15.-17. apríl fór fram rafrænt forval hjá Vinstri hreyfingunni grænu framboði í Suðvesturkjördæmi. Valið var í fimm efstu sæti á framboðslista hreyfingarinnar í alþingiskosningunum sem fram fara í haust.
Niðurstaða forvalsins er eftirfarandi:
1. sæti Guðmundur Ingi Guðbrandsson með 483 atkvæði í 1. sæti
2. sæti Ólafur Þór Gunnarsson með 361 atkvæði í 1.-2. sætið
3. sæti Una Hildardóttir með 482 atkvæði í 1.-3. sæti
4. sæti Kolbrún Halldórsdóttir með 435 atkvæði í 1.-4. sæti
5. sæti Þóra Elfa Björnsson með 421 atkvæði í 1.-5. sæti
9 voru í framboði
Á kjörskrá voru 1699
Atkvæði greiddu 844
Kosningaþáttaka var 50%
Auðir seðlar 1
Kjörstjórn leggur fram lista með 22 frambjóðendum fyrir kjördæmisþing til samþykktar í samræmi við lög og stefnu hreyfingarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Ásbjörn Björgvinsson, formaður kjörstjórnar, 891 9820.