Ályktun til stuðnings Pussy Riot
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir framgang rússneskra stjórnvalda gagnvart aðgerðasinnunum Pussy Riot sem hlotið hafa tveggja ára dóm fyrir friðsamleg mótmæli. Þessi valdbeiting er aðför að tjáningarfrelsi og brýtur í bága við þau grundvallar mannréttindi sem eiga að einkenna nútíma samfélög.
Ályktun um samskipti Íslands við aðrar þjóðir eða þjóðabandalög
Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að móta sjálfstæða íslenska utanríkis- og friðarstefnu. Vinstrihreyfing grænt framboð telur að grundvöllur alþjóðlegs samstarfs í samfélaginu eigi að vera lýðræðisleg vinnubrögð og barátta fyrir friði og öryggi í heiminum. Vinstrihreyfingin-grænt framboð leggur áherslu á að efla samstarf Íslands við aðrar þjóðir á grundvelli jafnréttis og gagnkvæmar virðingar. Vinstrihreyfingin grænt framboð leggur áherslu á sjálfsákvörðunarrétt þjóða og félagslega hnattvæðingu sem horfir fyrst og fremst til félagslegra tengsla þegar ákvarðanir í alþjóðasamskiptum eru teknar.
Til þess að Ísland geti tekið fullan þátt í alþjóðasamstarfi á næstu árum þarf að fara fram umræða um hvernig slíku samstarfi á að vera háttað, hvaða hagsmuni ber að verja og hvaða hagsmunir eru til þess fallnir að styrkja tengsl Íslands við alþjóðasamfélagið. Flokksráð VG fagnar þeirri umræðu sem nú fer fram um samskipti Íslands og ESB og hvetur til að henni verði haldið áfram.
Ályktun gegn takmörkun tjáningafrelsis
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar –græns
framboðs leggur til að hafin verði vinna við endurskoðun á þeim ákvæðum
íslenskra laga sem varða þau sjálfsögðu mannréttindi að mótmæla. Dæmi um
forneskjuleg lög sem enn eru í gildi er 95. grein almennra hegningarlaga sem
bannar svokallaða smánun á erlendu ríki sem og 125. grein almennra
hegningarlaga sem banna guðlast.
Það er grundvallaratriði að á Íslandi ríki tjáningarfrelsi og að ekki sé hægt að beita úreltum lögum fyrir sig í tilraun til þöggunar. Ísland vill verða brautryðjandi á sviði mannréttinda og endurskoðun laganna gæti verið lykilskref í þá átt.
Ályktun um auglýsingar á stöðum hjá hinu opinbera
Flokksráðsfundur VG, haldinn á Hólum í Hjaltadal dagana 24. til 25. ágúst 2012, áréttar að jafnan skuli auglýsa stöður hjá hinu opinbera, í samræmi við opna stjórnsýsluhætti.
Tillaga að ályktun um rafmagnssæstreng
Flokksráðsfundur VG haldinn 24.-25. Ágúst 2012 varar við framkomnum hugmyndum um lagningu rafmagnssæstrengs mili Íslands og Skotlands. Jafnvel þó að slík sæstrengslögn væri tæknilega möguleg þá myndi fjárfesting af þeirri stærðargráðu kalla á stórfellda rányrkju á íslenskum orkuauðlindum og stórhækkun á raforkuverði innanlands.