Search
Close this search box.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Heimsráðs kvenleiðtoga.

Deildu 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók í dag við formennsku í Heimsráði kvenleiðtoga. Hún tekur við embættinu af Kolindu Grabar-Kitarović, fráfarandi forseta Króatíu, sem gegnt hefur formennsku frá mars árið 2019.

Heimsráð kvenleiðtoga var stofnað árið 1996 af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands og Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands ásamt Lauru Liswood, stjórnmálafræðingi, sem enn starfar sem framkvæmdastjóri þess. Félagar í samtökunum eru starfandi og fyrrverandi forsetar og forsætisráðherrar úr röðum kvenna, alls 77 konur frá yfir fimmtíu ríkjum.

Heimsráðið hefur þá sérstöðu að vera einu samtökin sem sameina leiðtoga þjóða og ríkisstjórna úr röðum kvenna. Samtökin eru starfrækt á vettvangi Félags Sameinuðu þjóðanna í Washington.

Markmið ráðsins er að hvetja konur í valdastöðum um heim allan til að láta sig jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna varða. Ráðið einsetur sér jafnframt að stuðla að góðum stjórnarháttum í því skyni að koma á jafnrétti og tryggja lýðræði. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra: 

Það er mér heiður að taka við formennsku í Heimsráði kvenleiðtoga, og feta þar með í fótspor Vigdísar Finnbogadóttur sem var meðal stofnenda samtakanna og fyrsti formaður þeirra. Samtökin eru einstakt tengslanet fyrir starfandi og fyrrverandi forseta og forsætisráðherra úr röðum kvenna. Þau stuðla að mikilvægri samvinnu um aukin réttindi kvenna og stúlkna um heim allan. Ég mun nýta formennskuna til að setja baráttuna gegn loftslagsvánni á oddinn, ásamt því að standa vörð um og efla almenn mannréttindi og réttindi kvenna. Þá eru réttindi og kjör barna mér hugleikin en nýleg skýrsla virtra alþjóðastofnana sýnir að þar geta þjóðir heims gert mun betur.“

Hér má nálgast frétt á vefsíðu Heimsráðs kvenleiðtoga.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search