber raunverulegan kostnað af hallalausum fjárlögum þegar forsendur breytast? Það er fólkið sjálft þegar kostnaður vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu er færður í auknum mæli yfir á almenning og stóru sjúkrahúsin eru á rauðu ljósi í rekstrinum.

Við í Vinstri grænum viljum að aðgengi að heilbrigðisþjónustu ráðist af þörf fólks til lækninga en ekki hvort þau geta greitt fyrir heilbrigðisþjónustuna.

Við sjáum hallalausu þráhyggjuna í loftslagsmálunum þegar framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3,2 milljarða króna milli ára. Þetta gerist á sama tíma og við vitum að við erum langt frá því að ná okkar eigin loftslagsmarkmiðum. Á tímum þegar loftslagsváin er svo aðkallandi að við megum engan tíma missa, eins og fram kom í máli Johan Röckström í Háskólabíói á dögunum.

Og svo eru það störfin. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent, eða um 200 störf. Þetta er ákveðið  á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist, sér í lagi meðal ungs fólks sem er mikið áhyggjuefni, og engin vinnumarkaðsúrræði á sjóndeildarhringnum.

Hver tekur við verkefnunum sem fólkið sinnir? Og hver sinnir fólkinu sem þarf á þjónustunni að halda? Álagið færist yfir á fjölskyldur og aðstandendur og í flestum tilvikum eru það konur sem taka að sér ólaunuð störfin. Þörfin fyrir þjónustu hverfur nefnilega ekki þegar ríkið sker niður þjónustu. Hún færist bara annað. Inn á heimilin og oft á herðar þeirra sem síst hafa svigrúm til að bera hana. Gleymum heldur ekki að mestur fjöldi opinberra starfsmanna eru konur, þannig að þær munu að öllum líkindum finna meira fyrir uppsögnum á opinberum markaði. Bæði hjá ríki og borginni.

Við sjáum líka að ríkistjórnin ætlar að dragar úr stuðningi við rannsóknir, nýsköpun og þekkingarsköpun. Raunútgjöld til nýsköpunar og rannsókna lækka um 10,7 prósent milli ára. Þetta þýðir samdrátt í fjárfestingum í framtíðinni, í störfum, verðmætasköpun og í getu samfélagsins til að takast á við þær miklu samfélagsbreytingar sem eru fram undan.

Kæru félagar.

Við í Vinstri grænum vörum við efnahagsstefnu niðurskurðar og þjónustuskerðingar við venjulegt fólk til þess að ná hallalausum fjárlögum hratt. Það er ekki nóg að hreykja sér af því að tölurnar í ríkisreikningnum líti vel út. Bakvið þær er fólk, líf þeirra og aðstæður. Fólkið sem þarf heilbrigðisþjónustu, börn og ungmenni sem þurfa stuðning, fólkið sem þarf öruggt húsnæðið, starfsfólkið sem heldur uppi grunnþjónustunni og náttúran sem okkur ber að vernda og skila til komandi kynslóða.

Auðvitað þarf hagstjórn að vera ábyrg en við í Vinstri grænum gagnrýnum þessa hörðu forgangsröðun.

Og til að bæta olíu á eldinn er sama uppi á teningnum í borginni. Þar hafa hægriflokkarnir Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Viðreisn rekið ömurlega niðurskurðarstefnu og sagt upp 130 manns á síðustu 5 mánuðum, dregið úr þjónustu við borgarbúa og áætla nú að selja hluti í innviðafyrirtækjum í eigu almennings!

Þessi miskunnarlausa aðhalds – og niðurskurðarpólitík á ekkert skylt við að halda úti manneskjulegu samfélagi þar sem hver og einn getur dafnað og þrifist með góðu stuðningskerfi hins opinbera, hreinni náttúru og sjálfbærari aðlaðandi framtíðarsýn. Ábyrg ríkisfjármál mælast nefnilega líka í að tryggja velferð, jöfnuð, náttúruvernd og lífsgæði fólks.

Kæru félagar,

Okkar auður og verðmæti er skýr og afdráttarlaus stefna og algjör sérstaða þegar kemur að grænu málunum.

Með þá stefnu skulum við leggja á borð hvers konar samfélag við viljum búa í.

Viljum við ekki samfélag þar sem fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort það hafi efni á að leita sér heilbrigðisþjónustu? Þar sem ungt og tekjulægra fólk getur eignast heimili og fjölskyldur búa við öryggi. Þar sem náttúran er ekki sett undir þrönga sérhagsmuni og græn framtíð er ekki bara falleg orð í stefnuyfirlýsingum heldur raunveruleg forgangsröðun. Þar sem tölum ekki um að fjölga hermönnum á Íslandi, heldur um frið og friðsamlegar lausnir og samvinnu við aðrar þjóðir til að leysa vandamál og ógnir þvert á landamæri?

Hvernig viljum við að Ísland líti út eftir tíu, tuttugu eða þrjátíu ár?

Við viljum samfélag sem fjárfestir í fólki, þekkingu, menningu og framtíðinni. Samfélag sem trúir á frið, alþjóðasamvinnu, virðingu fyrir minnihlutahópum og styður við mannréttindi í hvívetna. Samfélag þar sem jöfnuður, réttlæti, náttúruvernd og loftslagsaðgerðir eru ekki gæluverkefni heldur grunnurinn.

Þetta er ekki einhver draumsýn. Allt þetta er pólitísk sýn sem þarf að vera til staðar núna í íslensku samfélagi

Og það er þess vegna sem Vinstri græn skipta máli.

Í dag skulum við ræða um framtíðina, það sem við sameinumst um að setja í forgang á næstu mánuðum og árum. Það sem við getum saman sótt fram í, og látið skipta máli.

Við þurfum ekki að vera stór flokkur til að hafa áhrif á íslensk stjórnmál.

Við þurfum að vera skýr, hugrökk og samstíga í því sem við stöndum fyrir.

Gangi okkur vel á fundinum og áfram Vinstri græn !

Takk !

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search