Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var samþykktur á fjölmennum flokksráðsfundi hreyfingarinnar nú rétt áðan. 80% flokksráðsfulltrúa samþykktu sáttmálann. Á annað hundrað manns sótti fundinn, þar af voru tæplega hundrað með atkvæðisrétt sem flokksráðsfulltrúar. Fundurinn var haldinn sem bæði fjarfundur og staðfundur, þannig að VG-fólk allsstaðar að af landinu átti hægt um vik að vera með. Miklar umræður urðu um stjórnarsáttmálann og var fundur VG lengri en sambærilegir fundir hinna stjórnarflokkanna, enda rík hefð innan hreyfingarinnar að ræða málin vel og lengi.
Upplýsingar
Kosningamiðstöðvar
Suðurlandsbraut 10, Rvk Brekkugata 7, Akureyri