Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum á lista hreyfingarinnar í kjördæminu fyrir komandi þingskosningar í haust.
Framboðsfrestur rennur út á miðnætti, mánudaginn 8. mars 2021.
Þau sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörstjórnar í tölvupósti á netfangið sudur@vg.is. Einnig er hægt að stinga upp á frambjóðanda með ábendingu til kjörstjórnar, sem leitar þá eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.
Óháð forvalinu er mögulegt að gefa kost á sér í sæti 6 – 20.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða þig fram á lista VG í Suðurkjördæmi í sæti 6 – 20 eða vilt benda á einhvern sem þér líst vel á, sendu póst á sudur@vg.is fyrir miðnætti, 21. apríl.
Öll þau sem áhuga hafa á að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvött til að gefa kost á sér.
Forvalsreglur og lög VG má nálgast á vef Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs vg.is
Kosningin er rafræn og stendur frá miðnætti 10. apríl – 12. apríl klukkan 17.00, 2021 en kjördæmisstjórn Suðurkjördæmis annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni og fundum.
Til að kjósa í forvalinu þarf að:
– vera félagi í Vg, það er gert með því að skrá sig á heimasíðu www.vg.is.
– til að fá að kjósa í forvalinu þarf að skrá sig fyrir 31. mars.
– vera með lögheimili í Suðurkjördæmi, eða skráður í VG félag í kjördæminu.
– eiga íslykil eða rafræn skilríki.
– Kosið er rafrænt á heimasíðu vg.is
Allar nánari upplýsingar veita:
Sæmundur Helgason, formaður kjörnefndar í Vg-Suður í síma 894-0524
eða Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Vg í síma 896-1222,