PO
EN

Fundur EVG annað kvöld

Deildu 

Við minnum á annan fund vetrarins hjá Eldri Vinstri grænum (EVG) á morgun, miðvikudag 11. nóvember kl. 20 að Stangarhyl 4, í húsnæði FEB. Fundurinn er bæði fróðlegur og skemmtilegur, fjallar um stjórnmál dagsins og hluta af sögu íslensks landbúnaðar:

1. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG, fjallar um stöðuna í stjórnmálum, næstu skref og niðurstöðu Flokksráðsfundar 8. nóv.

2. Kaffi, kleinur og spjall

3. Anna Fjóla Gísladóttir og Gísli B. Björnsson, fjalla um nýútkomna og stórmerkilega bók sína Réttir á Íslandi. Í bókinni er í fyrsta sinn skráðar upplýsingar um merkileg mannvirki og í henni eru myndir af 700 nafngreindum réttum ásamt fróðlegum texta um 250 þeirra.

4. Og söngur eins og ævinlega, nú undir styrkri stjórn Sigursveins Magnússonar og Sigrúnar V. Gestsdóttur.

Fundarstjóri: Guðrún Hallgrímsdóttir að venju

Almennt um fundina: Kaffihlé og kleinur um kl. 21.00. Munið seðil í kaffisjóðinn !

Sem fyrr er fólk hvatt til að taka með sér gesti því fundirnir eru öllum opnir.

Næsti fundur verður svo miðvikudaginn 9. desember 2026 á sama stað. Dagskrá þess fundar auglýst síðar.

Kveðja frá undirbúningshópnum:

Þuríður 861-9031;Sigurbjörg 896-7735;
Ingibjörg 849-5273; Páll 896-0981;
Valgerður 862- 9028; Guðrún 899-7783;
Steinar 695-0414; Sigursveinn 888-1485

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search