Í gær, þann 23. apríl 2021, höfðu samtals 80.721 manns fengið fyrsta eða báða skammta bóluefnis gegn Covid-19. Það eru rétt tæplega 29 prósent af heildarfjölda þeirra sem fyrirhugað er að bólusetja hér á landi. Þeir sem eru fullbólusettir voru í gær 32.609 einstaklingar, eða tæp 12% þeirra sem áætlað er að bólusetja. Í næstu viku, frá 26. – 30. apríl, munu tæplega 23.000 einstaklingar fá fyrri bólusetningu með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Janssen. Í heildina verða gefnir um 25.000 skammtar í þeirri viku, sem verður stærsta vikan í bólusetningum á Íslandi vegna Covid-19 frá upphafi.
Um mánaðamótin apríl/maí munu því um 104.000 einstaklingar hafa fengið að minnsta kosti einn skammt bóluefnis. Eftir því sem bólusetningum vindur fram komum við fleirum í skjól fyrir veirunni og áhrifum hennar. Nú höfum við bólusett elstu aldurshópana, íbúa hjúkrunarheimila og erum byrjuð á þeim sem hafa undirliggjandi langvinna sjúkdóma, sem er mjög mikilvægur áfangi.
Það er því óhætt að segja að bólusetningar gangi vel. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og aðrir aðilar sem koma að framkvæmd bólusetninga eiga hrós skilið fyrir vaska og góða vinnu við skipulagningu og framkvæmd.
Fyrsta sending af bóluefni við Covid-19 barst til landsins 28. desember á síðasta ári og hófst bólusetning daginn eftir. Við lok fyrsta ársfjórðungs ársins 2021, í lok mars, höfðu 49.300 einstaklingar verið bólusettir með a.m.k. fyrri skammti bóluefnis. Það er í samræmi við áætlanir heilbrigðisráðuneytisins um afhendingar bóluefna á því tímabili.
Á öðrum ársfjórðungi ársins, þ.e. í apríl, maí og júní, munu bóluefni berast okkur enn hraðar en á þeim fyrsta. Spár gera ráð fyrir því að við lok annars ársfjórðungsins, þ.e. 1. júlí 2021, hafi allir sem eru 16 ára og eldri fengið a.m.k. fyrri skammt bóluefnis gegn Covid-19. Í byrjun maí gerum við ráð fyrir að allir sem eru yfir 60 ára hafi fengið að minnsta kosti fyrri skammt bóluefnis og þann 1. júní áætlum við að allir sem eru yfir 50 ára hafi fengið a.m.k. fyrri skammtinn.
Bólusetning eldri hópa dregur úr hugsanlegum beinum afleiðingum faraldurs, þar sem líkur á alvarlegum veikindum aukast í takti við aldur. Framgangur bólusetninga hefur því afgerandi áhrif á það hversu hratt við getum farið að lifa eðlilegra lífi, án þess að íþyngjandi reglur um samkomutakmarkanir séu í gildi. Það er því fagnaðarefni að bólusetningar ganga vel og að við sjáum fram á bjartari tíma. Gleðilegt sumar!
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.