Search
Close this search box.

Ályktun flokksráðs um friðsamlegt og öruggt samfélag

Deildu 

Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn 29-30. janúar 2021, fordæmir árásir við heimili borgarstjóra og höfuðstöðvar stjórnmálasamtaka. Þessar árásir eru ofbeldi og aðför að lýðræðislegu og opnu samfélagi og eiga ekki að líðast. Lýðræðislega kjörnir fulltrúar eiga ekki að þurfa að þola hótanir um ofbeldi, eignaspjöll eða þaðan af verra og eiga að njóta friðhelgis einkalífs síns rétt eins og annað fólk. Það er staðreynd að fólk sem lætur sig samfélagsmál varða og tekur þátt í pólitískri umræðu er útsettara fyrir níði, hótunum, ofbeldi og hatursummælum. Þessu eigum við að sporna við í hvívetna enda viljum við samfélag þar sem við getum skipst á skoðunum á uppbyggilegan og jákvæðan hátt og verið frjáls undan ofbeldi, hótunum og kúgun svo öll þau sem taka þátt í pólitískri umræðu og við öll getum farið frjáls ferða okkar í friðsamlegu og öruggu samfélagi.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Túngötu 14

101 Reykjavík

vg@vg.is

KT: 421298-2709

Þessi síða styðst við vafrakökur (cookies) til að bæta virkni síðunnar. Með því að vafra um síðuna samþykkir þú notkun þeirra.

Search