Á mánudaginn, á degi íslenskrar tungu, var á upplýsingafundi Almannavarna spurt um uppáhalds Covid-nýyrði framlínufólksins okkar. Á þeim vettvangi hafa þónokkur orð sprottið upp í daglegri notkun, til dæmis fordæmalaus og smitrakningarteymi. Í yfirstandandi bylgju faraldursins sem hefur fylgt okkur í haust hefur mikið borið á tveimur slíkum nýyrðum, Covid-þreytu og farsóttarkvíða.
Þær eru sífellt háværari raddirnar sem gagnrýna sóttvarnarráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Sumum þykja þær of harðar og jafnvel beinlínis traðka á mannréttindum fólks, jafnvel þótt þær séu allar byggðar á gildandi sóttvarnarlögum sem samþykkt voru á Alþingi. Auðvitað hafa allir rétt á því að tjá skoðun sína á þeim aðgerðum sem stjórnvöld grípa til, sér í lagi þegar þær eru viðamiklar og hafa áhrif á daglegt líf hvers einasta Íslendings.
Þeir sem hæst hafa hrópað í gagnrýni sinni og verið stórorðir um hversu langt stjórnvöld gangi hafa gjarnan viljað líta til Svíþjóðar. Þar hafi ekki verið gengið langt í samkomutakmörkunum, fólk verið tiltölulega frjálst á meðan flestar aðrar þjóðir í Evrópu hafi skellt í lás. Þar hafi verslun og þjónusta ekki þurft að þola jafn mikið högg og hér á landi.
Í fyrradag var hins vegar greint frá því að ríkisstjórn Svíþjóðar sér sig tilneydda að snar herða sóttvarnir þar í landi og munu samkomur þar í landi takmarkast við 8 manns frá og með 24. nóvember. Þetta kemur í kjölfar þess að fimmti hver íbúi Stokkhólms virðist vera smitaður. Þar hefur veirutilfellum fjölgað gríðarlega síðustu vikurnar og ný met slegin í hverri viku.
Hér á landi, þar sem gripið hefur verið til ráðstafana með tilliti til aðstæðna hverju sinni, hefur dreifing veirunnar aldrei farið algerlega úr böndunum og staðan því öll önnur. Við sjáum fyrir endann á þessari lotu og vonandi þá síðustu í svo hertum samkomutakmörkunum og á sama tíma fer nýjum smitum innanlands fækkandi með hverjum degi.
Með því að passa okkur áfram og aflétta takmörkunum ekki á einu bretti munu við svo vonandi getað átt ljúfa aðventu og jólahald þannig að fjölskyldur geti hist í svartasta skammdeginu og fagnað því að bráðum birtir til með hækkandi sól.
Við erum á réttri leið. Sóttvarnarráðstafanir eru íþyngjandi og sumar hverjar fólki til ama. Þær eru inngrip í daglegt líf og venjur fólks og það er mikilvægt að við séum vakandi fyrir þeim áhrifum sem þær kunna að hafa, til dæmis á andlega heilsu fólks. En það bendir hins vegar allt til þess að þær hafi verið og séu rétt skref og að við séum á réttri leið. Fréttir síðustu daga af bóluefnum blása manni svo von í brjóst um að bráðum komi hér betri tíð. Þetta er verkefni okkar allra. Almenningur á hrós skilið fyrir þátttöku sína í sóttvarnarráðstöfunum. Þegar upp verður staðið mun það verða sigur allrar þjóðarinnar sem vinnst gegn veirunni.
Höfundur er þingflokksformaður Vinstri grænna.