Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur greint frá ákvörðun sinni um tilslakanir á samkomum og skólahaldi, sem taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunum. Þá verða fjöldamörk samkomubanns hækkuð úr 20 í 50.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag, en þar kynntu forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra næstu skref stjórnvalda vegna kórónuveirunnar.
Svandís greindi ennfremur frá því, að heimilt verði að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s á hárgreiðslu-, nudd- og snyrtistofum. Þá geta tannlæknar tekið til starfa og söfn geta opnað á ný. Ákvörðun Svandísar er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Slakað á takmörkunum í skrefum
Fram kemur í tilkynningu frá stjórnvöldum, að rúmlega 1.700 manns hafi greinst með COVID-19 hér á landi og rúmlega 100 manns hafi lagst inn á sjúkrahús af völdum sjúkdómsins. Fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra að nýsmitum hafi farið fækkandi að undanförnu. Telja megi víst að faraldurinn sé í rénun hér á landi sem þakka megi víðtækum samfélagslegum aðgerðum sem gripið hafi verið til. Sóttvarnalæknir bendi á að samfélagslegt smit sé lítið eða innan við 1% samkvæmt sýnatökum Íslenskrar erfðagreiningar. Það þýði að ef slakað sé um of á gildandi takmörkunum skapist hætta að faraldurinn blossi upp aftur. Sóttvarnalæknir leggi því til að slakað verði í takmörkunum í skrefum sem verði endurskoðuð með þriggja til fjögurra vikna millibili.
Helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi
Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.
Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.
Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.
Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal tveggja metra fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.
Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfssemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.
Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
- Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
- Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem unnt, einkum hjá eldri börnum.
Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
- Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
- Snertingar óheimilar og halda skal tveimur metru á milli einstaklinga.
fyrst birt á mbl.is