PO
EN

Vinstrið heldur opinn fund um borgarmálefnin

Deildu 

Nýr hægrimeirihluti hefur tekið við og áherslur hans leyna sér ekki. Borgarstjórnarhópur Vinstrisins mun fara yfir atburði síðustu mánaða og viðbrögð Vinstrisins, ræða við hverju má búast á komandi misserum og hvaða mál Vinstrið mun setja á dagskrá.
Við hvetjum grasrót Vinstrisins sem og öll þau sem hafa áhuga á borgarmálum og vinstri pólitík til að mæta og taka þátt í samtalinu.

Fundurinn verður haldinn í Sjálfsbjargarsalnum Hátúni 12, sunnudaginn 15. nóv. kl. 17-18. Aðgengi er fyrir hjólastóla. Hlökkum til að sjá ykkur og ræða málin.

Borgarstjórnarflokkur og stjórn Vinstrisins

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search