50% félaga á kjörskrá Vg í Suðurkjördæmi höfðu kosið í hádeginu í dag, þegar kosningin er hálfnuð. En forvalinu lýkur klukkan 17.00 annað kvöld. Nú hvetjum við alla félaga sem þekkja til í Suðurkjördæmi að minna þá sem eiga eftir að kjósa í forvalinu að. FARA INN Á HEIMASÍÐU VG OG KJÓSA. Sæmundur Helgason, formaður kjörstjórnar og Valgeir Bjarnason, formaður kjördæmisráðsins eru til taks ef spurningar vakna varðandi kosninguna. Björg Eva og Hreindís á skrifstofu Vg eru það líka. Þetta er annað forvalið í Vg fyrir alþingiskosningarnar 25. september. Fyrsta forvalið var haldið í Norðausturkjördæmi og þá kusu 63%. Við reiknum með enn meiri þátttöku í þessu forvali enda er spennan mikil, þar sem fimm frambjóðendur takast á um fyrsta sæti á lista í kjördæminu.
17Anna Lísa Björnsdóttir, Almar Sigurðsson og 15 til viðbótar