Fyrri af tveimur framboðsfundum Vinstri grænna í Reykjavík fer fram 21. febrúar kl 20.
Á fundinum fá frambjóðendur í forvali Vinstri grænna í Reykjavík að kynna sig og sína málefnastöðu. Átta manns eru í framboði:
- Andrés Skúlason, verkefnastjóri, í 2. sæti
- Bryngeir Arnar Bryngeirsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur og gönguleiðsögumaður, í 2.-3. sæti
- Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur, í 1. sæti
- Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi, í 1. sæti
- Elínrós Birta Jóns- og Valborgardóttir, sjúkraliði, í 2.-3. sæti
- Íris Andrésdóttir, grunnskólakennari, í 2.-3. sæti
- Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi, í 1. sæti
- Stefán Pálsson, sagnfræðingur, í 2. sæti
Fundurinn verður haldinn sem fjarfundur á Zoom.
Ræðutími, fundarstjórn og annað fyrirkomulag verður kynnt innan skamms.
Hlekkur á fundinn er hér.
Meeting ID: 846 7483 2939
Passcode: 511321
Stjórn VGR hefur tekið ákvörðun um að halda tvo framboðsfundi fyrir kosningar til forvals; einn fjarfund og einn staðfund. Forvalið fer fram dagana 2.-5. mars. Frekari upplýsingar má finna hér.