Umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til XII. Umhverfisþings þriðjudaginn 27. apríl 2021. Í ljósi samkomutakmarkana vegna Covid-19 faraldursins fer þingið fram með rafrænum hætti.
Meðal umfjöllunarefna verða loftslagsmál, náttúruvernd og hringrásarhagkerfið. Gert er ráð fyrir að þingið standi frá kl. 13 – 16. Allar nánari upplýsingar: https://www.stjornarradid.is/verkefni/umhverfi-og-natturuvernd/vidburdir-og-sjodir/umhverfisthing/dagskra-2021/