Kæri félagi!
Svæðisfélag VG í Hafnarfirði boðar til rafræns félagsfundar miðvikudaginn 5. janúar 2022, kl. 20:00 til að kjósa fulltrúa félagsins á aðalfund kjördæmisráðs 20. janúar 2022. Fundurinn fer fram á Zoom.
Í kjördæmisráði á hvert svæðisfélag rétt á einum fulltrúa með atkvæðisrétt fyrir hverja fimm félagsmenn. Sjá nánar í Lög Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi: https://vg.is/wp-content/uploads/2019/06/KDR_Sudvestur.pdf
Á fundinum verður jafnframt gengið frá vali í kjörstjórn félagsins. Hlutverk kjörstjórnar er að halda utan um framboð félagsins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí næstkomandi.
Zoom slóð verður send á póstlista félagsins.
Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári!
Stjórn VG í Hafnarfirði